blaðið - 08.12.2005, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
A
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaóiö
Schröder nemur
ensku og sötrar bjór
Heyrst hefur að Gerhard Schröder,
fyrrverandi kanslari Þýskalands,
leggi nú stund á enskunám í
smábænum Montgomery á landa-
mærum Wales og Englands. Enn-
fremur á að hafa sést til kanslarans
fyrrverandi á bar bæjarins þar sem
hann naut ölkrúsar í góðu tómi.
Starfsmaður barsins vildi ekki tjá
sig um frásögnina þegar AFP-frétta-
stofan falaðist eftir því. Schröder,
sem er 6i árs, viðurkenndi fúslega á
sjö ára kanslaratíð sinni að enskan
sín væri ekki góð. Hann tilkynnti í
síðasta mánuði að hann myndi taka
að sér ráðgjafastörf fyrir svissneska
fjölmiðlafyrirtækið Ringier.
Heyrst hefur aö Schröder, fyrrverandl
kanslari Þýskalands, ieggi nú stund á
enskunám í Wales.
Bosníu-Króati
dæmdur fyrir stríösglæpi
Stríðsglæpadómstóllinn í Haag
dæmdi i gær Bosníu-Króata til 20
ára fangelsisvistar eftir að hann
hafði sagst vera sekur af ákærum
um morð, nauðganir og pyntingar á
múslimum.
Miroslav Bralo sagðist vera sekur
af átta ákærum um stríðsglæpi og
mannréttindabrot sem framin voru
á meðan á borgarastyrjöldinni í Bo-
sníu stóð frá 1992-1995.
Dómarinn sagði að glæpirnir
hefðu verið svo alvarlegir og grimmi-
legir að hann hefði dæmt Bralo til 25
ára fangelsisvistar ef hann hefði ekki
játað sekt sína, sýnt iðrun og gefið
sig sjálfviljugur fram við réttinn.
Bralo, sem nú er 38 ára, var félagi
í sérsveitum Bosníu-Króata sem réð-
ust á þorp múslima í Bosníu árið
1993. Sveitirnar handtóku óbreytta
borgara og neyddu þá til að grafa skot-
grafir og vera „mannlegir skildir'.
Bralo nauðgaði oft múslimskri konu
sem var fangi í um tveggja mánaða
skeið. Þá neyddi hann múslima
til að taka þátt í kaþólskum helgi-
athöfnum og myrti aðra.
Miroslav Bralo gengur í dómssal í gær.
ALLIR
JÓLAPOKAR
AF OUUM
Í2LFN2KUM
BÓKUM
SÚ ÓPÝRASTA FPÍ
HJÁ OKKUP &RU NÆ& BÍLA&TÆPt
OO &OTT AB&BN&!
Alþjóðlegum eftirlits-
mönnum vísaö úr landi
Yfirvöld í Erítreu hafa fyrirskipað
erlendum starfsmönnum sem sinna
landamæraeftirliti fyrir Sameinuðu
þjóðirnar að yfirgefa landið. Talið
er að þetta muni leiða til frekari
árekstra á milli landsins og alþjóða-
samfélagsins auk þess sem margir
óttast að landamærastrið kunni að
brjótast út á ný. Ástandið á landa-
mærum Erítreu og Eþíópíu hefur
verið eldfimt og hefur spennan stig-
magnast að undanförnu.
Starfsfólki frá ríkjum Evrópu,
Rússlandi, Bandaríkjunum og Kan-
ada hefur verið gefinn tíu daga
frestur til að yfirgefa landið. Fyrir-
skipunin nær til allra borgara þess-
ara landa sem vinna fyrir Samein-
uðu þjóðirnar án tillits til á hvaða
svæði þeir starfa.
Zecarias Ogbagaber, höfuðsmaður
og helsti tengiliður Erítreu og starfs-
manna Sameinuðu þjóðanna, skýrði
frá þessu i bréfi til Joel Adechi, hátt-
setts embættismanns S.þ. í Erítreu.
Ogbagaber gaf ekki nákvæmar skýr-
ingar á brottvísuninni í bréfinu.
Þó að Ogbagaber hafi ekki skýrt
ákvörðunina nánar virðist henni
vera ætlað að sýna vanþóknun rik-
isstjórnarinnar á hótun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna frá síðasta
mánuði um að beita Erítreu refsiað-
gerðum ef hún afléttir ekki hömlum
sem hún hefur lagt á eftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna.
Ekki var ljóst í gær til hve margra
starfsmanna skipunin næði en talið
er að þeir séu að minnsta kosti 100.
Festi hönd í
klósettskál
Kalla þurfti út björgunarsveit i borg-
inni Odessa i Úkraínu eftir að ungur
maður festi hönd í klósettskál.
Maðurinn, sem er erlendur náms-
maður við háskóla í borginni, hafði
misst farsíma sinn niður í skálina og
festist höndin þegar hann freistaði
þess að ná honum aftur. Hann sat
fastur i um tvo tíma áður en tókst
að losa hann úr þessum vandræða-
legu aðstæðum. Maðurinn gekkst
undir læknisskoðun eftir hremm-
ingarnar en virðist ekki hafa orðið
mjög meint af.
Maður f Úkraínu festi hönd f klósettskál
þegar hann reyndi aö ná símanum slnum
upp úrhenni.