blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 37

blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 37
blaðið FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 DAGSKRÁI 37 Þannig er það auðvitað í lífinu að dagarnir eru misgóðir. Sumir eru nánast eins og draumur sem verða að blossandi endurminningum á meðan aðrir eru svo ömurlega þunglamalegir og leiðinlegir að ekki væri hægt að kynda þá með öllum olíubirgðum Persaflóa eða gasbirgðum Rússa. Einstaka dagar eru svo þrungnir örvæntingu og ömurleik að þeir eru nánast eins og svarthol, minnisgloppur. Ég held að tóbak virki sem einhvers konar sósujafnari á dagasúpuna. Sígarett- urnar gera alla daga aðeins skárri því þær eru þessi fasti sem reykinga- fólk tengir við reglubundna ánægju. Verðlaun fyrir að hafa lifað af enn einn klukkutímann! Sígaretturnar geta þannig brúað ömurlegu dag- ana við þá sem eru aðeins skárri og svo hina sem eru alveg dásamlegir og brotið lífið niður í reglubundið aðsog og útblástur. Þegar maður hefur gert sér grein fyr- ir þessari sefjun og er tilbúin til að takast á við dagana án þess að brjóta þá upp er rétti tíminn til að hætta að reykja. Þá er öllu auðveldara að taka út úr sér dúsuna og taka lífinu eins og það fleygist í fangið á manni, án þess að taka sér akademískt korter á klukkutíma fresti. Þá er kominn tími til að grípa í taumana og stýra lífinu í þann farveg sem maður helst kýs sér. Gera nákvæmlega það sem maður vill. Á þeim nótunum renndi ég mér í gegnum 12 daginn í bind- indi. Ég hafði rétt fyrir mér, þetta var bara einhver kúfur i gær sem ég varð að komast yfir. Levi’s iPod: Gallabuxur með MP3 BlaÖiÖ/SteinarHugi t i EITTHVAÐ FYRIR... ...unga fólkið Sjónvarpið, 20.10 L a t i - bær Þáttaröð um íþróttaálfinn, Glanna glæp, Sollu stirðu og vini þeirra í Latabæ. Textað á síðu 888 í Textavarpi. Pitt og Jolie eiga von á barni Fallegasta bam í heimi Óskarsverðlaunahafinn Angelina Jolie hefur sagst vera ófrísk af barni Brad Pitt. Þar með var staðfestu orðrómur sem hefur gengið um slúðurblöð frá þvi á miðvikudag þegar People magazine hafði eftir góðgerðarstarfsmanni í Dóminíkanska lýðveldinu að Jolie hefði tjáð honum að hún væri ekki kona einsömul. Þar starfar hún að nýrri kvik- mynd. Nú hefur talsmaður Brad Pitt staðfest að Jolie eigi von á sér en vill ekki gefa neitt upp um hversu langt hún er komin á leið né hvort parið hyggist ganga í hjónaband. Pitt hefur þó sótt um ættleiðingu tveggja barna Jolie, Maddox sem er fjögurra ára og hinni ellefu mánaða Zahara. Brad Pitt og Angelina Jolie hafa lengi þótt með fallegasta fólkinu í Hollywood og því má búast við að barn þeirra verði myndarlegt, svo vægt sé tekið til orða. Hvernig sem það fer er ljóst að fjölmiðlar um allan heim munu fylgjast náið með lífshlaupi barnsins. Stöð 2, 20.00 S i m p s o n s (1:21) (Simp- son-fjöl- skyldan) Þ r j á r h r o 11 - vekjandi sögur þar sem Ned Flanders öðlast m.a. sérstaka skyggnihæfileika eftir að Hómer dúndrar keilukúlunni sinni í haus- inn á honum. nornir Skjár Einn, 20:00 Char- med Bandarískir þættir um þrjár fagrarogkyngi- magnaðar örlaganorn- ir. Gide- on gerir samning við myrk- raöflin um að losa sig við Leo. Gallabuxnaffamleiðandinn Levi’s hefúr hannað nýjar buxur sem verða iPod „samhæfðar" samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Levi’s buxurnar sem upphaflega voru ætlaðar gullgröfurum hafa því tekið nokkrum stakkaskiptum. Það má kalla þetta gallabuxur 21. aldarinnar. Fjarstýring í vasanum I Levi’s RedWire DLX gallabuxun- um fyrir karla og konur sem eru væntanlegar í verslanir næsta haust verður innbyggt tengi fyrir iPod spilara Apple fyrirtækisins sem spil- arinn tengist. Hægt verður að skipta á milli laga og hækka eða lækka f heyrnartólum með fjarstýringu sem er innbyggð í klinlcvasann svokall- aða. Sá vasi var einmitt upphaflega hannaður svo gullgrafarar hefðu öruggan stað fyrir gullmolana sína. Heyrnartólin munu svo koma upp úr öðrum vasa og dragast inn þegar þau eru ekki í notkun. Hugs- anlegt verð á þessum tæknibuxum hefúr enn ekki verið gefið upp. i=$ iPod MP3 spilararnir eru vinsæl- asta söluvara Apple og líklegast vinsælustu raftæki í heimi um þessar mundir. Á síðasta ársfjórð- ungi varð iPod og iPod aukatæki til þess að sölutölur Apple jukust um 63% en þá höfðu 42 milljónir iPod spilara selst um allan heim. Levi’s er hins vegar ekki fyrsta fatafyrirtækið til að nýta sér vinsæld- ir spilaranna þrátt fýrir að bjóða upp á fyrstu iPod gallabuxurnar. Hátískuhús byrjuðu að framleiða rándýrar iPod töslcur strax árið 2001 og Burton snjóbrettarisinn kynntu til sögunnar iPod snjó- brettajakka fyrir rúmum tveimur árum. Síðasta haust byrjuðu síðan Macy’s búðirnar í Bandaríkjunum að selja karlmannsjalcka fyrir um 20 þúsund krónur sem voru með innbyggð iPod stjórntæki í erminni. ■>* 100 þœttir af Law and Order Aðstandendur sjónvarpsþáttanna Law and Order: Criminal Intent fögn- uðu ákaft f gær þegar hundraðasti þáttur- inn var frumsýndur vestan hafs. Allar stjörnur þáttanna mættu og fögnuðu tímamótunum. í þættinum eltist Goren við raðmorð- ingja og gengi hans til fyrrum erki- óvinar síns. ■ Spurning dagsins Hvað finnst þér að eigi að gera við DV? ÓlafurGuðmundsson, leigubílstjóri. Það á að loka því. Að minnsta að hreinsa til þar." Sigríður Svavarsdóttir, simamær. „Mérfinnstaðfólk eigi að hætta að kaupa það." vJk, Magnús Einarsson ® „Ég hef enga skoð- K un á því.." I Baldur Víðisson I „Ekki neitt.." Hanna Bizouer, nemi iMH „Það þarf að breyta stefn- JV ~ unni."

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.