blaðið - 08.12.2005, Síða 25

blaðið - 08.12.2005, Síða 25
blaðið FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 MATURI 25 Föndrað í jólapakkann Fallegar jólakúlur íglugga eða á tréð Það eru ansi margir sem dunda sér við að föndra dægrin löng og kannski sérstaklega fyrir jólin. Sumir vilja meina að það séu engin jól án föndurs og föndra allt frá jólagjöfum til jólakorta. Á föndurloftinu í Garðheimum eru nokkrar hressar konur sem vita ansi mikið um föndur og föndurefni. Guðbjörg Ágústa Guðbrandssdóttir er ein þeirra og samkvæmt henni er vinsælt að föndra jólakort, jólakúlur og lampa auk þess sem það er alltaf vinsælt að skreyta kerti. I Garðheimum er boðið upp á alls kyns námskeið í föndri fyrir áhuga- sama en þau byrja þó ekki fyrr en í október og nóvember. Guðbjörg talar um að fólk föndri jafnvel gjafir til að gefa um jólin enda jafnan per- sónulegar og skemmtilegar gjafir. „Fólk býr mikið til jólakúlur. Þetta eru plastkúlur og það er ýmislegt sett inn í þær, til dæmis styttur, snjór og eitthvað þess háttar. Kúl- urnar eru frá 4 cm upp í 16 cm að stærð. Stærstu kúlurnar fara mest út í glugga en minni kannski frekar á jólatréð. Það er voða mikið verið að kaupa þetta í gjafir og sömuleiðis til að hengja út í glugga og á jólatréð. En þessar stærstu fara mest út í glugga." Skemmtileg birta af heima- tilbúnum lampa Guðbjörg segir að heimatilbúnu lamparnir séu alltaf jafn vinsælir og sérstaklega í jólagjafir. „Efni er límt á útskorið plast. Þegar það er búið er plastið saumað á grindur inni í lampanum. Síðan er venjuleg ljósasería sett inn í grindina og þá er kominn hinn fínasti lampi. Þetta kemur rosalega vel út, það kemur svo skemmtileg birta af lampanum og hægt er að velja hve mikil birtan á að vera eftir stærð seríunnar. Það er mjög fljótlegt og einfalt að gera svona lampa, þetta geta allir gert.“ Skemmtileg samverustund Guðbjörg segirþað hafa aukist mikið að fólk föndri sín eigin jólakort síð- ustu ár og reyndar hafi föndur yfir höfuð aukist. Til að mynda hefur föndur aukist sérstaklega á meðal karlmanna. „Fólk tekur sig saman og býr til kort. Úr þessu verður því skemmtileg samverustund. Hvort Þaö er sífellt algengara að fólk föndri jólakortin þetta er tímafrekt fer allt eftir því hvernig kortin eru gerð, hvort þau eru flókin eða einföld. Við erum með margar útfærslur og það er því bara hægt að velja. Þá er vinsælt að nota myndir í jólakort. Við erum með myndaarkir til að klippa út myndir sem eru svo límdar á kortin og skreyttar með þrívíddarglæru og glimmeri,“ segir Guðbjörg og bætir því við að á föndurloftinu sé allt sem tengist föndri og til að mynda allt mögulegt í skartgripagerð. Perluskreytt kerti Kerti eru jafnan eft- irsókn- arverð e n d a s k a p a þau sér- s t a k a Kerti eru mikið skreytt með límperlum og servíettum stemmningu. Samkvæmt Guð- björgu er vinsælt að skreyta kerti og það eina sem setur fólki skorður þar er ímyndunaraflið. „Kertin eru mikið skreytt með servíettum og límperlum. Þetta eru perlur sem eru settar í límið og þær síðan smurðar á kertið. Hægt er að skreyta kertin á margvíslegan hátt, svo framar- lega sem það er ekki skreytt með einhverju sem fuðrar upp. Það þarf alltaf að passa þegar maður er með kerti. En við reynum að leiðbeina fólki hvað er æskilegt að setja á kerti.“ svanhvit@vbl.is fljótlegt að gera svona fallegan lampa Jólakúlurnar eru jafnan settar út í glugga eða á jólatré Hugmy ndaskj óöa full af föndri Sniðugar og gagnlegar límmiðavélar Fallegir límmiðar að eigin vali Nú er af sem áður var og konur í sauma- klúbbum eru að mestu hættar að skrafa um föndur, sauma og nýjustu prjóna- uppskriftina. Nútímalegir sauma- klúbbar slúðra um ffæga fólkið, hver er með hverjum, kærastana um leið og meðlimirnir gúffa í sig gómsætum kræsingum. Þeir vettvangar sem hag- sýnar húsmæður og húsfeður hafa til að ffæðast um föndur og annað slíkt eru því hverfandi. Þannig virðist það vera fýrir þá sem ekki vita betur. 1 raun má segja að vettvangur föndursins hafi aldrei verið fjölbreyttari eða áhrifa- meiri. Internetið góða sér um það. Jólainniskór og tuskudýr Þessi sniðsíða er ótrúíega sniðug og úrvalið er af besta tagi. Hér má finna uppskriftir að tuskudýrum, alls kyns fígúrum, inniskóm og ótal margt fleira. Hægt er að kaupa efni í föndrið auk þess sem hægt er að vafra á síðunni til að fá hugmyndir. http://ladesigns.net/laindex2.html Föndurfyrirbörn íslensk síða þar sem sagt er frá alls kyns föndri fyrir börn. Þetta er oftar en ekki auðvelt föndur sem ætti að gleðja barns- hjartað. Sem dæmi má nefna brúður, bókamerki og bókaorm. http://barnung.khi.is/barn/fondur/ fondur.htm Sjáið myndirnar á www.bilamarkadurinn.is v*’ S. 567 1800 Hugmyndaskjóða Hér má finna allt mögulegt auk þess sem á þessari síðu eru tenglar á enn fleiri síður. Þessi síða er því full af sniðum, efnum og mörgu fleiru. http://patternpage.com/info.htm íslenskt handverk Á þessari skemmtilegu síðu má skoða og kaupa íslenskt handverk. Úrvalið er fjölbreytilegt og það er ýmislegt í boði. Til að mynda tréverk, búta- saumur, dúkkur og margt fleira. Vafalaust síða sem áhugasamir geta skoðað lengi. http://www.simnet.is/froken-fix/ Gæludýraklósett Þessi síða er sérstaklega skemmti- leg og mínúturnar líða hratt í leit að góðum hugmyndum. Síðan býður upp á alls kyns góðar hugmyndir auk þess sem hægt er að versla jóla- gjafirnar. Á síðunni má finna engla, dúkkur, peysur, gæludýraklósett og fleira. Hér eru ekki einungis föndur- hugmyndir heldur er þetta skemmti- leg síða að skoða enda full af alls kyns hlutum. http://www.countrysampler.com/ default.asp Límmiðavél er eitthvað sem getur nýst þeim sem föndra mikið. Ef- laust nýtist vélin sérstaklega vel fyrir þá sem eru duglegir að búa til alls kyns minningabækur. Límmiða- vél er sniðugt tæki sem hægt er að nota á margvíslegan hátt. 1 raun má segja að möguleikarnir séu óendan- legir og það er um að gera að nota ímyndunaraflið. En til að nefna nokkur dærni þá má jafnvel fara út og týna laufblöð eða blóm, þurrka þau og búa til glæsilega límmiða. Hæet er að setia mvndir f tækið oe búa til myndalímmiða. Að sama skapi er hægt að búa til límmiða til að setja á kassa, kort, efni, pappír og svona mætti lengi telja. Sennilegast vekur vélin mikla lukku hjá yngri kynslóðinni sem og skapandi eldri kynslóð. Vélarnar virka á þann hátt að rnyndin eða hluturinn sem á að gera límmiða úr er settur í vélina og út rennur límmiðinn nokkrum sekúndum seinna. Vélarnar eru til í tveimur stærðum og fást meðal ann- ars í Pennanum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.