blaðið - 13.01.2006, Qupperneq 2
2 I IWMLEWDAR FRÉTTIR
FðSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 blaðiö
blaðiðHB
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 5103700* www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Kauphöllin:
Dagsbrún
lækkar enn
Gengi hlutabréfa Dagsbrúnar, móð-
urfélags DV, féll um o,86% í gær og
mældist það næst mesta lækkun
dagsins. Þetta er annar dagurinn í
röð sem gengi Dagsbrúnar fellur en
í fyrradag lækkuðu hlutabréfin um
3,17%. Alls hafa því hlutbréf Dags-
brúnar fallið um rúm 4% frá því að
markaðurinn opnaði síðastliðinn
miðvikudag.
Vísitala neysluverðs:
Matvæli hækka og verðbólgan með
Vísitala neysluverðs hefur hækkað um tœpt hálft prósentustig. Matvœli og húsnœði vega
þar þungt.
Verðbólgan í janúar mælist 4,4%
samkvæmt útreikningum Hagstof-
unnar. Vísitala neysluverðs hefur
hækkað um nærri hálft prósentustig
síðan í desember. Hækkanir á mat-
vöru- og húsnæðismarkaði vega þar
þungt. Forstjóri Haga segir harða
samkeppni ríkja á matvælamarkaði
en að verðlækkanir hafi að hluta til
gengið til baka.
Lækkun gengin til baka
Vísitala neysluverðs mældist um
249,7 stig í janúar samkvæmt mæl-
ingum Hagstofunnar. I desember
var vísitalan 248,9 stig og því nemur
hækkunin 0,8 stigum eða 0,32%.
Mestu áhrif til hækkunar er 2%
hækkun á matarverði og þá hefur
húsnæðisliðurinn hækkað um 2,1%
á milli mánaða. Athygli vekur að sé
húsnæðisliðurinn ekki tekinn inn
í mælinguna lækkar vísitalan um
0,22%. Þá vega vetrarútsölur í versl-
unum þungt til lækkunar vísitölu en
verð á fötum og skóm hefur lækkað
um 10,3% frá því í síðustu mælingu
í desember. I fréttatilkynningu frá
Alþýðusambandi Islands segir að
greinilegt sé að verðlækkanir síðast-
Verðlækkanir á matvörum á síðasta ári hafa aö mestu gengið til baka.
Blaðiö/Steinar Hugi
liðið vor, í kjölfar verðstríðs lágvöru-
verslana, séu að ganga til baka. Á
fyrstu sex mánuðum síðasta árs hafi
matvara lækkað um 8% en síðan þá
hefur hún hækkað um 6%. Þá er því
spáð að eftir að vetrarútsölum ljúki
muni verðbólgan taka frekari kipp
upp á við.
Lágvörukeðjur styrkja stöðu sína
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
segir að þó að verðlækkanir fyrra árs
hafi gengið eitthvað til baka sé mat-
vöruverð núna lægra heldur en það
var í janúar á síðasta ári. „Verðlækk-
unin hefur þó ekki gengið til baka
að fullu. Það kemur fram í gögnum
Hagstofunnar að það er lægra verð á
matvöru núna í janúar heldur en á
sama tíma í fyrra þrátt fyrir að hér
hafi hækkað verðlag á nánast öllu
sem hægt er að nefna.“ Finnur segir
að samkeppnin á markaðinum sé
afar hörð og í kjölfar verðstríðsins
í fyrra hafi lágvörukeðjur styrkt
stöðu sína. „Það sem gerðist á fyrri
hluta síðasta árs fram á mitt ár er að
það var verið að gefa vörur. Lítri af
mjólk, sem kostar tæpar 80 kr., var
gefinn eða seldur á eina krónu. Vísi-
tala sem mælir það hlýtur að segja
ákveðið. Ég held að frá janúar til maí
hafi lækkun á vísitölunni verið 12
til 13% á meðan kostnaður verslana
hefur verið að aukast og það gefur
alveg auga leið að það er ekki tekið
af neinu nema álagningunni, og þar
var ekki svigrúm fyrir."
Álframleiðsla: .
Island stærst
Island verður eitt helsta álfram-
leiðsluland í heimi árið 2008
samkvæmt áætlunum KB-banka
um álframleiðslu hér á landi. Með
byggingu álvers á Reyðarfirði mun
árleg framleiðslugetan hérlendis
tvöfaldast og verða alls um 760 þús-
und tonn. Þá kemur fram að verði
af byggingu álvers á Norðurlandi á
vegum Alcoa og álvers í Helguvík
mun árleg framleiðsla á íslandi
nema um 1.350 til 1.400 tonnum
sem er um 6% af heimsframleiðslu.
JJndirskriftarlisti:
Tugir þúsunda skrifa undir
Tugir þúsunda höfðu ritað nöfn
sín á undirskriftarlista í gærkvöldi
þar sem skorað er á blaðamenn
og ritstjóra DV að endurskoða
ritstjórnarstefnu sína og sýna ábyrgð
og virðingu í umfjöllun um menn
og málefni. Stjórn Dagsbrúnar fær
listann afhentan í dag.
Mikill atgangur
Byrjað var að safna undirskriftum
rétt fyrir hádegi síðastliðinn
miðvikudag og á fýrsta degi
höfðu um tuttugu þúsund manns
Má bjóða þér í te?
4 glænýjar, ilmandi og dásamlegar gerðir af
Zhena's GypsyTea.
Kynning í
Fjarðarkaupum
ídag
Föstudag 13 jan.
kl. 15 - 18
tekið þátt. Fleiri bættust svo
við í gær en um sexleytið höfðu
26.918 manns skráð nafn sitt á
listann. Það eru ungliðasamtök
stjórnmálaflokkanna, ásamt
námsmannasamtökum víðs vegar
um landið, sem standa að þessari
undirskriftarsöfnun. Svo mikill var
atgangurinn á tímabili að netþjónn
söfnunarinnar stóðst ekki álagið og
lá niðri af þeim sökum í tæpar þrjár
klukkustundir í fyrradag.
Rosaleg viðbrögð
Borgar Þór Einarsson, forsvars-
maður söfnunarinnar, segir
viðtökurnar hafa farið fram úr
öllum væntingum, sérstaklegaþegar
horft er til þess hversu lítið listinn
var kynntur. „Á þessum hraða
förum við alla vega yfir 25 þúsund
manns. Norðurljósasöfnunin, í
tengslum við fjölmiðlafrumvarpið,
stóð yfir í þrjár vikur og þar voru
starfsmenn fyrirtækjanna á fullu
að kynna málið og þeir náðu
29.300 manns, þannig að þetta eru
rosaleg viðbrögð." Borgar segir að
í gærdag hafi um 11 til 13 manns
Um 27 þúsund manns höföu tekið þátt f
söfnuninni um sexleytið í gærkvöidi.
skráð sig á hverri mínútu en stuttu
áður en netþjónninn hrundi á
miðvikudaginn voru um 60 manns
að skrá sig á mínútu. „Maður
finnur fyrir þörf til að bregðast
við og þetta fannst okkur það
eðlilegasta sem lýðræðisleg samtök
gætu gert í opnu lýðræðislegu
samfélagi. I stað þess, eins og menn
hafa reynt áður, að hafa hemil á
fjölmiðlum með lagasetningu, þá
er miklu áhrifameira ef samfélagið
sjálft bregst við með þessum
hætti.“ Að sögn Borgars verður
undirskriftarlistinn afhentur stjórn
Dagsbrúnar í dag.
Hagkaup og Bónus:
Auglýsinga-
skilti fjarlægð
Öll auglýsingaskilti með forsíðu
DV voru fjarlægð úr verslunum
Bónus og Hagkaupa í gær. Að sögn
forsvarsmanna fyrirtækjanna var
gripið til þessara ráðstafana til þess
að verða við óskum fjölmargra
viðskiptavina sem höfðu lýst yfir
óánægju sinni með umrædd skilti.
Ekki er búið aðllLaka ákvörðun um
það hvort að þaij verði sett upp síðar.
Olíufélögin:
Bensín hækkar
Atlantsolía hækkaði eldsneytis-
verð hjá sér í gær um 1,50 kr. á
lítrann. I kjölfarið íylgdu svo Orkan
og ÓB. Olíufélögin Esso, Olís og
Skeljungur hækkuðu öll eldsneytis-
verð hjá sér í fyrradag um tæpar
2 krónur. Skýringin er hækkun
olíuverðs á heimsmörkuðum.
O Helðskirt (3 Léttskýjað Skýjað Alskýjað ✓ ^ Rignlng, lltilsháttar Rlgning 7 7 Súld * Snjókoma yý S^da Snjððl JJ Skúr
Amsterdam 02
Barcelona 09
Beriín -01
Chicago 02
Frankfurt 01
Hamborg 01
Helsinki 01
Kaupmannahöfn 01
London 06
Madrid 07
Mallorka 12
Montreal 01
NewYork 05
Orlando 14
Osló 03
París 04
Stokkhólmur 01
Þórshöfn 08
Vfn -01
Algarve 14
Dublin 09
Glasgow 09
-3°
Breytilegt
QL*^
*
0'
■ ?
Breytilegt
*
/ /
✓ -/
^-3°
5° '
-4° *
* ///
///
:* **
Ámorgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 302 0600
Byggt ó upplýsingum frá Veðuretofu (slands
* Breytilegt *? *?
20 . OO'F T vlf
-3 -9°
.,0
** -3
*
0
&