blaðið - 08.12.2005, Page 30

blaðið - 08.12.2005, Page 30
30 I HÖMWUN FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaðÍA Gleðjum með góðri hönnun Falleg hönnun stenst tímans tönn. Þetta eru orð að sönnu oggildir þá einu hvort verið er að tala um skartgripi, húsgögn, húsbúnað eða aðra hluti. Margir halda upp áfallega hluti sem afi og amma áttu og virðast passa við allt. Ncelan hennar ömmu passar jafn vel við peysuna og sparikjólinn oggamli stóllinn passar við allt í stofunni. Gamla vindlaaskjan er ennþá stofustáss þó svo enginn reyki ífjölskyldunni og kakókannan sem langamma átti er geymd íglerskáp ogaðeins tekinfram ájólunum. Þannig verður góð hönnun að dýrgripum með aldrinum. Jólin nálgast og margir erufarnir að huga að jólagjafainnkaupum. Fallega hannaðir hlutir eru góð gjöfsem mun endast vel ogstanda afsér tískustrauma. Þegar gesti ber að garði getur verið gaman að hafafallegt leirtau ogþað undirstrikar hátíðarstemmninguna að bera steikinafram á vönduðum diskum ogdrekka úrfallegum glösum. Fólk kaupir stærri og dýrari hluti Innlend ogerlend hönnun úrgulli, silfri ogsteinum ,Við smíðum mikið úr silfri og gulli og notum mest 14-18 karata gull,“ segir Haukur Valdimarsson, gull- smíðameistari í skartgripaverslun- inni Carat í Smáralind. „í smíðina notum við náttúruperlur, demanta og íslenska steina m.a. ópal og mugerit sem er svartur steinn. Þegar steinarerunotaðirreynum við að láta þá halda sinni náttúrulegu lögun í skart- gripnum en slípum þá til og notum þá einnig stundum óslípaða eins ogþeir koma frá náttúrunni. I Carat er mikið úrval af sérsmið- uðum skartgripum en það kemur þó fyrir að fólk vill fá hluti í stíl við eitthvað sem það á fyrir og í þeim tilfellum sérsmiðum við skartgripi fyrir fólk. Það er mest um að við sérsmíðum hálsmen, armbönd og hringi úr gulli eða silfri. Við notum eingöngu ekta gull- festar en ekki gullhúðaðar eins og því miður eru notaðar í flestum tilfellum." Tískusveiflur í skartgripahönnun .Skartgripir hafa verið að stækka og það má þakka hagsveiflunni, en þegar ástandið er gott er fólk tilbúið til að kaupa stærri og dýrari hluti,“ segir Haukur og nefnir sem dæmi demantsskartgripi. „Núna er mikið um að andstæðum sé blandað saman, t.d. glansandi flötum og grófu efni. í jólagjöf fyrir herrann er vinsælt að kaupa ermahnappa, herrahringi og bindisnælur en ermahnapparnir eru að koma aftur i tísku. Skartgripir eru persónuleg gjöf sem lifir lengi og getur gengið á milli kynslóða. Við erum líka með ítalska hönnun sem hefur verið mjög vinsæl. 1 ítalskri hönnun erum við með gullfestar, armbönd, eyrnalokka og hringi úr hvítagulli.“ Haukur segir sérhann- aða hluti hafa ákveðinn karakter og að sérsmíðað skart standi tímans tönn. hugrun@vbl.is Hönnunfyrir herrann Vindlaöskjur og vasapelar í veiðiferðina Þó svo að reykingar hafi minnkað á undanförnum árum finnst sumum ómissandi að fá sér vindil við hátíð- leg tækifæri, jafnvel þótt viðkom- andi reyki annars ekki. „Við erum með svokallaða humitor vindlakassa en þeir eru með rakatæki og rakamæli," segir Sölvi Óskarsson, eigandi tóbaksverslunarinnar Bjarkar í Bankastræti. „Rakamælirinn sýnir rakastigið í kassanum en vindlar eru viðkvæmir fyrir því að þorna. Hægt er að bjarga vincfii sem er farinn að þorna með því að setja hann í rakan vindlakassann. Sumir eiga margar teg- undir af vindlum sem þeir reykja við hátíðleg tækifæri. Kassarnir eru til í mismunandi stærðum en þeir eru allir úr tré. Hægt er að fá vindlaöskju með fjórum handunnum vindlum og er það tilvalin jólagjöf. Þessa fjóra vindla er tilvalið að reykja á aðfangadag, jóla- dag, gamlársdag og nýársdag. Það eru margir sem reykja aðeins vindla við há- tíðleg tækifæri en aldrei annars." í tóbaksversluninni Björk er einnig að finna mikið úrval vasapela og staupa. „Við erum með staup sem eru tilvalin í veiðiferðina en hönnun þeirra hefur ekki breyst síðan 1922,“ segir Sölvi. „Ég hef séð 50-60 ára gömul staup af þessari gerð hjá fólki og þau standast tímans tönn. Staupin eru þýsk hönnun og utan um þau eru hand- unnin leðurhulstur. Vasapelar eru fá- anlegir eftir þýskri og breskri hönnun. Bresku vasapelarnir lýsa hugðarefnum þess sem drekkur. Á þessum pelum eru myndir af golfmanni, skotveiði- manni, knattpyrnumanni og einnig af seglskipi. Golfþelinn er merktur 19 holu en það er ákveðinn húmor í þvi. Það er sem sagt gert ráð fyrir að pelinn sé opnaður eftir 18 holu umferð.“ Þetta eru 21. jóhn sem Sölvi stendur bak við búðarborðið í Björk og hann segir margt hafa breyst á þessum tíma. „Áður kveikti fólk sér í sígarettum og vindlum inni í búðinni og tók ekkert tifiit annarra sem þar voru. Þetta sér maður ekki lengur og þá hafa reyk- ingar líka minnkað almennt.“ Sölvi segir ösina í versluninni hafa minnkað eftir að Kringlan og Smára- lind opnuðu en að alltaf sé stemmning í því að kíkja í búðir í miðbænum í góðuveðri. hugrun@vbl.is Húsgögn og húsbúnaður fyrir fólk á öllum aldri Gœði skipta máli Casa er rótgróin verslun og hefur selt klassíska hönnun um áratuga- skeið. „Við erum með allt frá sófum og niður í tappa á flöskur,” segir Alda Ingibergsdóttir, starfsmaður hjá Casa. „Við erum með skálar, flöskur fyrir olíur, vatnskönnur, karöflur og salt- og piparstauka frá Rosenthal. Þá erum við með rauðvíns-, hvítvíns-, kampavíns- og mjólkurglös ásamt bjórglösum frá Ritzenhoff. Við seljum einnig tvær tegundir af bjórglösum en þau kosta 1.890 krónur. Rauðvínsglösin kosta 1.900 krónur og kampavíns- glösin eru á 1.790 krónur. Casa selur einnig svokölluð perluglös sem eru t.d. notuð fyrir líkjöra og eru minni en kampavinsglösin. Af minni hlutum sem einnig eru tilvaldir til gjafa má nefna tappa til að loka vín- flöskum, stálbakka, hraðsuðukatla, sítrónupressur, ávaxtakörfur og hnífapör. Allir þessir hlutir eru úr stáli og koma frá Alessi.“ „Af stærri hlutum sem verslunin býður upp á má nefna húsgögnin sem eru klassísk og tímalaus en við erum m.a. með húsgögn frá Phillip Stark,“ segir Alda og bætir við að húsgögnin komi frá Ítalíu, Frakk- landi og Danmörku. Casa selur líka borðlampa sem hafa verið mjög vinsælir og eru til í glæru, svörtu og silfruðu og eru frá Kartell. Þeir kosta frá 21.900 krónum. „Það er mikið um að fólk sé að kaupa sér ný húsgögn fyrir jólin en svo er fólk líka að kaupa jólagjafir. Þetta eru flottar merkjavörur og margir eru að safna hlutum frá ákveðnum hönnuðum. Hönnun er alltaf klassísk og tímalaus og getur gengið á milli kynslóða. Fólk á öllum aldri kemur í verslun okkar og unga fólkið er ekki síður að leita sér að flottum hlutum. Þá er vin- sælt að gefa ungu fólki mjólkur- eða vatnsglös.“ Alda segir það sína til- finningu að fólk sé farið að huga að gæðum hluta i meira mæli en áður og segir mikið að gera í versluninni. hugrun@vbl.is ' js fJV •, N

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.