blaðið - 23.12.2005, Blaðsíða 20

blaðið - 23.12.2005, Blaðsíða 20
20 ITÍSKA FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 200S blaöiö Innblásturinn á bak við flíkina Danskir hönnuðir létu hugann reika þegar þeir fengu hugmyndir að haust- og vetrartískunni þetta misserið. Á bak við sérhverja flík hafa eflaust verið nokkrar andvökunœtur, mikið drukkið af latte og heilmikið farið á flóamarkaði eða gramsað í dótinu hennar ömmu gömlu. Hugmyndavinna erjú líka vinna. Ljóðunnandi rokkgellur Mads Norgaard Röndótt peysa úr kasmír ull og svart leðurpils með flottu belti. Algjört æðil Fatalína Mads Norgaard þetta árið kallast Rock’n’roll gentleman meets tough poetic gir, og innblásturinn er bæði Venus og grófar járnkeðjur. Mads var m.a. undir áhrifum hljómsveitarinnar The Strokes þegar hann hannaði fötin fyrir haustið. Hann las líka ljóð, skoðaði plexíglerliti og elstu styttu í heimi,;stytt- una af Venus frá Willendorf, en hún minnir hann alltaf á að hafa fötin sín kvenleg og „sensual". Fötin frá Mads Norgaard fást í yfir 300 verslunum víða um heim, en m.a. í: Norgaard á Strikinu í Kaupmannahöfn, Caroll og Carmen í Árósum og Huset Ollie í Esbjerg. Venus frá Willendorf minnir Mads Nergaard á kvenleika og mýkt. Hér má sjá félagana í The Strokes, en þeir eru flestir Harvard gengnir menntamenn og synir tískumógúla. Svonefndir"trendsetters". 1 1 llj 1 ~1 ($ófium ö££um aMwc uidðftiptauimun g£edi£egxa jó£a TÍSKUVERSLUNIN Smart Grímsbæ viö Bústaöarveg • Ármúla 15 Hafnarstræti 106 600 Akureyri Sími 588 8050/588 8488/462 4010 email: smartgina@simnet.is Optitií 23.CC Glæsileg, sjálfsörugg og kynþokkafull Sand tMPÉRfÁL Lene Sand segist alltaf hafa gallabuxur á vinnuborðinu hjá sér til að minna sig á að allt sem hún hannar á að fara vel við gallabuxur. Skyldu hundrað og fimmtíu tískuhamstrar hafa boðið sig fram til slátrunar þegar þessi glæsilegi pels var framleiddur? Nei, varla. Innblásturinn að litadýrðinni í haustlínu Lene Sand má rekja til uppáhalds kampavínsins hennar: Möet & Chandon. Grænt, gyllt, svart, og rautt- mé® Línan er dramatísk og seiðandi líkt og koltvísýringur í kampa- vínsglasi. Hún er fyrir dömur sem eru sjálfsöruggar og „extravag- ||' ant“ eins og uppáhalds fyrirsæta Lene Sand, Nadia Auermann, fpr en mynd af henni hangir uppi á vegg á vinnustofu Lene; glæsileg, || sjálfsörugg og kynþokkafull. Föt frá Lene Sand fást m.a. hjá: Jóni Ásgeiri í Magasin og Illum og Sand Concept store í Odense. Möet & Chandon kampavínið veitti innblástur við litaval ■* á haustlínu Sand. Ostrur og rósarunnar gætu verið innblásturinn að litavalinu í þessum flikum. Fyrirsætan Nadia Auermann er holdgerfingur kynþokka, sjálfsöryggis og þokka i augum hönnuðarins Lene Sand.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.