blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 30
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 blaöið Toyota Hilux D/C 30 l ÍPRÓTTIR DHL-höll KR á morgun: Stjörnuhelgi körfuboltamanna árg 1992 ekinn 196 þús km. Bensín vél. Óryðgaður og flottur bíll. Myndir á www.bilapartar.is eða uppl í síma 893-6404 SCANIA 94 H Árgerð 2001 Ekinn 108 þús km Iferð: 4.300.000 SUBARU LEGACY GL 2000 Árgerö 1998 Ekinn 122 þús km. Verd: 790.000 kr MITSUBISHIL200 DOUBLE CABGLSDÍSEL TURBO Árgerð 2004 Ekinn 39 þús km. I/erð: 2.590.000 kr Á morgun verður mikið um að vera hjá körfuboltamönnum hér á landi. Um er að ræða svokallaða Stjörnu- helgi þar sem bestu leikmenn íslands í karla-og kvennaflokki leika gegn úrvalsliði erlendra leikmanna. Iþróttafréttamenn völdu byrjunarlið karla hjá báðum liðum, auk tveggja varamanna, þ.e.a.s. lið íslenskra leikmanna og lið erlendra leikmanna. Þjálf- arar liðanna í Stjörnuleik karla, Einar Árni Jóhannsson með lið íslenskra leikmanna og Herbert Arnarson með lið erlendra leik- manna, völdu siðan þá leikmenn sem upp á vantaði. I Stjörnu- leik kvenna völdu Guðjón Skúla- son, landsliðsþjálfari, og Ágúst Björgvinsson þjálfari Hauka leikmenn liðanna. Guðjón valdi úrvalslið íslenskra leikmanna en Ágúst valdi úrvalslið erlendra leikmanna með styrkingu frá íslenskum leikmönnum. Að auki verður þriggja stiga skotkeppni karla og kvenna og svo verður troðslukeppni karla. Há- tíðin hefst á morgun klukkan 13.30 með Stjörnuleik kvenna. Herleg- heitin fram í DHL-höll KR-inga. Lið íslenskra leikmanna í karla- flokki var valið af íþróttafrétta- mönnum sem og af Einari Árna Jóhannssyni þjálfara Njarðvíkur. Stjörnuleikur karla Lið íslenskra leikmanna: t. Ingvaldur Magni Hafsteinsson - Snæfell 2. Páll Axel Vilbergsson - UMFG 3. Egill Jónasson - UMFN 4. Hörður Axel Vilhjálmsson - Fjölnir 5. Brynjar Þór Björnsson - KR 6. Pálmi Freyr Sigurgeirsson - KR 7. Jóhann Árni Ólafsson - UMFN 8. Steinar Kaldal - KR 9. Ómar Sævarsson - |R 10. Kristinn Jónasson - Haukar 11. Þorleifur Ólafsson - UMFG 12. Pétur Már Sigurðsson, Skallagrímur Lið erlendra leikmanna: 1. OmariWestley-KR 2. AJ Moye - Keflavík 3. George Byrd - Skallagrímur 4. Jeb Ivey-UMFN 5. JeremiahJohnson-UMFG 6. Nemanja Sovic - Fjöinir 7. EugeneChristopher-Höttur 8. TheoDixon-ÍR 9. Jovan Zdravevski - Skallagrímur 10. Igor Beljanski - Snæfell 11. Clifton Cook - Hamar/Selfoss 12. Dimitar Karadzovski - Skallagrímur Rétt er að geta þess að nokkrir leik- menn gátu ekki tekið þátt vegna ým- issa ástæðna en leikmennirnir eru: Brenton Birmingham, Friðrik Stefáns- son, Arnar Freyr Jónsson, Magnús Gunnarsson, Jón N. Hafsteinsson, Fannar Ólafsson og Nate Brown. Stjörnuleikur kvenna Guðjón Skúlason valdi eftirtalda leikmenn: 1. Helena Sverrisdóttir, Haukar 2. Hildur Sigurðardóttir, UMFG 3. Bima I. Valgarðsdóttir, Keflavík 4. María B. Erlingsdóttir, Keflavík 5. Þórunn Bjarnadóttir, IS 6. Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukar 7. Pálína M. Gunnlaugsdóttir, Haukar 8. Jovana L. Stefánsdóttir, UMFG 9. Ólöf H. Pálsdóttir, UMFG 10. Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík 11. Alma Rut Garðarsdóttir, UMFG 12. Stella Rún Kristjánsdóttir, fS Ágúst Björgvinsson valdi eftirtalda leik- menn: 1. Meagan Mahoney, Haukar 2. Larkiste Barkus, Keflavík 3. Erica Anderson, Breiðablik 4. Meagan Hoffmann, Breiðablik 5. Vanja Pericin, KR 6. TamikkiWilliams, UMFT 7. Svava Stefánsdóttir, Keflavík 8. Hanna B. Kjartansdóttir, fs 9. Telma B. Fjalarsdóttir, KR 10. Sigrún Ámundadóttir, Haukar 11. Ema Rún Magnúsdóttir, Grindavík 12. Rannveig Randversdóttir, Keflavík Til vara: Petrúnella Skúladóttir, UMFG Hanna Hálfdánaróttir, Haukar karate VINSÆLU BYRJENDA- NÁMSKEIÐIN ERU AÐ HEFJAST! ALLAR UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á WWW.BREIDABLIK.IS/KARATE IjlíjjUjM Karatedeild Breiðabliks Lafleur útgáfan Óskar eftir dugmiklum sölumanni í háifa eða fulla stöðu. Upplýsingar fást gefnar í síma: 552-8255 FRJALST blaóió Jói Kalli til Alkmaar Yfirgnæfandi likur eru á að landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Jóhannes Karl Guðjónsson, sem leikið hefur með enska liðinu Leicester City, sé á förum til Hollands. Samningur Jóhannesar Karls við Leicester rennur út næsta sumar og hann hefur þvi leyfi til að semja við önnur lið þrátt fyrir að vera enn á samningi við Leicester. Forráðamenn enska liðsins hafa enn ekki boðið Jóhannesi áframhaldandi samning og því fátt um annað að ræða fyrir pilt en að koma sér til annars félags. Um er að ræða hollenska félagið AZ Alkmaar, en með því liði spilar landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson og hann hefur verið að gera fína hluti með liðinu. AZ „Alkmaar er í þriðja sæti hollensku deildarinnar með 38 stig, en á einn leik til góða á toppliðin PSV Eindhoven, sem er með 42 stig, og Feyenoord, sem er með 41 stig. “Við erum í samningaviðræðum og þær eru á lokastigi. Það er nógur tími framundan en samningurinn tekur ekki gildi fyrr en í sumar. Ég reikna með að frá þessu verði gengið í næstu viku,” sagði Jóhannes Karl í samtali við Blaðið í gær. En af hverju að fara frá Englandi? “Það er vegna þess að þarna eru mjög spennandi hlutir að gerast og þeir gerðu mér virkilega gott tilboð og það er þokkalega góð trygging í þessum samningi, ef af þessu verður, sem eru miklar líkur á. Þeir eru í þriðja sæti sem gefur sæti í forkeppni Meistaradeildarinnar”, sagði Jóhannes Karl Guðjónsson. Víst er að að lið AZ Álkmaar er miklu mun betra fótboltalið heldur en Leicester. Alkmaar er í þriðja sæti og er enn með í Evrópukeppni félagsliða en Leicester er í fjórða neðsta sæti ensku í.deildarinnar. Siglingar: Besta á mót erlendis Áhöfnin á seglskútunni Besta, sem ein- okaði öll helstu mótin hér á landi síð- astliðið sumar, hefur skráð sig til leiks á móti í Frakklandi. Þetta er í annað sinn sem Besta-menn fara erlendis til keppni í alþjóða móti og í bæði skiptin fara þeir á sama mótið. Um er að ræða mót sem heitir Skippers d’Islande og hefst þann 24. júní með siglingu frá Paimpol á Bretagne skag- anum í Frakklandi. Það verður haldið beinustu leið yfir til Reykjavíkur. I ár verður hluti af keppninni um ísland en frá Reykjavík verður siglt til Grundafjarðar. Þriðji hluti keppn- innar verður svo frá Grundarfirði og aftur til Paimpol í Frakklandi. Árið 2000, þegar áhöfnin á Besta tók þátt í þessari keppni, voru þeir ekki á eigin bát, heldur leigðu sér bát í keppnina en nú verður sem sagt keppt á eigin seglskútu. Keppnin á Skippers d’Islande er haldin þriðja hvert ár og nú þegar hafa 22 seglskútur verið skráðar til leiks.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.