blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 38
38IFÓLK FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MaðÍA SMÁBORGARINN Á SÉR DRAUM Nú er kominn sá tími árs sem Smá- borgaranum finnst leiðinlegastur. Kannski er þetta vottur af skamm- degisþunglyndi sem hrjáir Smáborg- arann en hann vill helst að tíminn frá miðjum janúar og fram í mars líði sem hraðast. Samt er það nú ekki svo slæmt að Smáborgarinn þurfi að vera veikur heima vegna vanlíðunar þessa mánuði, né er það svo að hann geti ekki glaðst. Nei, þannig liggur ekki í því. Þetta eru bara leiðinlegir mánuðir, það er svo einfalt. Það er aldrei neitt að gerast og ekkert skemmtilegt framundan. Eina Ijósið í þessu öllu er að febrúar er mjög stuttur. Svo þegar mars rennur upp tekur Smáborgarinn gleði sína á ný, enda sumarið framundan og enda- laus hamingja. Þegar Smáborgarinn er kominn á eftirlaunaaldur mun hann eflaust vera einn af þeim sem kaupir sér hús á sólarströnd til að eyða þessum leiðinlegu mánuðum á. Smáborgarinn er reyndar þegar búinn að ákveða hvar húsið á að vera. Draumurinn er að kaupa sumarhús á Iftilli danskri eyju sem heitir Samso. Eyjan er reyndar ekki sólarströnd en það er samt ansi huggulegt. Minn- ugir muna kannski eftir þáttunum Strisser pá Samso sem Ríkissjónvarp- ið sýndi hér um árið. Slíkir þættir sýndu þó ekki veruleika Samso því Smáborgarinn efast um að nokkurn tímann hafi verið framið morð þar. Samse er einkar yndisleg eyja sem hefur að geyma allt gott og fallegt f þessum heimi. Þegar stigið er á land á Samse er veifandi fólk það fyrsta sem sést enda Sams0-búar sérstak- lega vinalegir. (raun er eins og mað- ur hafi færst nokkur ár aftur f tfmann þegar dvalið er á Samso, enda and- inn eftir þvf. Það má, í fullri alvöru segja, að Samso sé falda leyndarmál Danmerkur. Eyjan er það Iftil að það er hægt að hjóla hana alla á einum degi. Þar er margt fallegt að sjá og ansi margt sem minnir á gamla tíma ; í Danmörku. Fáir vita eflaust að á Samso er talað sér tungumál þó vit- anlega tali allir dönsku reiprennandi. Margir eiga góðan stað sem þeir hugsa til þegar lífið er erfitt, Smá- borgarinn hugsar til Samso. Enda hefur sá staður slík tök f Smáborgar- anum og eflaust flestum sem stíga fæti á þessa ógleymanlegu eyju. HVAÐ FINNSTÞER? HEYRST HEFUR. Þorfinnur Ómarsson, fjölmiðlamaður. Hvaö finnst þér um verðlagn- ingu léttvíns á íslandi? „Hún er út úr kortinu. Ekki síst þar sem allar rannsóknir benda til þess að þetta er meinhollt. Léttvín er matvara frekar en eitthvað annað og það er bara skömm af því að við getum ekki keypt þessa hversdagslegu vöru á sömu forsendum og aðrar Evrópuþjóðir." Þrátt fyrir hagstæða gengisþróun hefur verð á áfengi ekki lækkað. Undarlegri skattlagningu hins opinbera er kennt um. af stað Pabbastelpan Tori Spelling kynnti á dögunum nýjan sjónvarpsþátt sem fer af stað á sjónvarpsstöðinni VHi á næstunni. Þátturinn segir frá lífi stúlkunnar sem þó er breytt til að vera sem skemmtilegast fyrir áhorfendur. Tori Spelling er dóttir hins vel efnaða Aaron Spelling sem m.a. framleiddi hina geysivinsælu sjónvarpsþætti Beverly Hills 90210. Þá notaði Aaron áhrif sín til að koma dóttur sinni í þáttinn og nú hefur hann bætt um betur og reddað henni sínum eigin þætti. Á myndinni eru aðalpersónur þáttanna, Tori sjálf, hundurinn hennar Mimi LaRue og strekkta konan er meðleikkonan Loni Anderson. «3X Longoria til sýnis Aðþrengda eiginkonan, Eva Longoria, hefur undanfarið farið mikinn í kynningar- starfsemi ýmiss konar. Meðal annars hefur sést til hennar á árlegu bilasýningunni í Detroit og á dögunum mætti hún á opnun aðalverslunar Harry Winston í Beverly Hills. Vissulega þarf leikkonan að sýna sig og sjá aðra til að halda vinsældum sínum en fastlega er búist við að peningaveski hennar þykkni með hverju skipti sem hún lætur sjá sig opinberlega. NoTORIus fer Cruz til riddara Spænska leikkonan Penelope Cruz fékk í gær riddaraorðu fyrir framlag sitt til lista frá franska menningarmálaráðherranum Renaud Donnedieu de Vabres. Henni til stuðnings á athöfninni mættu systir hennar, Monica og Salma Hayek. Menningarmálaráðherrann fór með lofræðu um kvikmyndaferil Cruz sem inniheldur kvikmyndir á frönsku, ensku, ítölsku og spænsku. „Ég veit ekki hvort ég á þetta skilið, en ég skal gera mitt besta svo þið sjáið ekki eftir þessu,“ sagði Cruz við tilefnið. Prófkjörsbarátta Samfylk- ingarinnar í Reykjavík er á fullu blússi og eru menn farnir að opna prófkjörsskrifstofur víða um bæinn. Kjart- an Valgarðsson opn- ' aði þannig skrifstofu é m í gamla Hekluhúsinu, en það húsnæði á sér glæsta sögu í pól- itískri baráttu. Þar hafði Davíð Oddsson aðsetur í formanns- slagnum við Þorstein Pálsson og síðar háði Björn Bjarnason glæsi- legtprófkjörþar, sem fleytti hon- um inn á þing. Hefð mun fyrir þvi að hafa skilti uppi við í hús- næðinu, sem á er letrað „Þeir fiska, sem róa“ og hafi Kjartan þá hefð í heiðri eru honum vafa- laust allir vegir færir... Minni spenna er í prófkjöri framsóknarmanna. Björn Ingi Hrafnsson hefur opnað kosningamiðstöð á Suðurlandsbraut 24 og þar er ekki síð- ur félagsheimili en kosningamaskína, að sögn Björns Inga: „Ástæða er svo til að geta þess að í miðstöðinni erum við með risa- skjá þar sem hægt er að fylgjast með því helsta sem er 1 sjónvarp- inu, svo sem ensku knattspyrn- unni og Idol. Það er því nóg um að vera á Suðurlandsbrautinni nú í svartasta skammdeginu...“ Pað vakti athygli í Kastljósvið- tali við Jónas Kristjánsson, ritstjóra DV, í fýrra- dag, að þar ítrekaði hann að DV hefði sannleikann ávallt að leiðarljósi og taldi hann ritstjórnar- stefnu blaðsins eina helstu brjóstvörnina gegn illmennum íslands. Því til sönnunar nefndi hann að inn á ritstjórnarskrif- stofur blaðsins hefði komið Skarphéðinn Njálsson og sagt að „sinn timi væri kominn aftur“. Áhorfendum brá vita- skuld í brún við þessi tíðindi, að fornkappinn hefði birst ljós- lifandi í Skaftahlíðinni fremur en Fljótshlíð, væntanlega með Rimmugýgi reidda um öxl. Sum- ir höfðu þó á tilfinningunni að þarna hefði Jónas ekki alveg haft sannleikann að leiðarljósi. í lok Kastljóss var upplýst að þarna hefði kynferðisglæpamað- urinn Steingrímur Njálsson ver- ið á ferð... ókeypis til heimila og fyrirtækja alla virka daga j^_ eftir Jim Unger- Við eigum sömu barnabörn! Þú hlýtur að vera fyrsti eiginmaður minn. Líkt og Skarphéðinn forðum fór Steingrímur Njálsson bónleið til búðar og /^4 í DV í gær má lesa að honum hafi verið & fylgt út af ritstjórn- arskrifstofunum af lögreglu eftir að starfsmenn blaðsins hefðu gert honum ljóst, að „þangað væri hann ekki vel- kominn vegna ölvunar“. Miðað við frétt DV hefði hann hins veg- ar verið velkominn edrú... Hallgrímur Helgason, rithöf- undur, gerði hugtakið bláu höndina frægt fyrir þremur og hálfu ári. Taldi | hann bláu hönd- ina persónugerast ■" r5* i harðstjórn Dav- ^ j íðs Oddssonar. ^ , Hallgrimur skrifar 0 * reglulega í DV. Gárungarnir eru farnir að kalla það blað gulu höndina, en æsifréttablöð erlend- is ganga gjarnan undir heitinu „gula pressan". Auðmennirnir, sem eiga DV, hafa enda óspart notað það til að berja á andstæð- ingum sínum, og er skemmst að minnast uppsláttarins um Jón- ínu Benediktsdóttur og Styrmi Gunnarsson fyrir skömmu...

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.