blaðið - 08.12.2005, Síða 18
18 I SAMSKIPTI KYNJANNA
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaöið
&
BOGMAÐUR
22. NÓVEMBER - 21. DESEMBER
HVAÐ SEGIR FREYJA UM KYNIN?
Hinn dæmigerði bogmaður vill ekki
gera flugu mein en honum hættir til
að setja fram vanhugsaðar athuga-
semdir um menn og málefni. Sumir
sem ekki þekkja lyndiseinkunn
þessa merkis telja að bogmaðurinn
sé beinskeyttur í hugsun en það er
öðru nær. Hann er vel viljaður og er
hætt við meðvirkni.
Hann þolir illa takmarkanir og
hefur sterka frelsisþrá. Bogmann-
inum hættir við leiðindum ef ekki
er alltaf eitthvað nýtt að gerast
í kringum hann. Fólki í þessu
merki hentar vel að vinna við ferða-
mennsku eða leiðsögn því þeir elska
frelsið. Bogmanninum er ekki vel
við ábyrgð en það er langt því frá
að hann sé ábyrgðarlaus. Af þeim
sökum reynir hann að koma sér hjá
að vera með sjálfstæðan rekstur eða
veita einhverju forstöðu nema þvi
aðeins að um skemmtiþætti sé að
ræða eða eitthvað sem tengist fjöl-
miðlum eða ferðalögum, en vitan-
lega eru til undantekningar. Hraði
og breytingar eru hans ær og kýr.
Hann verður sjaldnast æðsti
yfirmaður í fyrirtækinu sem hann
vinnur hjá. AÍtur á móti getur hann
verið sá allra besti í að sjá hvaða
úrlausnir eru hentugastar í hverju
máli fyrir sig. Fólk í þessu merki
hefur flest góða greind og margir
hafa frábært ímyndunarafl.
Sumir bogmenn þurfa að gæta sín
á ofstopafullu skapi sínu og þeim
getur verið hætt við að gæta óhófs
í mat og drykk. Fólk í þessu merki
getur verið mjög öfgafullt.
Bogmaðurinn reynir eftir fremsta
megni að hafa yfirsýn bæði á menn
og málefni. Bogmaður í fjölmenni
hefur þörf fyrir að standa á upp-
hækkun þannig að hann sjái yfir
hópinn. Bogmaður með tungl í stein-
geit eða Mars í steingeit er yfirleitt
alvörugefnari og setur markið hærra
en hinn venjulegi bogmaður.
Karlmaður í bogamanni
Hann hefur kjark til að berjast fyrir
þeim málefnum sem hann trúir
Verð frá
FULLORÐINS/
STÓRIPAKKI
Verðfrá\
Snjóbrettapoki. Verðfrá
Snjóbrettahjálmur. Verðfrá
Margirlitir
Stærðir 38-46
Verð frátlKlíi
FERÐAVERSLUN
Faxafeni 8 • 108 Reykjavfk • sími 534 2727
www.skataDudin.com
á. Helsta hætta bogmannsins er
hið taumlausa ímyndunarafl hans.
Honum hættir til að verða fóta-
skortur vegna þess að hann gefur
sér ekki tíma til þess að skoða málin
frá öllum hliðum. En það furðulega
er að langoftast bjargast hann á síð-
ustu stundu.
Þessir menn eru oft yfirborðs-
kenndir í ástarmálum og mörg
konan hefur flaskað á því. En hafi
þessi maður á annað borð ákveðið
sig verður hann góður og tryggur
elskhugi og eiginmaður. Það borgar
sig fyrir unnustuna eða eiginkonuna
að stjana dálítið við hann. Bogmað-
urinn kann því vel og hann mun svo
sannarlega endurgjalda það þegar
konan á síst von á. Þessum mönnum
er það í blóð borið að verða góðir
feður og guð hjálpi þeim sem ergja
litlu krílin þeirra.
Kvenmaður í bogamanni
Þessi kona getur verið ótrúlega
ónærgætin í orðum án þess að
meina nokkuð illt með því. Hún
getur líka átt það til að skjalla þig
upp úr skónum. Ekkert af þessu er
geðvonska eða fals, hún meinar það
sem hún segir og er sérstakur klaufi
að klæða orð sín í viðeigandi bún-
ing. Hún segir yfirleitt það sem hún
meinar. Kona í þessu merki nýtur
þess að láta vernda sig.
Hún þolir illa veiklyndi og vegna
þess er það nauðsynlegt fyrir þann
Við seljum bílana
www.bilamarkadurinn.is
Wt/a*HO>tría3.íc,uHH,
Sm&ituKmé 46 S •
S. 567 1800
sem ætlar að stíga í vænginn við
hana að vera kaldi karlinn. Kona
í bogmanninum er dálítið ósam-
kvæm sjálfri sér, henni er illa við að
láta segja sér fyrir verkum og getur
brugðist hin versta við sé það reynt,
en samt vill hún fá góð ráð. Henni
dettur ekki í hug að fórna sér fyrir
eldamennsku eða húsþrif. Þar með
er ekki sagt að hún sé sóði, öðru nær,
hún á gott með að halda hlutunum
í röð og reglu einmitt til þess að
minnka húsverkin.
Flestar konur í þessu merki eru
ákaflega góðar mæður. Þær leika
sér mikið við börnin og stundum
má ekki á milli sjá hver hefur mest
gaman af leiknum. Kona í bogmanni
hefur gaman af ævintýrum og er
viljug að lesa með börnum sínum.
Þessi kona er góður gestgjafi. Hún
hefur gaman af fólki og nýtur þess
að láta gestum sínum líða vel.
Þekkt fólk í bogamanninum
Beethoven
Maria Callas
Sammy Davis
Frank Sinatra
Geir Hallgrímsson
Einar Kárason
Áhrifastjörnur þessa merkis eru:
Júpiter, Merkúr og Tunglið.
Happadagur:
Þriðjudagur.
Happalitir:
Grænt og purpurarautt.
Heillasteinar:
Tópasar, mánasteinar og blágrænir
gimsteinar.
Happatala er oftast 4.
ísfiex
DAVID BECKHAM
fæst í öllum helstu snyrtivörudeildum um land allt,
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST
ÓHAÐ
blaðiö=