blaðið - 08.12.2005, Page 46

blaðið - 08.12.2005, Page 46
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaöið 461 FÓLK Smáborgarinn las áhugaverða grein í Fréttablaðinu um helgina, grein sem hafði áður birst í New York Times ef minni Smáborgarans svíkur hann ekki. Greinina skrifaði ungur maður sem var að tala um ófædd börn og réttindi feðra. Þetta var mjög svo áhugaverð grein og vakti Smáborgar- ann til umhugsunar. Staðreyndin er vitanlega sú að ef kona verður ólétt þá er það hún og hún ein sem ákveð- ur hvað skal gera við barnið. Vitanlega er þetta stundum ákveðið í samkomu- lagi við maka eða aðra góða menn en undantekningarlaust tekur konan lokaákvörðunin. Ef karlmaðurinn vill eignast barnið en konan alls ekki þá hefur maðurinn lítið um það að segja. Þetta er vitanlega mjög ósanngjarnt þar sem tveir einstaklingar geta barn- ið og ættu því að hafa jafnt tilkall til þess. Greinarhöfundur gekk svo langt að segja að það ætti að vera hægt að skikka konuna til að eignast barnið ef faðirinn tæki fulla ábyrgð á því. Sjálf- ur sagðist hann hafa verið með konu sem vildi ekki eignast barn þeirra og fór því í fóstureyðingu. Hann var hins vegar tilbúinn til að verða faðir. Smá- borgaranum finnst þetta að sama skapi ósanngjarnt. Karlmenn eru í sérstakri stöðu varðandi barneignir. ( raun og sannleika ráða þeir engu. Ef þeir passa sig ekki að setja upp smokk- innvið hverttækifæri þá geturviðkom- andi bólfélagi eignast barn, jafnvel í algerri óþökk föðursins. Það er verið að skuldbinda hann fyrir lífstíð og hann hefur ekkert um það að segja. Á sama hátt hefur karlmaðurinn ekki þann valkost að eignast barnið ef konan vill það ekki. Þetta er grimmur veruleiki og Smáborgarinn hefurfulla samúð með öllum karlmönnum sem eiga við þetta vandamál að stríða. Hins vegar finnst Smáborgaranum heldur fjarstæðukennt að hægt sé að neyða konur til að eiga börn sem þær ekki vilja. Því hvort sem konan hyggst skipta sér af barninu eða ekki er það svo sannarlega hluti af henni í níu mánuði. HVAÐ FINNST ÞÉR? Bók um kynlíf álfa og manna er ein þeirra hugmynda sem velt er upp á sýningu sem ber heitið: Ný sýn í ferðamálum. Um er að ræða samstarfsverkefni Listaháskólans og viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Sýningin er í Hafnarhúsi, 9.-11. desember. Blalll/Gúndi Magnús Skarphéðinsson, skólastjóri. Hvað finnst þér um að gefin verði út bók um kynlíf álfa og manna? „Ég hef bara aldrei heyrt á svona lagað minnst. Sú bók yrði aldrei neitt meira en kápan, það yrði ekki einu sinni efnisyfirlit í henni því það er ekkert að skrifa um. Ég hef heyrt um fólk sem hefur orðið ástfangið af huldumeyjum og huldupiltum, en ég hef aldrei heyrt um kynlíf þar á milli. Sennilega er það ekki mögulegt þar sem um er að ræða ást milli vídda, svo ég held að það sé líklegast alveg útilokað að nokkuð slíkt gæti gerst. En það kemur mér hins vegar ekki á óvart að viðskiptafræðingar hafi stungið upp á svonalöguðu." Angelina Jolie œí út i Ijósmyndara Leikkonan Angelina Jolie kom öllu í uppnám á dögunum þegar hún neitaði að láta taka myndir af sér á leið í gala kvöldverðarboð sem haldið var til styrktar flóttamönnum frá Sierra Leone í New York. Hún vildi ekki stilla sér upp fyrir ljósmyndara sem beðið hafði í rúma tvo tíma í frosti og kulda og hljóp að leikkonunni þar sem hún ætlaði að hlaupa inn um bakdyr staðarins. Þótt Angeíina reyndi að fela sig þá tókst það ekki og hún varð umkringd ljósmyndurum en öryggisverðir réðu ekki við ljósmyndarana og leikkonan varð að ýta einum þeirra í burtu þegar hann kom of nærri henni. Angelina samþykkti að stilla sér upp fyrir eina myndatöku fyrir utan veitingastaðinn en hún var öskuill þegar hún yfirgaf svæðið. Victoria viðkvœm íyrir slúðri Victoria Beckham, fyrrverandi söngkona í Spice Girls, segist eiga erfitt með að taka neikvæðri umfjöllun. „Fólk virðist gleyma að ég sé manneskja. Ég er með hjarta eins og aðrir og stundum líður mér illa ef fólk talar illa um mig,“ sagði Victoria. Hún hefur oft verið gagnrýnd fyrir að vera of grönn og hefur viðurkennt að hún hafi þurft að hitta lækni út af þyngdartapi. „Ég varð mjög áhyggjufull út af því hversu mikið ég léttist svo ég fór til læknis en hann sagði að það væri eitthvað sem gerðist þegar konur ættu börn. Mamma léttist líka mikið þegar hún átti bróðir minn svo þetta er arfgengt,“ sagði Victoria. Mariah Carey stjarna Billboard verðlaunanna Söngkonan Mariah Carey vann til fimm verðlauna á Billboard verðlaunaaf- hendingunni. Verðlaunin voru meðal annars fyrir bestu kvenkyns söngkonuna og R&B hipp hoppara ársins. 50 cent og Green Day unnu sex verðlaun hvor en 50 cent var valinn tónlistarmaður ársins og fékk verðlaun fyrir plötu ársins. Green Day þóttu bestu rokktónlistarmennirnir og besta popp hljómsveitin. Þá unnu Carrie Underwood úr American Idol og Shakira þrenn verðlaun hvor. eftir Jim Unger HEYRST HEFUR... ■ ■ Os s u r Skarphéð- insson mætti til hádegis- verðar með sjálfum Roger Moore á dög- unum ásamt fleiri þing- mönnum. Lýsing hans er óborg- anleg: „Við þingmennirnir vorum auðvitað með stjörnur í augunum að hitta gamla hetju af hvíta tjaldinu. Ég var sjálfur eins og kurteis skóladrengur lengi framan af málsverðin- um. Ég er ekki heldur frá því að Steingrímur J. hafi fengið skjálfta í hnén! Jónína var hins vegar mjög kúl. Hún er vön stjórstjörnum enda hittir hún Halldór Ásgrímsson á hverjum degi. Ég sagði við Steingrím á eftir að hefði þetta verið sena úr Bond-mynd hefði hann að sjálfsögðu verið i hlutverki rúss- neska njósnarans. En kalda stríðið er búið og Steingrímur var nú aldrei rússakommi." Titringur er í Samfylking- unni eftir frétt Blaðsins í gær um að Jón Bald- vin Hannibals- son íhugi jafnvel að snúa aftur í íslenska pólitík. Víst er að gamli kratinn nýtur enn persónufylgis í ákveðnum hópi krata sem telur sig hafa orðið illa útundan í Samfylking- unni. Þetta setur líka þrýsting á forystu Samfylkingarinnar að standa sig á næstunni. Svo gæti þvi farið að þetta væri sú vítamínsprauta sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þarf til að þjappa sínu fólki saman i bar- áttu komandi mánaða. Pað er rétt að hrósa frétta- stofu NFS fyrir áhugaverða frétt sem birtist í fyrrakvöld um þá stöðu sem getur mynd- ast á markaði ef einn aðili verð- ur of stór og sterkur. I fréttinni birtust viðtöl við verslunareig- endur sem töldu sig hafa farið illa út úr samkeppni við Baug á matvælamarkaði. Hér skal ekki lagður neinn dómur á ásakanir þeirra og hvort þær eru réttar eða rangar, en fréttin sjálf bend- ir til þess að ljósvakahluti 365 haldi enn sjálfstæði sínu gagn- vart eigendum og ber að fagna því. Annars á NFS hrós skil- ið fyrir margt. Þannig hefur stöðin náð að skúbba sam- keppnisað- ila sínum á mörgum sviðum og þættir eins og Kompás, sem gerðir eru af metnaði, þrátt fyrir að um eft- irlíkingu af 60 mínútum sé að ræða, hafa gætt stöðina lífi. Af öðrum ólöstuðum ber þó að hrósa Sigga stormi einna mest - hann hefur búið til alvöru veðurþjónustu þar sem hlutirn- ir eru settir fram á skýran og áhugaverðan hátt með grafík sem er mun betri en hjá sam- keppnisaðilanum. Snyrtu bara hliðarnar og hnakkann

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.