blaðið - 20.12.2005, Side 32
32 I AFPREYIWG
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 blaðiö
GameBoy
micro: ★★★^
Loksins
vasatölva
Allt frá því Nintendo hætti
að framleiða litlu King Kong
tölvuleikina sem gengu fyrir
tveimur flötum úrabatter-
íum hefur engin almennileg
vasaleikjatölva kom á mark-
aðinn. GameBoy Micro er sá
fyrsti.
109 SU DOKU talnaþrautir
Leiðbeiningar
Su Doku þrautin snýst um að
raða tölunum frá 1-9 lárétt
og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema
einu sinni íyrir í hverri línu,
hvort sem er lárétt eða lóðrétt.
Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan
hvers níu reita íylkis. Unnt er
að leysa þrautina út frá þeim
tölum, sém upp eru gefnar.
2 9 4 7 6
3 9
6 4 2
2 8 3 7
7 9 4 5 6 8
8 1 3 2
5 2 1
4 9
9 8 3 7 5
Lausn á siðustu þraut
8 6 2 5 9 1 7 4 3
7 9 1 2 4 3 6 5 8
3 5 4 8 7 6 2 9 1
1 4 9 7 6 8 5 3 2
2 7 3 4 1 5 9 8 6
5 8 6 3 2 9 4 1 7
4 1 8 6 5 7 3 2 9
6 3 5 9 8 2 1 7 4
9 2 7 1 3 4 8 6 5
Fullkominn
Calvin
Nú er búið
að taka
saman all-
ar Calvin
og Hobbes
mynda-
sögurnar
sem gefnar
hafa verið út. Herlegheitin
eru nokkur kíló að þyngd
en þau eru til sölu í Nexus.
Auðvitað er
PlayStationPorta-
ble leikjavélin alveg
hlægilega lítil miðað
við getu. En það er ekki
hægt að kalla hana vasaleikja-
tölvu nema maður gangi um
í alltof stórum buxum með
alltof stóra rassvasa. Microinn
er í raun minni en margir GSM
símar og þá er nú mikið sagt.
„Morö, leyndarmál og dökka hliðin á DC
heiminum."
Identity Crisis
Hátíð
Nintendo ákvað að hrista að-
eins upp í markaðnum með
Micro og halda þannig upp
á 20 ára afmæli Nintendo En-
tertainment System, upphaf-
legu Nintendo leikjatölvunnar.
Það má segja að verkefnið hafi
tekist mjög vel. Aldrei hafa
jafnmargir leikir verið til við
útgáfu leikjatölvu og núna
(sem er vegna þess að tölv-
an styður leiki úr eldri vél,
GameBoy Advance). Tölv-
an er minni en nokkur
önnur sem hefur komið
út en státar samt sem
áður af frábærum skjá,
björtum og skörpum.
Rafhlaðan er merkilega dug-
mikil þrátt fyrir smáa stærð og
er greinilegt að eitthvað gott
hlýst af GSM símum þar sem
hún er endurhlaðanleg.
Tilgangur
Auðvitað má efast um tilgang
GameBoy Micro. Það má búast
við því að þeir sem eiga leiki í
tölvuna eigi þegar GameBoy
Advance tölvu. Þessi tölva hef-
ur reyndar stærð og skjá um-
fram eldri tölvuna auk þess
sem hún er mun flottari. Hún
hefur lítið í PSP eða Nintendo
DS tölvurnar en líklega er ekki
hugmyndin að keppa við þær.
Það sem er nefnilega einna best
við Micro er að hún er svo þægi-
lega einföld.
Hvaö: GameBoy Micro
Verð: 8.900 krónur.
Leikir: Allir sem passa i GameBoy
Advance.
Best: Hentar fullkomlega í vasa.
Verst: Verð á leikjum (tæpar fimm
þúsund krónur).
„Frábær, stórkostleg. Besta manga sagan í
boði."
Fullmetal
Alchemist
„Þetta er alveg dásamleg sería"
Fables
Við leituðum til þeirra sem eru manna fróðastir á íslandi um myndasögur og báðum þá
um að mæla með nokkrum sögum sem vert er að skoða um jólin. Þetta eru sögurnar
sem Nexus mælir með.
agnar. burgess@vbl. is
Skráðu bílinn á
www.bilamarkadurinn.is
rrritt^',?^rrtr'ivrr
46 S •
Nexus velur Identity Crisis sem aðgengilegustu
ofurhetjusöguna. Það er metsöluhöfundurinn
Brad Meltzer sem skrifaði söguna.
Sagan hefst á því að kona einnar ofurhetju
finnst myrt. Málin vinda upp á sig þegar ofur-
hetjur verða sífellt hræddari um öryggi sitt og
fara í herferð til þess að finna morðingjann.
Gagnrýnendur eru yfirleitt mjög jákvæðir í
garð bókarinnar. Flestum finnst hún frábær
þótt nokkrum þyki hún ekki fylgja gömlum
sögum af ofurhetjum nægilega vel.
„Það er engin spurning um að þetta er besta manga
sagan“, segja Nexusmenn. Þeir virðast ekki vera
einir í heiminum þar sem að á vefsíðu Amazon
fær hún fimm stjörnur af fimm mögulegum.
Sagan er bæði dulræn og spennandi og segir frá
tveimur táningsbræðrum. Annar þeirra er með
tvo gervihandleggi meðan sál hins myndar varn-
arskjöld um hann. Bræðurnir vinna sem fulltrúar
ríkisstjórnarinnar við gullgerð. Höfundurinn Hir-
omu Arakawa þykir bera af öðrum mangahöfund-
um með þessari sögu.
Þessar sögur fjallar um að búið er að gera allar
helstu sögupersónur ævintýranna útlægar úr æv-
intýralandi svo þær þurfa að spjara sig á götum
New York borgar. Sem dæmi er fyrsta sagan morð-
sagan Hver drap Rauðhettu? Voru það grísirnir
þrír eða einhver annar? Hljómar e.t.v. eins og
kómedía en er skrifað af fúlustu alvöru. Á götum
borgarinnar finnum við vel þekktar persónur á
borð við Fríðu og Dýrið sem eiga í útistöðum við
lögin, prinsinn á hvíta hestinum neyðist til þess
að bjóða upp titilinn sinn meðan fyrrverandi kon-
an hans, Mjallhvít, stjórnar konungsdæminu.