blaðið - 20.12.2005, Side 38

blaðið - 20.12.2005, Side 38
38IFÓLK ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 blaöið AF SANNLEIK- ANUM OG SAMFÉLAGSKÝL- UM Blaöamenn DV stæra sig einatt af því í ræðu og riti að þeir séu nú eina blaðið á markaðnum sem stingi á samfélags- kýlin og upplýsi landann um það sem máli skiptir og það sem hinir fjölmiðlarn- ir hafi ekki þor til að gera. Stanslaus uppslátturá kynferðisafbrotamálum er til að mynda það sem DV byggir auknar sölutölur sínar á. Ekki að ritstjórn „þess annarságæta" blaðs finnist neitt athugunarvert við slíka sölumennsku, að þeirra mati er þetta ekki sensúalismi á lægsta plani heldur fyrirmyndar rann- sóknarblaðamennska, sem hin mesta þörf erfyrir í íslensku samfélagi. Svona horfir heimurinn ólíkt við fólki. Smáborgarinn hefur um langa hríðfylgst með blöðum landsins og þeim misjafna sauð sem þar skrifar. Á undanförnum árum hefur honum orðið það æ, Ijósara að hlutverk blaðamanna virðist fyrst og fremst snúast um að halda óttamörkum lesenda sinna lifandi og helst hrella þá sem mest, sérlega ef söluþörfin eykst. Þetta er auljóslega sölutækni ritstjórn- ar DV sem með hverri forsfðunni seilist lengra í sjokkinu. Smáborgarinn var enda sjokkeraður þegar hann las forsíðu DV í gær. Þvílíkt samfélagskýli að stinga á! Jólasveinninn er ekki til!, stóð þar stríðsletrað. Tækni- lega séð ber ritstjórn enga ábyrgð á þvi þar sem þetta var tilvitnun í síra Flóka Kristinsson, guðsmanninn sjálfan sem telur óraveg milli heilags Nikulásar og eigin trúarbragða. Jú, auðvitað spyr Smá- borgarinn sjálfan sig hvort skattpening- ar hans fari bara í tóma vitleysu þarna í háskólanum. Er ekkert kennt af viti í guðfræðinni? En á meðan síra Flóki messar hinn mikla „sannleika" yfir söfnuði sínum á Hvanneyri, sér ritstjórn DV ástæðu til að messa yfir landanum. Það breytir litlu hvort ritstjórn DV telur sig vera að upplýsa landann um hinn mikla sann- leika um sírann eða sveinka. Hvort sem heldur er fullkomin vantrú á eigin getu til að breyta heiminum. Gæslalappirn- ar eru bara tæknilegur útúrsnúningur til að firra sig ábyrgð. Sem er reyndar alveg í takt við lúalega framkomu blaða- manna DV almennt. Þeir hafa hingað til ekki skirrst við því að beita lygum til að upplýsa landann um sannleikann. Eða smyrja viðbjóðnum til að selja. Eða geng- ur þeim eitthvað annað til? HVAÐ FINNST ÞÉR? BMið/Frikki SigurðurM. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins Hvaö finnst þér um kaup Árvakurs í útgáfufélagi Blaðsins? „Blaðið getur ekki annað en batnað. Aftur á móti veit ég ekki hvað rak eigendur Blaðsins að selja Morgunblaðinu. En öll svona aukin keppni á milli fjölmiðla er af hinu góða þannig að það eru spennandi tímar fram- undan.“ Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, keypti síðastliðinn föstudag 50% hlut í útgáfufélagi Blaðsins. Clinton með skilaboð fyrir Elton Bill Clinton tók upp skilaboð í formi myndbands fyrir steggjapartíkvöld hjá Elton John. Myndbandið sem er mínúta að lengd verður spilað í hundrað þúsund króna kabarett-kvöldi Eltons, sem haldið verður á næt- urklúbbnum Too2Much í Soho-hverfinu í London. Þar munu gestir á borð við Sting og George Michael heyra hamingjuóskir Clintons, í tilefni þess að Elton gengur í það heilaga með kærastanum David Furnish næsta mið- vikudag. Clinton segir meðal annars: „Ef fleiri væru eins og Elton, myndi heimurinn vera betri staður.“ Kate og Jack fara í búðir Það er nóg að gera hjá Kate Moss um þessar mundir. Hún fór út að borða með nýj- um vini sínum, Lindsay Lohan fyrr í vikunni, og nú hefur sést til hennar að gæða sér á ís með öðrum nýjum vini. Hún dvelur í LA eftir að hafa nýlokið fyrirsætustörf- um þar og eyðir frítíma sínum með frægum vinum sínum eins og Jack Osbourne, sem nýverið hefur komið sér í gott form. Þau virtust þó ekki hafa miklar áhyggjur af hitaeiningum, og skófluðu í sig is í einni verslunarferðinni. Þau eiga bæði nýlega meðferð að baki og hafa sameiginlegan áhuga á ís, og þetta gæti því orðið hið besta vinasamband. Doherty gœti setið inni í sjö ár Pete Doherty, söngvari Babyshambles, á yfir höfði sér sjö ára fangelsisvist eftir að hafa verið tekinn fastur fyrir að hafa verið með eiturlyf, í þriðja skipti á þrem vikum. Farið var með Pete á lögreglustöð í London eftir að lögreglan stoppaði bíl hans klukkan átta að morgni. Við leit í bílnum fann lögreglan efni sem talin voru vera heróín og krakk, og í viðbót við aðrar kærur sem fyrir voru gæti rokkarinn þurft að dúsa í fangaklefa í allt að 7 ár fyrir þetta. Vinur hans sagði: „Þetta var dropinn sem fyllti mæl- inn fyrir lögregluna, og Pete má búast við því versta. Hann hefur tvisvar áður verið stöðvaður með eiturlyf en sloppið við það að greiða tryggingarfé. Nú eru þrjár kærur á hendur honum fyrir eign á heróini og krakki. Lögreglan tekur þetta grafalvarlega því hann brýtur ítrekað af sér, þótt hann hafi rétt áður sloppið með skrekkinn.“ eftir Jim Unger Þetta er fyrsta skemmtisiglingin mín. Vitið þið til hvers bjallan hringir? HEYRST HEFUR... öf lugri h e i m a - síðu Mannlífs ræðir Reynir Traustason ritstjóri um deildur Jón B a 1 d v i n s Hannibalsson- ar við fyrrverandi tengdason sinn: „Italski fréttastjórinn Marco Brancaccia á í stöðug- um bréfaskriftum við Sýslu- manninn í Borgarnesi þar sem hann segist ekki fá að tala í síma við dóttur sína. Italinn hefur undanfarin tvö og hálft ár átt í forræðisdeilu við barnsmóður sína, Snæfríði Baldvinsdóttur, dóttur Jóns Baldvins Hannibals- sonar. Brancaccia sakaði meðal annars Jón Baldvin um að hafa misnotað stöðu sína sem sendi- herra í Washington til þess að hjálpa dóttur sinni að nema barnið á brott frá Mexíkó. Síðar fékkhann sendiherrann dæmd- an fyrir meiðyrði í Héraðsdómi Reykjavíkur...” f VJfaldimar Wnokkur Birgisson > »stjóri Frétta- | blaðsins virð- j ist eiga mjög I bágt þessa dagana. Þann- ig hafa kaup Morgunblaðsins á helmingshlut í Blaðinu far- ið öfugt ofan í hann og sendi hann völdum aðilum tölvupóst í gærmorgun þar sem hrokinn og taugatitringurinn er aug- ljós. Þannig fordæmir hann samkeppnismiðlana og sparar ekki stóru orðin, eins og lenska er með þá sem óttast um eigin hag. Þannig reynir Valdimar þessi með öllum hætti að fegra eigið blað á kostnað annarra og fer í hefðbundnar hundakúnst- ir 365 miðla þegar kemur að samanburði á lestri blaðanna. Samkeppni er auðvitað ekkert nema böl - sérstaklega þegar fjarar undan eigin miðlum - eða hvað Valdimar? v i - on Group gengur vel og segir sagan að starfsmenn fyrirtækisins hafi fengið andvirði 50 þúsund króna í hlutabréfum í fyrir- tækinu í jólagjöf. Starfsmenn eru um 2500 þannig að hér er um umtalsverðar upphæðir að ræða. Félagið er einmitt að rata á markað á næstunni og hlýtur að teljast mjög álitlegur fjárfest- ingakostur, enda hafa Magnús Þorsteinsson og félagar verið að gera góða hluti þar innan- húss. Pað er spennandi að sjá hvort Baugur gerir alvöru úrþvíað ' kaupa Berlingske Orkla media, sem gefur meðal ann- ars út Berlinske Tidende í Dan- mörku. Kaupverðið nemurhins vegar um 90 milljörðum króna og fjölmiðlarekstur er langt frá því að vera áhættulaus. Hefð er fyrir fríblöðum í Danmörku og blöð eins og Metro liggja víða frammi. það er hins vegar óþekkt að þau séu borin í öll hús eins og hérlendis. Hvort að auglýsingamarkaðurinn í Dan- mörku ber slíkt blað á alveg eftir að koma í ljós - hugmynd- in er alla vega djörf en spurning hvort menn þora að taka þetta skref.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.