blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 18
18 I SNYRTIVÖRUR FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 blaöiö Förðun á vetrardögum Létt, leikandi Siðareglur hárlitunar Cameron Diaz er jafnan glæsilega föröuð eins og sést á þessari mynd. Á dimmum vetrarmánuðum eins og janúar og febrúar er ennþá mikilvægara að farða sig og gefa lífinu smá lit. Dagförð- unin á þessum tíma ætti þó ekki að vera glannaleg eða of mikil þar sem árstíminn býður upp á hófsemi í öllu. Förðunin á að vera létt og leikandi en umfram allt glæsileg. Hér eru grunn- reglur í förðun sem allir ættu að nota til hliðsjónar. Þvoðu andlitið og settu á dag- krem. Bíddu með að setja farða á andlitið þar til dagkremið er byrjað að virka, um ío mínútur ættu að vera nægilegar. Settu baugahyljara á rauða bletti, bólur, bauga og annað sem þarf að hylja. Baugahylj- arinn á að vera tón ljósari en farð- inn sjálfur. Settu hyljarann á og jafnaðu hann út með fingurgóm- unum eða förðunarsvamp. Veldu farða sei hentar þinni húðtegund fullkomlega. Settu farðann á nokkra parta andlitsins og jafnaðu hann út með förðunar- svamp eða fing- urgómunum þar til allt and- litið er farðað. Mo t a ð u laust eða fast púður til að farðinn og baugahyljarinn haldist á sem lengst. Berðu reglu- augnhárunum og mögulegt er. lega á púður til að koma í veg fyrir Veldu dekkri eða skærari liti ef þú glansa. vilt áberandi förðun. Motaðu þrjá liti af augn- skugga, ljósan, milliljósan og dökkan. Berðu dökka augnskuggann á línu við efri augn- hárin. Milliljósi liturinn fer á augn- lokið sjálft en ljósi liturinn fer efst, undir augnbrúnina. Settu línu á efri augnlok með annað hvort augnblýanti eða pensli. Einnig er hægt að setja línu undir neðri augn- hárin ef sóst er eftir dekkri förðun. Línan getur náð enda á milli eða náð jafnvel einungis að miðju, allt eftir því hvernig áhrifum er sóst eftir. Þegar lína er sett skal ávallt gæta þess að setja hana eins nálægt Settu maskara á efri og neðri augnhár. Passaðu að ná til allra augnháranna og vand- aðu þig. Brostu til að finna kinnbeinin og berðu kinnalit á þau. Veldu varalit sem hentar þinni húðtegund og sem hentar förðuninni. Settu varalitablýant á eftir að varaliturinn er kominn á, ekki áður. Með því kem- urðu í veg fyrir að dökkur hringur myndist á vörunum eftir að vara- liturinn er farinn af. Pvoið bursta og pensla með því að skola þá upp úr heitu vatni og Ieyfa þeim að þorna. Það á aldrei að spara í förð- unarvörum heldur er um að gera að kaupa það besta sem fæst. Einungis þannig getur góð förðun orðið fullkomin. svanhvit@ bladid.net Þaö fer ekki öllum aö vera meö mjög rautt hár þó þessi unga stúlka sé einkar glæsileg. Það þarf ekki annað en að rölta niður í bæ til að sjá að það er gífurlega vinsælt að lita á sér hárið. Annríki á hárgreiðslu- stofum segir sömu sögu enda þarf jafnvel að panta tíma með nokkurra vikna fyrirvara á vin- sælustu stofurnar. Velflestir eru með lit í hárinu á sér eða hafa einhvern tímann litað á sér hárið. Strípur eru alltaf vinsælar enda koma þær hreyfingu á hárið. Auk þess er heillitur alltaf vinsæll líka en aflitun er þó misvinsæl eftir árum. Hér eru nokkrar leiðbein- ingar sem gott er að hafa til hlið- sjónar áður en hárið er litað: • Þú skalt aldrei setja strípur við grátt hár. Strípur eru notaðar til að leggja áherslu á háralit en eru ekki litur í sjálfu sér. o Litir sem eru of drapplitaðir eða fölir gera ekkert fyrir húðgerðina þína. Reyndu að nota gyllta eða hlýja tóna því þá virkar húðin yngri og geislandi. o Of mikið af einum lit getur litið út fyrir að vera of þétt. o Of lítið af einum lit getur líka virkað of ljóst. Of dökkt getur orðið ógnvekjandi. Of rautt getur orðið trúðslegt. Reyndu að halda þig frá öfgunum, hófsemi er alltaf best. o Ekki gleyma hárnæringunni þar sem hún er gríðarlega mikilvæg ef þú vilt halda hárinu unglegu og fersku. o Ekki hafa sama háralit í mörg ár. Breyttu aðeins til reglulega. Það þarf ekki meira en lit einum tóni dekkri eða einum tóni ljósari til að sjá fallega breytingu. o Það getur verið vandasamt að fylgja tískunni. Það er alltaf gott að fylgja tískunni að einhverju leyti en ekki ganga of langt. o Rætur eru aldrei kynþokkafullar o Ekki ganga um með hálfan haus- inn í einum lit og hinn helminginn í öðrum lit. Ef þú ert að reyna að breyta um háralit, dekktu það fyrst. o Ekki tapa þér í sköpunargleðinni þegar þú litar á þér hárið, lítið er mikið í háralit. • Farðu reglulega 1 heimsókn á hár- greiðslustofu, bæði til að særa hárið og eins til að laga litinn. RafTermjss;"‘t',H''J » MUI.T..RW* ,1^ , r E xira - M ri n i ' Styrkjandi nœturkrem írá Clarins Clarins hefúr sent frá sér Extra- Firming Night Cream sem er snjöll endurnýjandi næturmeðferð. Kremið inniheldur glistin, refasmára og kísil og tryggir húðinni þægindi og endurnýjar mýkt hennar.Á hverri nóttu styrkir það húðina og blæs nýju lífi í hana, fíngerðar línur sjást síður. Húðin virðist sjáanlega ung- legri og andhtsdrættirnir skarpari. Grœðandi baðnœring Fagurbleik baðnæring með angan af möndlu, lofnarblómi og rós. Blanda sem kemur jafnvægi á tilfinning- arnar og eyðir eftirsjá og reiði. Auk þess er blandan græðandi og mýkj- andi á húð. Baðnæringin fæst í Lush

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.