blaðið - 20.12.2005, Síða 10

blaðið - 20.12.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 blaðiö Benjamin Netanyahu ertalinn sigurstranglegastur í leiðtogakjöri Líkúdbandalagsins. Hér er hann ásamt konu sinni Söru á kjörstað í Jerúsalem í gær. Nýtt þjóðþing Afgana hefur störf: Fyrsta þjóðkjörna þingið í meira en 30 ár Fyrsta þjóðkjörna þing Afganistans í meira en þrjá áratugi var sett í gær. Hamid Karzai, forseti landsins, sagði að þingið væri til marks um samhug og væri mikilvægt skref í átt til lýð- ræðis. Hann viðurkenndi jafnframt að þjóðin stæði frammi fýrir meiri- háttar vandamálum svo sem fátækt, spillingu og hryðjuverkum. Helstu völd verða enn í höndum forsetans þó að þingið muni geta samþykkt lög og hafnað vali hans á ráðherrum. Ekki hefur verið þjóðkjörið þing í landinu síðan 1973 þegar áratuga óaldarskeið hófst í landinu í kjölfar valdaráns og innrásar Sovétmanna. „Afganistan stendur á ný á eigin fótum eftir áratuga skeið styrjalda og hernáms,“ sagði Karzai. 249 þingmenn eiga sæti á hinu nýja þingi og samanstendur hópur- inn meðal annars af leiðtogum ætt- bálka, fyrrverandi flóttamönnum, stríðsherrum, konum og fulltrúum ólíkra þjóðarbrota. Afganir kusu til neðri deildar þingsins í september og til héraðsráða. Héraðsráðin kusu síðan tvo þriðju þingmanna í efri deild og Karzai útnefndi þriðjung þingmanna þeirrar deildar. Með setningu þingsins lýkur formlega ferli sem staðið hefur yfir síðan í desember 2001 þegar mismunandi hópar komu sér saman um hvernig staðið skyldi að pólitískum um- skiptum í landinu. Því fer þó fjarri að stöðugleiki og öryggi ríki í land- inu og munu þingmenn sennilega öðru fremur vinna að þessum mála- flokkum á næstu vikum. Meðal gesta við þingsetninguna voru Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna og kona hans Lynne. Hamid Karzai, forseti Afganistans, sagði að hið nýja þing væri mikilvægt skref í átt til lýðræðis i landinu. Fljðtlegt að koma við og taka með sér rétti Græna línan, Bæjarhrauni 4, S:565-2075 Sarkozy ver orð sín Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, segir að hann hafi bar- ist af hörku fyrir réttindum þeirra fimm milljóna múslima sem talið er að búi í landinu og að óeirðirnar á dögunum hafi ekki haft neitt með íslam að gera. Sarkozy ræddi meðal annars óeirðirnar sem geisuðu í um þrjár vikur í borgum og bæjum Frakk- lands í viðtali við sjónvarpsstöðina A1 Jazeera á sunnudaginn. Kveikt var í þúsundum bíla og í opinberum byggingum í óeirðunum auk þess sem þúsundir manna voru hand- teknir. Sarkozy varði einnig lög um aðgerðir gegn hryðjuverkum sem nýlega voru samþykkt á franska þjóðþinginu. Múslimar í Frakklandi hafa lengi kvartað undan því að þeim sé mis- munað i samfélaginu og lifi í raun á jaðri þess. Sarkozy var á sínum tíma harkalega gagnrýndur fyrir að hafa kallað óeirðaseggina „óþjóðalýð“ en hann sagði í viðtalinu yfirleitt ekki nota slíkt orðbragð. „Eg nota yfir- leitt ekki götumál. Ég tala svo að allir skilji mig. 1 lýðveldinu sem ég bý í eru það óþokkarnir sem þurfa að standa skil á gerðum sínum en ekki innanríkisráðherrann," sagði hann. \ Omissandi fyrir allt áhugafóik um knatt- / / spyrnu EWi bœkur á tilboði Drukknir jólasveinar gera usla Fjörutíu drukknir jólasveinar gerðu usla í miðborg Auckland á Nýja Sjálandi á sunnudag, hnupluðu úr búðum og réðust á öryggisverði. Með athæfinu vildu þeir mótmæla markaðs- væðingu jólanna. Lögregla sagði ennfremur að sumir jólasveinanna hefðu fleygt frá sér bjórflöskum, einn þeirra hefði reynt að klifra um borð í ferju og annar ráðist á jólatré. Alex Dyer, skipuleggjandi uppákomunnar, sagði að mót- mælasveinarnir myndu ekki linna látum fyrr en einhver þeirra yrði handtekinn. Svipuð mótmæli hafa tíðkast í Banda- ríkjunum í um áratug. Lögregla sagði að helsti höfuðverkur hennar væri að komast að því hver hlutur hvers hinna fjörutíu rauðklæddu karla og kvenna hefði verið.„Þegar fjöldi fólks er eins klæddur er erfitt fyrir sjónarvotta að staðfesta hver gerði hvað,“ sagði fulltrúi lög- reglu við Reuters-fréttastofuna. og geróir Nicolas Sarkozy innanríkisráöherra Frakklands. Arftaki Sharons kjörinn Benjamin Netanyahu þótti sigurstranglegastur í leiðtogakjöri íLíkúdbandalaginu semfram fór ígœr. Ariel Sharon forsœtisráðherra hyggst ekki segja afsér þráttfyrir heilablóðfall. Félagar í Líkúdbandalaginu kusu sér nýjan leiðtoga í gær eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra, yfirgaf bandalagið og stofnaði eigin flokk, Kadima. Hins nýja leiðtoga bíður það vandasama verkefni að byggja flokkinn upp á ný en hann tapaði bæði fylgi og þingmönnum við brotthvarf Sharons. Þeir sem þykja líklegastir til að sigra í leiðtogakjörinu eru Benjamin Net- anyahu, fyrrverandi forsætisráð- herra og hinn tiltölulega hófsami Sil- van Shalom, utanríkisráðherra, sem ákvað að vera um kyrrt innan Líkúd- bandalagsins frekar en að ganga til liðs við flokk Sharon líkt og sjö aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni gerðu. Gæti komið til annarrar umferðar Aðrir hægrimenn, Israel Katz, land- búnaðarráðherra og Moshe Feiglin eru ekki taldir eiga raunhæfa mögu- leika á sigri en þeir gætu þó komið í veg fyrir að annað hvort Shalom eða Netanyahu hljóti meira en 40% atkvæða. Þá yrði að efna til ann- arrar umferðar sem færi fram eftir að minnsta kosti viku. Netanyahu hefur þráfaldlega mælst með afger- andi forskot á keppinauta sína í skoð- anakönnunum. I skoðanakönnun sem gerð var fyrir dagblaðið Maariv í síðustu viku sögðust 45,5% félaga í Líkúdbandalaginu ætla að greiða honum atkvæði sitt en aðeins 22% Shalom. Leiðtogakjörið fór fram aðeins degi eftir að Ariel Sharon, forsætis- ráðherra, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fengið heilablóðfall. Hann ætlar ekki að segja af sér og hyggst halda áfram í stjórnmálum þrátt fyrir áfallið. Er mikill kvíði, depurð eða þunglyndi að hrjá þig eða þína? Leitaðu aðstoðar. Leiðin út úr svart- nættinu erstyttri en þú heldur. Hafðu samband við heilsugæsluna, hringdu í Hjálparsímann 1717 eða leitaðu til Geðsviðs LSH eða FSA. Landlæknisembættlð

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.