blaðið - 08.12.2005, Side 16

blaðið - 08.12.2005, Side 16
16 I VÍSIMDI FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaöiö Var líf á Mars? Nýjar uppgötvanir um Downs heilkenni Vísindamenn telja sig hafa uppgötvað sameind sem gæti mögulega verið hægt að nýta til þess að meðhöndla og draga úr þeirri andlegu rýrnun sem fólk með Down heilkenni verður fyrir. Þeir halda því fram að fólk með Downs heilkennið sé með meira magn af myo-inositol sameindum i heilum sínum. Þeir komust einnig að því að aukið magn af slíkri sameind í líkama manns hafi þau aukaáhrif að draga úr vitsmunalegri getu hans. Þá grunar vísindamennina að mikið magn af myo-inostol gæti skipt höfuðmáli í þeirri tilhneigingu þeirra sem haldnir eru Downs heilkennum að fá Alzheimer sjúkdómninn mun fyrr en tíðkast hjá þeim sem ekki eru haldnir heilkenninu. Þegar Downs sjúklingar ná fertugsaldri þá sýnir heili þeirra nánast undantekningar- laust merki um einkenni Alzheimer sjúkdómsins, þó að þeir þrói vanalega ekki með sér þau vitglöp og andlegu hnignun sem vanalega helst í hendur við þann hræðilega sjúkdóm. Ekki um lækningu að ræða Prófessor Declan Murphy sem er í for- svari fyrir rannsóknina sagði nýlega í viðtali við breska ríkisútvarpið að rannsóknarteymi hans hafi komist að því að fullorðnir Downs sjúklingar séu með mun hærra magn saman- safnað af myo-inostol sameindum í heila sínum en aðrir og að þessi aukn- ing skili sér í minnkandi vitsmuna- legri getu. Hann sagði einnig að hann og samstarfsmenn hans væru nú að rannsaka leiðir sem gætu leitt til þess að mögulegt væri að draga úr saman- söfnun þessara sameinda í heila fólks með Downs heilkenni. „Við vonum að ef okkur tekst að gera þetta, þá verði til ný leið til þess að meðhöndla þennan hræðilega sjúkdóm," segir prófessor Murphy ennfremur. Downs heilkenni eru algengasta erfðafræðilega orsök vitsmunalegrar hnignunar. Orsök sjúkdómsins er sú að þeir sem eru haldnir honum eru með þrjú eintök af litningi 21 í stað tveggja eins og annað fólk hefur. Samkvæmt rannsóknum Murphys og félaga þá stjórnar einn af erfðavís- unum á litningi 21 framleiðslu pró- Vísindamenn telja sig hafa fundið ástæð- una fyrir skerðingu á vitsmunalegri getu fólks sem er haldið Down's heilkenninu. teins sem er ábyrgt fyrir því að dæla myo-inositol sameindinni upp í heil- ann. Aukið magn sameindarinnar í heilum Downs sjúklinga gæti mögu- lega verið útskýrt með þeirri stað- reynd að það fólk er með auka eintak af erfðavísinum sem er ábyrgur fyrir dælingu sameindanna. Það er þó tekið skýrt fram að ekki er um neins konar lækningu á sjúkdómnum að ræða heldur er fyrst og fremst verið að útskýra mögulegar ástæður sjúk- dómsins sem gætu síðan nýst til þess að þróa leiðir til að meðhöndla hann með áhrifaríkari hætti í framtíðinni. t.juliusson@vbl.is Jean-Pierre Bibring, franskur vís- indamaður, hefur óskað eftir því að næsti leiðangur geimferðarstofn- unar Evrópu til Mars muni stefna að því að komast í tæri við elsta grjótlendi plánetunnar. Hann telur að þar sé að finna sannanir um mögulegt líf á Mars einhvern tím- ann í fyrndinni. Bibring hefur þegar tilgreint ákveðin svæði sem hann telur að hafi komist í snertingu við vatn stuttu eftir að plánetan mynd- aðist, en vatn er vitanlega forsenda þess að lífríki geti myndast. Hann telur ennfremur að á einu þessara svæða, sem nefnist Marwth Vallis, hafi aðstæður verið nægilega stöð- ugar í lengri tíma til þess að líf hafi getað skapast þar. Bibring vill því að ExoMars rover, tölvustýrt farartæki geimferðarstofnunar Evrópu sem kostar um 580 milljónir evra, verði sent þangað árið 2011, þegar það verður að fullu tilbúið. Búið að samþykkja bygg- ingu ExoMars rover Ráðherrar geimmála Evrópu hitt- ust í Þýskalandi á þriðjudag til þess að samþykkja byggingu ExoMars rover. Farartækið mun vera með innbyggðan bor auk þess sem að ExoMars rover er talið geta aflað sannana fyrir tilveru lífs á Mars. það verður búið alls konar öðrum rannsóknarverkfærum og nemum sem gera því kleift að rannsaka yfirborð rauðu plánetunnar í leit að sönnunum fyrir því að líf hafi þrifist þar. Bibring heldur því fram að steinefni í Marwth Vallis hafi myndast í nálægð við gífurlegt magn fljótandi vatns. Hann segir að fundist hafi steinefni sem talin eru hafa myndast á fyrstu hundruðum milljóna ára eftir að Mars varð til sem innhaldi vatn í kristalssamsetn- ingu sinni. Með öðrum orðum þá er þetta grjót talið vera meira en fjög- urra milljarða ára gamalt. t.juliusson@vbl.is www.voikswagen.is Vetember Bjóðum nokkra valda bíla á frábæru tilboðsverði * Miðað við 10% útborgun og bílasamning SP til 84 mánaða Polo Verð áður þ3S*SXKKTkr. Tilboðsverð 1.290.000 kr. 129.000 kr. útborgun og 16.900 kr. afborgun á mánuði * Golf Verð áður }£9eXJOÖTr. Tilboðsverð 1.760.000 kr. 176.000 kr. útborgun og 23.290 kr. afborgun á mánuði Verð áður 2J390I0ÖCTkr. Tilboðsverð 1.950.000 kr. 195.000 kr. útborgun og 25.790 kr. afborgun á mánuði * Golf Plus

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.