blaðið - 08.12.2005, Side 6

blaðið - 08.12.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 bla6Í6 íslensk erfðagreining: Nóbelsverð- launahafi í stjórn Dr. Linda Buck hefur tekið sæti i stjórn íslenskrar erfðagreiningar. Hún hlaut Nóbelsverðlaunin í lækn- isfræði árið 2004 fyrir rannsóknir á lyktarskyni mannsins. Kári Stefáns- son, forstjóri lE, segir í tilkynningu að fyrirtækinu sé það mikill heiður að bjóða Dr. Buck velkomna í stjórn fyrirtækisins. ÍE hefur einnig til- kynnt að fyrirtækið kunni að nýta sér heimild til þess að afla allt að 6,5 milljarða, eða 100 milljón dollara, í formi verðbréfa. Um er að ræða svo- kallaða skúffuskráningu hjá banda- ríska fjármálaeftirlitinu en reglur um þess háttar skráningu segja að fyrirtækið geti selt verðbréfin hve- nær sem er, í hvaða magni sem er og á hvaða verði sem er á þeim tíma sem það vil selja. Viðskiptablaðið greindi frá þessu á vefsíðu sinni. Heilbrigðisráðherra: Neyðarástand í málefnum aldraðra Yfir 400 aldraðir íslendingarþurfa nauðsynlega á hjúkrunarrými að halda. Sláandi tölur segir þingmaður Samfylkingarinnar. Alls eru 455 aldraðir íslendingar á biðlista eftir hjúkrunarrými, þar af eru 402 taldir í mjög brýnni þörf. Björgvin G. Sigurðsson, alþingis- maður, segir niðurstöðurnar koma á óvart. „Það vekur sérstaka athygli hve margir teljast vera í mjög brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými og þeir eru miklu fleiri en þeir sem teljast í brýnni þörf. Þetta tel ég draga mjög skýrt fram það neyðarástand sem ríkir f þessum málaflokki.“ Björg- vin segir ekki nóg með að á annað þúsund manns þurfi að deila her- bergi með öðrum inni í stofnunum heldur skeri fjöldinn sem ekki kemst að í augun. „Þetta hlýtur að kalla á sterk viðbrögð stjórnvalda því þetta er fólk sem er í mjög alvar- legum málum sem versna bara eftir því sem tíminn líður. I raun eru þessi svör sláandi og manni bregður við. Ég átti ekki von á því að sjá þetta mikinn fjölda í mjög brýnni þörf.“ Hafa sofið á verðinum Björgvin segir það liggja fyrir að ekki séu á döfinni fyrirætlanir af hálfu ríkisins til þess að bregðast við ástandinu. „Þær fyrirætlanir sem uppi eru um byggingu hjúkrun- arheimila svara á engan hátt þessari þörf sem þarna kemur fram. Stjórn- völd hafa einfaldlega sofið á verð- inum og neyðarástand hefur skap- ast í málaflokknum. Þetta hlýtur að kalla á afgerandi viðbrögð stjórn- valda og ég skora á Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, að bregðast við þessu.“ Björgvin bendir á að í gær hafi farið fram atkvæðagreiðsla um fjárlögin á Alþingi og að þar sé ekk- ert tekið á þessum vanda. „Það er einnig greinilegt að skortur á landsvæðum er mismikill og sum svæðin eru í mun verri málum en önnur. Höfuðborgarsvæðið er sérstaklega illa statt og þar er neyðin greinilega mjög mikil,“ segir Björgvin. Skýrsla um kjör öryrkja: Prófessor sakaður um óvönduð vinnubrögð Ráðuneyti fjármála, heilbrigðis- og tryggingamála gagnrýna skýrslu Canon Ixus 50 5.0 milljón pixlar 3x optískur aðdráttur video með hljóöi 10 tökustíllingar 2,0" skjár Kodak V530 5,0 milljón pixlar 3x optískur aödráttur “on screen myndvinnsla" 20 tökustillingar 2,0" skjár hleðslurafhlaða fylgir Samsung A-402 4,0 milljón pixlar 5x stafrcenn aödráttur Video með hljóði einföld og þcegileg 2,0" skjár lurafl' *256mb r *meö þessum vé skort fyigir öan byrgöir endast Álfabakka 14 - 557 4070 www.myndval.is Stefáns Ólafssonar, prófessors við Há- skóla íslands, um örorku og velferð á Islandi. I sameiginlegri tilkynningu segir að við stutta skoðun á efni skýrslunnar hafi komið í ljós óná- kvæmur og stundum villandi saman- burður og að sums staðar gæti mis- skilnings í veigamiklum atriðum. Að mati ráðuneytanna kemur þetta til dæmis fram þegar Stefán ber saman kaupmátt örorkulífeyrisgreiðslna og launavísitölu. Þar séu aðeins teknir saman tveir bótaflokkar, grunnlíf- eyrir og tekjutrygging, og því horfi höfundur fram hjá þeirri kjaraleið- réttingu sem var með tekjutryggingar- aukanum árið 2001 og aldurstengdu örorkuuppbótinni sem kom til fram- kvæmda árið 2004. Einnig segir að ekki verði annað séð en að höfundur hafi misskilið hugsun og útfærslu ald- urstengdu örorkuuppbótarinnar, því hann haldi fram að uppbótin nái að- eins til lítils hluta öryrkja, en í raun nái hún til allra öryrkja. Stefán hefur ekki áhyggjur Fleiri athugasemdir eru gerðar við skýrsluna þar sem sagt er að óná- kvæmni gæti hjá höfundi. Það eigi við Glæsilegur undirfatnaður fyrir jólin Opnunartími Mán-fös 11-18 Lau 11-16 Sun 13-16 til dæmis þar sem bornar eru saman örorkulífeyrisgreiðslur á mann sem hlutfall af lágmarkslaunum. Óná- kvæmni gætir einnig þegar borin er saman þróun kjara samkvæmt upplýsingum úr skattaframtölum. Þar er mikilvægt að bera saman sam- bærilega hópa, en það geri Stefán ekki alltaf. I ljósi þessarar meintu ónákvæmni og einnig vegna þess að skýrslan þykir stangast í sumum atriðum við skýrlsu Tryggva Þórs Herbertssonar um fjölgun öryrkja á íslandi, hafa ráðuneytin ákveðið að fela óháðum aðila að fara yfir talna- samanburð og kanna áreiðanleika og samanburðarhæfni þeirra gagna sem lögð voru til grundvallar skýrsl- unni. Þegar Blaðið hafði samband við Stefán vegna málsins sagðist hann ekki hafa séð téðar athugasemdir. Hann hefði ekki miklar áhyggjur af málinu og stæði fyllilega við skýrsl- una eftir sem áður. va/h ce4b»«« conl.d»«tce www.ynja.is Frábær verð og gæði, persónuleg þjónusta Útsölustaðir:Esar Húsavík ■ Dalakjör Búðardal mmsTumm ÚRVALIÐ f FJARSTÝRÐUM BÍLUM, BÁTUM, FLUGVÉLUM OG FYLGIHLUTUM TIL ÞEIRRA ER HJÁ OKKUR. www.tomstundahusid.ls OPHE> ALLA DAGA TIL JÓLA. *• Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 5870600, Öll sex ára börn með end- urskinsborða frá skátunum Skátahreyfingin hefur dreift end- urskinsborðum til allra sex ára barna í landinu. Með borðunum fylgir rit sem fjallar um öryggi barna í umferðinni og límmiðar til að líma i rúður. Verkefnið ber yfirskriftina „Látum ljós okkar skína“ og er þetta í 15. sinn sem skát- arnir standa að dreifingunni. Aðal styrktaraðili verkefnisins er VÍS. \

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.