blaðið - 08.12.2005, Síða 4

blaðið - 08.12.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaöiö Innbrot í heimabanka í rannsókn: Öryggi í heimilistölvum ábótavant Þjófnaðir úr heimabönkum eru áhyggjuefni, en illa varðar heimilistölvur eru veiki hlekkurinn. Lítið mál erþó að koma öryggi þeirra í viðunandi horf Bankarnir hyggja á kynningarátak til þess. íslensku bankarnir líta innbrot í heimilistölvur og þjófnaði úr heima- bönkum í framhaldinu alvarlegum augum og hyggjast taka þau mál föstum tökum. Sérfræðingar, sem Blaðið ræddi við, segja að öryggi heimilistölva sé oft mjög ábótavant, en á hinn bóginn þurfi ekki mikið átak til þess að bæta úr á viðunandi hátt. Maður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um þjófnað úr heimabanka. Honum er lýst sem ógæfumanni, sem fenginn hafi verið til þess að leppa fyrir hinn raunverulega brota- mann. Þjófurinn hafi fært pening- ana á reikning í nafni leppsins, en sá hafi tekið þá út sem reiðufé. Innbrotið, sem um ræðir, var gert hjá viðskiptamanni íslandsbanka, en bankarnir líta á málið sem sameig- inlegt vandamál og hyggjast bregð- ast við í samstarfi, sem leitt verður af Samtökum banka og verðbréfafyr- irtækja, en þau hafa verið samstarfs- vettvangur þeirra í öryggismálum. Blalil/Steinar Hugi Einfalt að efla öryggið Að sögn heimildarmanna Blaðsins í bankakerfinu er öryggi heima- banka aldrei tryggara en veikasti hlekkurinn. „Ef menn eru með gal- opnar heimatölvur er auðvitað voð- inn vís.“ Sérstaklega mæla þeir með því að fólk verði sér úti um veiru- varnir, sem líka geti bægt frá njósna- forritum, bakdyraopnurum eða trójuhestum, sem svo eru nefndir, og geta hæglega borist yfir Netið án þess að almennur notandi verði þess var. Nefna má veiruvörnina McAfee í þessu samhengi, en sækja má ókeypis tilraunaútgáfu hennar á www.mcafee.com. í samtölum við öryggissérfræð- inga kom fram að öll dæmi um inn- brot af þessu tagi hefðu átt sér stað á tölvum með Windows-stýrikerfi. „Hvað öryggið varðar er Windows einfaldlega drasl,“ sagði einn þeirra. „Það er stagbætt en samt eru alltaf að koma upp ný öryggisgöt.“ Sem dæmi um öruggari stýrikerfi nefna menn Macintosh eða Linux. Windows er hins vegar útbreiddasta stýrikerfið og því mikilvægt að notendur þess hugi að öryggisþáttunum. Annað, sem fólk ætti að varast, eru póstviðhengi, sem innihaldið geta forrit, tilboð frá óþekktum netverslunum og reyndar öll tilboð, sem eru of góð til þess að geta verið sönn. Sú mun einatt raunin. Rannsókn miðarvel Að sögn Ómars Smára Ármanns- sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, miðar rannsókninni vel, en á meðan henni stendur sé ekkert hægt að segja um hana annað. Aðrir hafa ekki enn verið handteknir vegna málsins, framhaldið réðist af rann- sóknþess. Öryggissérfræðingar í banka- heiminum segja að þeir séu mjög ánægðir með vinnubrögð lögregl- unnar í þessu máli, þau hafi komið sér mjög ánægjulega á óvart því þekking á þessari tegund glæpa sé ekki sjálfgefin. Á næstunni hyggjast bankarnir fara út í víðtækt kynningarátak vegna tölvuöryggismála. Einfalt sé að byrgja þennan brunn, enda hafi afbrotamennirnir fram að þessu ekki borið með sér að vera háþró- aðir tölvuþrjótar, þar ræði frekar um viðvaninga sem noti tilbúin tól frá öðrum til þess að stela frá náunganum. Fékk heiðurs- verðlaun í Los Angeles Listakonan Anna Gunnarsdóttir frá Akureyri hlaut nú nýverið sérstök heiðursverðlaun í hönnunarsamk- epninni „Wearable Art Expressions“ sem haldin var i Palos Verdes, í nágrenni LA. Anna vakti athygli fyrir að mæta í keppnina með þrjá sérhannaða alklæðnaði, en flestir keppenda sýndu bara einn. Anna var í átta manna hópi sem sérstaka viðukenningu hlaut og fékk hún hana fyrir jakka úr þæfðri ull og silki með laxaroði á bryddingum, topp úr laxaroði og pils úr ull og sifid. Að sögn Önnu vöktu flíkurnar mikla athygli vestanhafs og seldist verðlaunaklæðnaðurinn samstundis. Jólakaka sælkerans ÉK Eilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smératorgi Markaðir: Kaup á erlendum verðbréfum aukast Innlendir aðilar keyptu erlend verð- og hlutabréf fyrir tæpa 28 milljarða í októbermánuði síð- astliðnum samkvæmt tölum frá Seðlabankanum. Áður höfðu slík kaup farið hæst þegar keypt var fyrir 11 milljarða í apríl á þessu ári. Væntingar á markaðnum um að krónan sé að veikjast gæti verið ástæðan fyrir þessum miklu kaupum. Nýta sér hátt gengi Innlendir aðilar keyptu hlutabréf í erlendum fyrirtækjum fyrir rúm- lega 21 milljarð en þá námu fjárfest- ingar í erlendum verðbréfasjóðum um 7 milljörðum. Samkvæmt frétt frá greiningardeild Islandsbanka er talið líklegt að lífeyrissjóðir séu að nýta sér hátt gengi krónunnar til að bæta við eign sína í erlendum verðbréfum en einnig vega fjárfest- ingar innlendra fyrirtækja þungt. Þá segir greiningardeildin það vera athyglisvert að á sama tíma og þessi kaup stóðu yfir styrktist gengi krónunnar um 2,8% en það er rakið fyrst og fremst til 75 punkta hækk- unar stýrivaxta Seðlabankans í lok septembermánaðar. Krónan að veikjast Að sögn Halldórs Kristinssonar, hjá eignastýringu Gildi-lífeyrissjóðs, stýrast fjárfestingar af þessu tagi fyrst og fremst af væntingum um að krónan sé að veikjast og að erlendir markaðir séu að gera það gott fram að áramótum. „Lífeyrissjóðskerfið er að vaxa hraðar en innlendi mark- aðurinn og menn þurfa því ósjálfr- átt að setja pening erlendis. Markað- urinn hér heima er búinn að hækka mikið og menn horfa í kringum sig. Svo er það markmið sjóðanna að vera með ákveðið hlutfall í erlendum eignum,“ segir Halldór. Misrétti Aö jafnrétti náist er veruleg von um því vekur þaö furðu að enn er bærinn svo fullur af fallegum konum sem fengu sér Ijóta menn. „Þeir sem aðhyllast orðaglens, ákveðnar skoðanir og leiki með hætti fá hér einnig töluvert fyrir sinn snúð, og allt er þetta vel gert." Gunnþórunn Guðmundsdóttir, bokmenntir.is „Annars er bókin hans Þórarins sérlega fín. Þarna eru bæði rímuð kvæði og órímuð, alvörugefin, glettin, smáskrítin og djúpvitur - vald Þórarins á málinu er einstakt." Egill Helgason, SilfurEgils, visir.is Amerísk jólatré netbudir.is Fallegustu tré í heimi Margar stærðir Margar gerðir Landsins mesta úrval af jólatrjám Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík, Sími 587 1777

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.