blaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 12
12 I NEYTEWDUR
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 bla6Í6
Verð hœkkar
írá síðustu viku
Bensín hœrra en á sama tíma ífyrra
Þessa vikuna er ódýrasti lítrinn af
95 oktana bensíni á öllum afgreiðslu-
stöðvum Orkunnar á 107 krónur.
Hæsta verðið er á bensínstöðvum
Shell á Bæjarbraut og Bústaðavegi
en þar er lítrinn á 108,60 krónur.
Munurinn á hæsta og lægsta verði er
1,6 krónur. Séu þessar tölur bornar
saman við tölur síðustu viku má
sjá nokkra hækkun. Fyrir viku
var ódýrasti lítrinn hjá Orkunni
á 105,3 krónur og er því munurinn
OFN engum öðrum líkur I
á milli vikna 1,7 krónur á ódýrasta
bensíninu.
Magnús Ásgeirsson innkaupa-
stjóri eldsneytis hjá Essó segir nokk-
urn stöðugleika í þjóðfélaginu núna
og lítið hægt að spá um hækkanir eða
lækkanir á bensíni á næstu vikum.
„Bensínverð fer nokkuð eftir genginu
en ef það sveiflast til hefur það áhrif
á bensínverð. Það eru búnar að vera
mjög sérstakar aðstæður hjá okkur
undanfarna mánuði en bensínverð
náði hámarki í byrjun semptember
og var þá 122,70 krónur en í dag er
það 113,50 krónur. Þetta er lækkun
upp á 9,20 krónur. Hækkunin frá í
síðustu viku skýrist af hækkunum á
heimsmarkaðsverði. Áhrif frá húsa-
kyndingum í Bandaríkjunum hafa
ekki orðið eins miklar og búist var
við, í og með vegna þess að veður
hefur verið milt.“ Magnús segir að
þrátt fyrir að verð á bensíni hafi
lækkað mikið frá í september sé það
enn hærra en það var á sama tíma
í fyrra.
ÓB hefur opnað nýja bensínstöð
við Kirkjustétt 2-6 í Grafarholti. Eru
stöðvarnar nú orðnar 10 alls, þar
af eru 6 á höfuðborgarsvæðinu. Þá
opnaði Orkan nýtt útibú á Isafirði
síðastliðinn laugardag og er verð á
þeirri stöð það sama og á höfuðborg-
arsvæðinu eða 107 krónur.
ORKANj
OB
HverjU 1 1 eru odyr Samanburður á verð astir? i 95 oktana bensíns
AO Sprenglsandur 107,20 kr. Kópavogsbraut 107,20 kr. Óseyrarbraut 107,20 kr.
^eGO Vatnagarðar 107,10 kr. Fellsrmjli 107,10 kr. Salavegur 107,10 kr.
<g) Ægissíða 108,20 kr. Borgartún 108,50 kr. Stóragerði 108,50 kr.
Ánanaust
108,20 kr.
Eiðistorg
107,00 kr.
Arnarsmári
107,10 kr.
Ananaustum
107,00 kr.
Starengi
107,10 kr.
Gullinbrú
108,00 kr.
Skemmuvegur
107,00 kr.
Snorrabraut
107,10 kr.
Gylfaflöt
108,10 kr.
Er snöggur
Ekki þörf á loftræstingu
Eldar góðan mat
Tekur lítið pláss
Alltaf tilbúinn til eldunar
Einfaldur í notkun
Ódýr í rekstri
Borgar sig fljótt upp
www.turbochef.com
Veislu
og fundarbakkar
^^^QuiznoíSuB
Pantanir: 577 5775
Jólaaiöf veiðímannsins!
Veiðikortið 2006
Kortiö gildir sem veiðileyfi
123 veiöivötn vitt og breitt
um landið. Veiöikortiö er
fjölskylduvænt og stuölar
aö notalegri útiveru.
Ný vötn eru:
- Þingvallavatn fyrir landi
þjóðgarðs
- Ljósavatn
- Hraunsfjöróur
Nánari upplýsingar um önnur
vötn eru á vef Veióikortsins
www.veidikortid.is
Gefðu gleðilegt sumar í jólagjöf[
Sölustaðir: ESSO stöðvarnar - veiöibúöir og víðar
Frí heimsending á netpöntunum - www.veidikortid.is
€ssdj
Verðsamanburður á hollustu í heilsubúðum
Frœið með ódýrasta verðið
i þremur vöruílokkum
Af þeim upplýsingum sem blaða-
maður aflaði sér er nokkuð mikið
að gera í heilsubúðum borgarinnar
og greinilega margir sem muna eftir
hollustunni rétt fyrir jólin.
Gerður var verðsamanburður
fjögurra algengra vöruflokka
heilsubúða. Þetta voru grænmet-
iskraftur, möndlur, tahini og
sojamjólk. Nokkuð erfitt er að
gera verðsamanburð á þessum
vörum því þær eru seldar í mis-
stórum pakkningum og sum-
staðar eru margir vöruflokkar á
sömu vörum. Verð á möndlum
er t.d. miðað við 100, 150 eða
200 gramma pakkningar. Á
sumum stöðum voru möndlur
til í kílóapakkningum og bæði
til afhýddar og óafhýddar. í töfl-
unni er tekið verð af óafhýddum
möndlum. Grænmetiskraft var
hægt að kaupa gerlausan í Manni
lifandi og þá er verðið 295 krónur.
Á sama stað var hægt að kaupa
grænmetiskraft sem innihélt lítið
salt og þá var verðið 204 krónur.
Verð á tahini gat einnig verið mis-
jafnt eftir því hvort það var ljóst
eða dökkt. Það eina sem er alveg
eins milli búða er sojamjólkin en
þar er Fræið í Hafnarfirði með
ódýrustu mjólkina. Fræið var
líka með lægsta verð á grænmetis-
krafti og möndlum. Sojamjólk er
bæði til með og án kalks en verð-
munur á þessum vöruflokkum
var enginn.
Kristín Jónsdóttir verslunar-
stjóri í Heilsuhúsinu við Skóla-
vörðustíg segir sojavörurnar
alltaf vinsælar ásamt hunangi, líf-
rænt ræktuðum söfum, baunum,
fræjum, hrísgrjónum og tei.
hugrun@bladid. is
Grænmetiskraftur Möndlur Tahini Sojamjólk (1. líter) I
Heilsuhúsið 251-263 kr 406 kr(100gr) 276-289 kr 219 kr
Maður lifandi 185-295 kr 315 kr(150gr) 389 kr 217 kr
Yggdrasill 158 kr 342 kr(200gr) 330 kr 219 kr
Fræið i Fjarðarkaupum Hafnarfirði 149 kr 291 kr(150 gr) 349 kr 176 kr
ORMSSON