blaðið - 08.12.2005, Page 8

blaðið - 08.12.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTXR FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 Maöi6 Vonarstjarna íhaldsflokksins Félagar í breska íhaldsflokknum binda vonir við að David Cam- eron muni leiða flokkinn til sigurs í nœstu kosningum eftir langt niðurlœgingarskeið. Cameron þykir minna á Blair og er talið að hann muni eiga þátt í að breyta ímyndflokksins. David Cameron hlaut yfirburða- kosningu til formanns breska íhaldsflokksins á þriðjudag. Cameron, sem er 39 ára vann sigur á keppinauti sínum David Davis með 134.446 atkvæðum gegn 64.398 í póstkosningu sem flokks- félagar um allt Bretland tóku þátt i. f haldsmenn vonast til að hann muni stýra íhaldsflokknum upp úr þeim öldudal sem hann hefur verið í undanfarin ár en Cameron er fimmti formaður flokksins síðan Margaret Thatcher lét af embætti forsætisráðherra fyrir fimmtán árum. Sýnt þykir að ímynd fhaldsflokks- ins muni breytast með kjöri Cameron og að honum takist að laða að unga fjgl Ljósin íbænum Stigahlíð 45 • 105Reykjavík kjósendur. Sjálfur hefur hann gagn- rýnt flokksforystuna fyrir að vera gamaldags og sagt að hann vilji færa flokkinn nær miðjunni í stjórnmálum. Cameron þykir að mörgu leyti minna á Tony Blair um það leyti er hann tók við embætti forsætisráðherra. Hann er ekki aðeins á svipuðum aldri og Blair var heldur eru þeir báðir snjallir ræðumenn, kraftmiklir og eiga auð- velt með að nýta sér fjölmiðla. Hann hefur meðal annars sagt að hann muni leggja áherslu á félagsmál og umhverfísmál, til að mynda vill hann láta bæta almenningsþjónustu, auka lífsgæði Breta, efla löggæslu og standa við skuldbindingar landsins í málefnum er varða loftslagsbreyt- ingar. Þá hefur hann lýst yfir vilja sínum til að efla hlut kvenna og fólks af mismunandi kynþáttum í breskum stjórnmálum. Skjótur frami og reynsluleysi Cameron nýtur góðs af því að vin- sældir Blair og ríkisstjórnar Verka- mannflokksins hafa dalað meðal ann- ars vegna stríðsins í frak og tillaga hans um umbætur á fjárlögum Evr- ópusambandsins. Hann þykir hafa náð skjótum frama í breska íhalds- flokknum en hann hefur aðeins setið á þingi í fjögur ár og bar lítið á honum fyrr en á þessu ári. Andstæð- ingar hans telja einmitt margir að hann búi ekki yfir nægilegri reynslu til að takast á við hið krefjandi embætti. Hann fer með skuggaráðu- neyti menntamála í stjórnarandstöð- unni sem þýðir að hann er helsti tals- maður í þeim málaflokki. Hann var í hinum fræga Eton einka- skóla og nam síðan heimspeki og hag- fræði við Oxford. Hann starfaði meðal annars sem ráðgjafi ráðherranna Mi- chael Howard og Norman Lamont en var kosinn á þing 2001. Hann er giftur og á tvö börn, þar af eitt sem er alvar- lega fatlað, og það þriðja er á leiðinni. (haldsmenn vonast til að David Cameron muni stýra flokknum upp úr þeim öldudal sem hann hefur verið í á síðustu árum. Enn eitt námuslysiö í Kína Að minnsta kosti 96 var saknað síð- degis í gær eftir að sprenging varð í kolanámu í norðurhluta Kína í gær. Þetta var þriðja námuslysið í landinu á tveimur vikum og beinir kastljósinu einu sinni enn að ör- yggismálum í námum í Kína. 123 verkamenn voru í námunni þegar sprengingin varð í borginni Tangs- han í Hebei-héraði en staðfest var að að minnsta kosti 27 hefðu komist heilu og höldnu út úr henni. Hvergi í heiminum eru mannskæð slys jafn tíð í námum og í Kína en þar fórust meira en 6.000 námuverkamenn í eldsvoðum, flóðum, sprengingum og í öðrum slysum á síðasta ári. í síðustu viku fórust 171 í annarri sprengingu í námu í norðaustur- hluta Kína. Slæmum tækjabúnaði og ófullnægjandi öryggisreglum hefur meðal annars verið kennt um hina háu tíðni námuslysa. Rík- isstjórnin hefur lokað þúsundum náma sem þóttu ekki öruggar og refsað námueigendum sem hugsa meira um hagnað en öryggi verka- manna. Hin gríðarlega orkuþörf landsins hefur þó flækt málið enn frekar enda krefst ört vaxandi efna- hagslífið meiri orku. ■ Saddam sniðgekk dómfund Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta fraks, héldu áfram í gær þrátt fyrir að Saddam hafi sjálfur verið fjarverandi. Að fundi loknum var réttarhöldunum síðan frestað til 21. desember. Við lok dómfundar á þriðjudag hafði Saddam, sem var orðið heitt í hamsi, hótað því að sniðganga réttarhöldin daginn eftir þar sem hann og aðrir sakborningar hefðu verið grátt leiknir af dómstólnum sem þeir teldu ólöglegan. Fimm vitni komu fyrir réttinn á þriðjudag og lýstu atburðunum í bænum Dujail árið 1982 þar sem framin voru fjöldamorð á sjíta-mús- limum eftir að reynt var að sýna Saddam Hussein banatilræði. Einna átakanlegastur þótti vitnisburður konu sem var á unglingsaldri þegar atburðurinn átti sér stað. Hún lýsti meðal annars barsmíðum, pynt- ingum og kynferðislegri smánun öryggissveita. ■ Stóll Saddam Hussein var auður við rétt- arhöld yfir honum og sjö öðrum í Bagdad fgær. Múslimar í Danmörku taldir tengjast hryðjuverkastarfsemi Hópur múslima í Danmörku hefur verið ákærður fyrir að fjármagna hryðjuverk með því að senda pen- inga til hernaðararms Hamas-sam- takanna í Palestínu. „Við hand- tókum í dag hópinn og tvo félaga hans og lögðum hald á hluta af fjár- mununum,“ sagði Henning Thiesen, sérstakur saksóknari í alvarlegum efnahagsbrotamálum. Dómsmálaráðuneytið segir að rannsókn sem hófst árið 2002 hafi leitt í ljós að mennirnir tveir hafi safnað peningum í Danmörku og sent þá til samtaka í Miðaustur- löndum sem tilheyra eða hafa tengsl við Hamas-samtökin. Hamas-sam- tökin hafa heitið því að eyða Israels- ríki og lýst ábyrgð á mörgum sjálfs- morðsárásum í landinu á hendur sér. Ákærurnar voru lagðar fram samkvæmt lögum um varnir gegn hryðjuverkum sem gengu í gildi árið 2002 í kjölfar hryðjuverkaárása á Bandaríkin árið áður. Sendu eina fyrirsögn úr Blaðinu í dag á holar@vbl.is og þúgætir eignast eintak af bókinni AMEN, gamansögur af íslenskum prestum. Blaðið Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur blaðiðu BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.