blaðið - 23.12.2005, Page 38
38IFÓLK
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2005 blaðiö
JOLASNOBB
Þar sem Smáborgarinn er snobbaður
verslar hann hvergi annars staðar en
í miðbænum; verslanamiðstöðvar
úthverfanna með sínum skarkala og Næl-
ontónleikum heilla lítið og valda jafnvel
önuglyndi. Áreitið verður of mikið. Einar
Bárðarson, Nælon og Ædolstjörnurnar
láta Laugaveginn blessunarlega í friði.
Á þessum árstíma er helst að vænta þar
fagurlega klæddra lúðrasveita og kóra
sem syngja jólasálma og -lög.
Fáum ætti því að koma á óvart að þeg-
ar Smáborgarinn brá sér í jólagjafaleið-
angur um daginn valdi hann miðbæinn.
Jólin enda að koma og fátt notalegra en
að klæða sig upp í fallega kápu og trefil,
skunda milli verslana og finna varning
fyrir vini og vandamenn. Við slík tækifæri
hefur Smáborgarinn og gaman af því að
bregða sér á kaffihús og gæða sér á
kakóbolla þegar samverkun gjafapokans
og þyngdaraflsins er farin að hafa þrúg-
andi áhrif á hendur hans og lendar.
Smáborgarinn er annars Ktið fullkom-
inn og hefurviðsig ýmsa lesti sem teljast
vart mannsæmandi. Einn þeirra verstu er
sú unun sem hann hefur af tóbaksreyk-
ingum. Hefði Smáborgarinn haft glóru
í kollinum á unglingsárum hefði hann
vitaskuld aldrei tekið upp á ósiðnum, en
fyrst hann hafði fyrir því að byrja á sínum
tíma þýðir lítið að kvarta. Öll höfum við
okkar lesti, sumir borða kokteilsósu í öll
mál, aðrir beita ofbeldi þegar þeir fara í
vont skap og sumir, þeir reykja.
Þegar Smáborgarinn bregður sér á
kaffihús íjólagjafaöngþveitinu og gæðir
sér á kakóbolla finnst honum þvi hressi-
legt reykja með. Hann reykir og virðist
ekki einn um. Á þeim húsum sem hann
stundar eru reyksvæðin undantekningar-
laust fullsetin, meðan hin lögvernduðu
reyklausu standa auð og yfirgefin. Nú
virðir Smáborgarinn rétt samborgaranna
til þess að anda að sér heilbrigðu lofti í
reyklausu umhverfi - hefur engan áhuga
á þvi að smita þá af sínu krabbameini
- og reynir að sýna þeim eins mikla tillits-
semi og auðið er. Því finnst honum reyk-
laus kaffihús prýðileg, svo og reyklaus
svæði. Hann er hins vegar þeirrar skoðun-
ar að rekstraraðilum þeirra ætti að vera
í sjálfvald sett að ákvarða eigin stefnu í
þessum málum - þeir sem stunda svona
staði eða vinna þar eru undantekningalít-
ið sjálfráða og ætti því að vera treystandi
til þess að ákveða hversu mikinn reyk
þeir vilja vaða, ef einhvern.
HVAÐ FINNST ÞER?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor.
Hvað finnst þér um skötuna?
„Mér finnst skatan góð, þó ekki kæst. Ég kann betur að meta hana mat-
reidda á óhefðbundinn hátt eins og maður fær hjá Rúnari Marvinssyni á
veitingastaðnum Við Tjörnina. En mér finnst skemmtileg hefð að borða
skötuna á Þorláksmessu enda er ég hlynntur þjóðlegum siðum.“
BlaOiO/Steinar Hugi
I dag, á Þorláksmessu, flykkjast fslendingar I skötuveislur um allt land.
Mariah hafnar
lúxusnum
Mariah Carey hefur oft verið kölluð „díva“, en engu að síður er þó ein lúxus-
vara sem hún hafnar alfarið og það eru loðfeldir. Þannig fór líka um átta loð-
pelsa sem hún fékk senda frá rússneskum viðskiptajöfri á dögunum. Hann
vildi gefa henni einn pels fyrir hvern vikudag og einn spari en Mariah var
ekki spennt fyrir því. Hún sendi góssið allt beint tiJ Peta-samtakanna gegn
valdníðslu á dýrum. I framtíðinni er líkast til betra að gefa Mariuh eitthvað
annað, demanta, kampavín, eða kannski sokkapar?
Aniston vill verða
2006
Leikkonan Jennifer Aniston hefur ákveðið að hún ætli að eignast barn innan
árs. Hinn fyrrverandi vinur er á föstu með mótleikara sínum úr bíómynd-
inni The Break Up, Vince Vaughn, en hún skildi við Brad Pitt í október. Á
meðan fréttir berast frá Pitt um að hann standi í ættleiðingu barna Angelinu
Jolie tekur Aniston þá ákvörðun að hún vilji sín eigin börn. Hún segir: „Ég
vona að ég eignist mína eigin fjölskyldu á næsta ári. Ég hef sagt þetta áður,
og vil ekki endurtaka það, en mér líkar bara vel við að vera í góðum félags-
skap.“
Skilnaður Renée
Zellweger endanlegur
Renée Zellweger og Kenny Chesney eru aftur orðin einhleyp. Búið er að
ógilda giftinguna og báðir aðilar því einstæðir á ný. Zellweger sem er 36 ára,
og Chesney sem er 37, hittust í janúar, giftust í maí og skildu í september,
þegar leikkonan sótti um ógildingu hjónabandsins. Þetta er fyrsta hjóna-
band þeirra beggja og þau eignuðust engin börn.
auglysingarc vblis
Ég var að kaupa batteríspakka.
Svo stendur á honum:„Rafhlöður ekki innifaldar."
HEYRST HEFUR...
Kjaradóm-
ur um
launahækkun
æðstu embætt-
ismanna hefur
valdið veruleg-
um kurr í þjóðfé-
laginu og komst
langleiðina með að eyðileggja
jólin fyrir fjölda manns. Einar
Oddur Kristjánsson, Vestfjarð-
argoði og varaformaður fjár-
laganefndar, hefur lýst þeirri
skoðun að kalla beri þingið
saman í skyndi til þess að af-
nema kjaradóminn með lögum.
Mörður Árnason tekur undir
með Einari Oddi á heimasíðu
sinni (www.mordur.is). Hann
segir að Halldór Ásgrímsson,
forsætisráðherra, eiga að biðja
forseta um að kalla saman
þingið milli jóla og nýárs til að
ræða kjaramálin í ljósi hins nýja
kjaradóms. Þá þurfi auðvitað
að ræða einnig almenn kjara-
mál, sérstaklega hvernig hælcka
megi láglaun kvennastétta við
umönnun, án þess að sú hækk-
un verði gerð marklaus með því
að allir aðrir hækki í leiðinni.
Lýsir Mörður því yfir að geti af-
nám kjaradóms hjálpað til þess
sé augljóst að stjórnarandstöðu-
flokkarnir muni eldd liggja á
liði sínu...
Nokkrar
vanga-
veltur eru
uppi um
það að Ey-
þór Arnalds
hyggist taka
áskorun sjálf-
stæðismanna
í Árborg og gefa kost á sér til
þess að leiða listann þar í kom-
andi sveitarstjórnarkosningum.
Fleira mun þó á döfinni í fjórð-
ungnum, því sjálfstæðismenn
í Suðurkjördæmi, sem nær allt
frá Reykjanestá austur að Höfn
1 Hornafirði, eru þegar farnir
að kvíða næstu þingkosning-
um. I síðustu kosningum beið
flokkurinn afhroð eftir mál
Árna Johnsen og ekki löngu
eftir kosningar lést efsti maður
flokksins í kjördæminu, Árni
Ragnar Árnason, eftir hetju-
lega baráttu við krabbamein.
Þrátt fyrir að sunnlenskir sjálf-
stæðismenn séu í sjálfu sér ekki
óánægðir með þingmennina
sína mun það viðhorf vera al-
mennt að flokkinn vanti afger-
andi forystumann í kjördæmið.
Munuýmsirframámenn flokks-
ins hafa leitað til Árna M. Mat-
hiesen, fjármálaráðherra, og
farið fram á það að hann taki
kjördæmið að sér og hefji það
til fyrri vegs og virðingar. Er
á það bent að hann hafi í senn
menntun og reynslu til þess að
skilja öðrum þingmönnum bet-
ur landbúnað og sjávarútvegs-
mál...
Samfylldngarmenn eruorðn-
ir enn ókyrrari en áður eftir
að birt var skoðanakönnun IMG
Gallup, sem gerð var fýrir Björn
Inga Hrafnsson, vonarstjörnu
framsóknarmanna í Reykjavík.
Þar kom fram að flokkurinn
er aðeins með rétt rúmlega 25%
stuðning í Reykjavík. Sumir
mátu það sem svo að loksins væri
tekið að hægjast á fylgishruni
flokksins, sem hefur verið viðvar-
andi frá því að I ngibjörg Sólrún
Gísladóttir tók við formennsku.
Því er hins vegar ekki þannig
farið, því niðurstöðurnar benda
til þess að enn sé að kvarnast af
flokknum. Reykjavíkhefur ávallt
verið langsterkasta vígi Samfylk-
ingarinnar og fylgið þar jafnan
talsvert yfir landsmeðaltalinu...