blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjómarformaðun Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. MEINGALLAÐ KERFI ínmenning Islendinga hefur breyst mikið á undanförnum árum. Margir fullorðnir muna vel eftir samkvæmum þar sem vart var boðið upp á annað áfengi en vodka í appelssínusafa eða flötu kóki. Ástæða þessa var takmarkað aðgengi að áfengum drykkjum, lítið úrval og síðast en ekkí síst takmörkuð þekking almennings á vínum. í dag er staðan önnur. Á höfuðborgarsvæðinu er nú hægt að velja úr miklu úrvali af hinum ýmsu vínum þannig að hver og einn ætti auðveld- lega að geta fundið eitthvað við hæfi. Fjölmargar bækur hafa síðan orðið til þess að vitund almennings um vín hefur aukist. Vínmenning land- ans hefur þannig verið færð til nútímans. Á móti kemur að stjórnvöld þrjóskast við að breyta áratuga gömlu sölukerfi sínu. Það hlýtur að skjóta skökku við að á sama tíma og vín er orðið að dag- legri neysluvöru hér á landi skuli stjórnvöld ennþá setja þær miklu skorður fyrir sölu á því og raun ber vitni. Ekki er hægt að sjá að einokun ÁTVR á sölu bjórs og léttvína verði létt á næstunni þrátt fyrir háværar kröfur almennings þar um. Sem betur fer hefur áfengisverslunin tekið sig mikið á undanfarin ár og býður nú bæði upp á meira úrval en áður og einnig eru útsölustaðir komnir víðast hvar á þéttbýlisstöðum á lands- byggðinni. Ákvæði um að bannað sé að auglýsa áfengi er ennfremur mikil tímaskekkja. En það sem vekur mesta athygli er verðmyndunarkerfið, sem erfitt er að finna heila brú á. Það byggist á því að ofan á innkaupaverð ÁTVR frá byrgjum er lagt á fast áfengisgjald, svo kemur álagning ÁTVR og að lokum virðisaukaskattur. Þar vegur þyngst áfengisgjaldið sem er, af einum lítra af 11% rauð- eða léttvíni, um 460 krónur. Þetta fornaldar- kerfi þýðir að verð á léttum vínum er ákaflega einsleitt. Vín, sem mikill verðmunur er á í innkaupum af framleiðendum erlendis, enda á að kosta nánast sömu krónutölu til íslenskra neytenda. Enn fremur verður kerfið til þess að þrátt fyrir að innkaupsverð vína, sem keypt eru inn fyrir doll- ara, hafi lækkað um tugi prósenta frá erlendum byrgjum, njóta íslenskir neytendur ekki góðs af. Fast gjald á vín, eftir því hversu mörg prómill af áfengi þau innihalda, er tímaskekkja sem nauðsynlegt er að afleggja. Þegar innkaupsverð er nánast hætt að hafa nokkur áhrif á útsöluverð hlýtur hver heilvita maður að sjá að það er einhvers staðar rangt gefið. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf áfréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Þriðjudaginn 17.janúar blaðió Auglýsendur, upplýsingar veita: Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net Magnús G Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@bladid.net Bjami Daníelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjami@bladid.net 14 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 blaöiö „WUÐGAMÍR^TRLSAtlÍR, OTSÓKW/R, SViK, FRETTÍR oG AlME’MTÍ óSMeKKLEGHEiT" VeíT CÓM5TÓLL GöTunNaR. EKKi m >SÍ) FP irffcr flPVÍSA SVONA STÓRMÁLUM Af siðlausum blaðamönnum og skapara þeirra „Afhverju gerið þið ekki eins og Gunnar. Hann drepur aldrei mál!“ Þessi orð duttu úr símastúlku á Helgarpóstinum fyrir tveimur ára- tugum þar sem við Egill Helgason börmuðum okkur yfir að hafa þá ekki gert neitt annað alla vikuna en að drepa mál eins og það hét í kaffi- stofuspjalli á þessum ágæta vinnu- stað. Við vorum staddir frammi við afgreiðsluna og í sama mund gekk inn Gunnar Smári Egilsson. Hann var þá nýgræðingur í blaðamanna- stétt og röskur maður til verka á Helgarpóstinum. Blaði sem á næstu árum breyttist úr því að vera virð- ingaverð tilraun til rannsóknar- blaðamennsku í hreinan og kláran sorpsnepil. Að drepa mál kölluðum við það þegar athuganir okkar leiddu í ljós að engin innistæða var fyrir frétta- ábendingu. Á hverjum degi hringdu tugir heimildamanna í blaðið. Sumir áreiðanlegir og trúverðugir. Aðrir ómerkilegir og lygnir. A þessum tíma var ekki farið að borga fólki fyrir fréttaábendingar og þurfti ekki til. 1 mannheimum eru margir til í segja frá. Suma rekur réttlætis- kenndin áfram, aðra eigingirnin eða jafnvel illgirni. Stundum er erfitt að greina þar á milli. Ómenni sögunnar blikna Það er mikilvægt í litlu samfélagi að blaðamenn taki ábendingum borgaranna af alvöru og rannsaki þær. Þannig veita blöð aðhald. Það er slæmt þegar réttmætum ásök- unum og athugasemdum er stungið undir stól. Þó er hitt verra þegar slefburður, lygi og illvilji er borinn á borð sem sannleikur. Heiðarlegur blaðamaður hefur í heiðri sömu reglu og allir sem velta fyrir sér sekt og sakleysi. Hver maður er saklaus þar til sekt hans er sönnuð. Undanfarna daga hefur farið fram umræða um algera siðblindu blaðamanna DV. Hér skal ekki eytt mörgum orðum að því máli sem kveikti þessa umræðu enda í sjálfu sér svo hörmulegt að þar duga engin orð. Það var ónotalegt að heyra í Jónasi Kristjánssyni í Kastljósi líkja Gísla Hjartarsyni við Steingrím Njálsson og tala um leið fjálglega um Bjarni Harðarson meint fórnarlömb hins látna, eins og sakamál á hendur honum hafi verið staðreynd. Það hafði engin ákæra verið birt þessum manni og mínar heimildir telja mikinn vafa á að það hafi verið nokkur innistæða fyrir slíku. Jafnvel verstu ómenni sögunnar spöruðu sér samt að níða þá, sem þeir höfðu nýlega fellt. Létu ógert að leggjast á náinn. Jónas brýtur hér blað í sögunni og þetta segir meira Klippt & skorið 1 fyrradag sendi Þórdfs Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar, móður- félags 365 fjölmiðla frá sér yfirlýsingu. Ástæða hennar er forsíðu„frétt" DV á þriðjudaginn og sorglegar lyktir þess máls. í yfirlýs- SJ ingu Þórdísar segir orðrétt: „...mun stjórn félagsins ræðaþá umfjöllun sem hefur áttsérstað undanfarna daga um DV". Það vekur athygli að í yfirlýsingunni segir aldrei að fjalla eigi um fréttaflutning DV - heldur aðeins þá umræðu sem er um blaðið. Þarna er augljóslega mikill munur á, en hvort þetta gefi tóninn og þýði að stjórn fyrirtækis- ins muni halda útgáfunni áfram í óbreyttri mynd ætti hins vegar að koma í Ijós eftir stjórnarfundídag. Mörgum lesendum fréttavefs mbl.is brá nokkuð í brún í vikunni þegar mjög óvænt var boðið upp á þann möguleika að horfa á erlendar sjónvarpsfréttir á siðunni. Morgunblaðið hefur fram að þessu einbeitt sér að útgáfu prentmiðla og ekki verið áberandi á öldum Ijósvakans. Hins vegarhefur verið gert opinbert að ( nýju húsnæði blaðs- ins er gert ráð fyrir sjónvarpsstúdíói. Nýlegar fréttir herma enn fremur að starfsmenn, sem vel þekkja til tæknimála við sjónvarpsútsend- ingar hafi verið ráðnir til blaðsins, reyndar til annarra verkefna. Mörgum finnst þetta benda til útrásar á nýjum vettvangi - við spyrjum að leikslokum. um hann en mörg orð. Ekkert um Gísla heitinn. Gunnars Smára þáttur Egiissonar Það er engin tilviljun að DV dagsins í dag er sóðalegra og verra sorprit en nokkurt annað sem við höfum átt, jafnvel verra en þekkist norðan Alpafjalla. Það er skipulagt af yfir- ritstjóra 365 miðla, Gunnari Smára Egilssyni, sem handvelur í ritstjórn þessablaðs samviskulausa, illviljaða og ærulausa menn, eins og t.d. Eirík Jónsson, Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson. Gunnar Smári hannar í reynd þetta blað og það segir sína sögu að í upphafi var Gunnar Smári persónulega titlaður ábyrgðar- maður, þó svo að hann kæmi ekki að ritstjórninni á annan hátt, enda hátt settur forstjóri. Var skepnan þannig sköpuð að ekki fengust þá aðrir en skaparinn sjálfur til að bera ábyrgðina. Ekki fyrr en komin var reynsla á að það væri virkilega hægt að ganga svona langt. Það eru vissulega nýir tímar á íslandi. En þeir liggja ekki í því að blaðamannastéttin sé öðru vísi en var fyrr. Þar hafa fyrr verið til svartir sauðir þó þeir væru auðvitað aldrei settir allir í sömu kró. Hinir nýju tímar liggja í því að atvinnu- rekendur og forstjórar eru ekki eins sómakærir og siðavandir eins og áður var. Og það er slæmt. Mjög slæmt. Höfundur er ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins. klipptogskorid@vbl.is ingflokkur Framsóknarflokksins, þ.á.m. Halldór Ásgrímsson er á mikilli yfirreið í Reykjavík um þessar mundir og hefur heimsótt hvert fyrirtækið á fætur öðru. í gær kom hinn fríði flokkur meðal annars við hjá IMG, Og Vodafone, Ölgerðinni og Avion Group. Yfirlýst markmið er að „kynna sér starf- semi fyrirtækjanna og heyra skoðanir stjórn- enda og starfsfólks á stjórnmálalífinu" eins og það erorðað svo lipurlega f tilkynningu frá flokknum. Átta þingmenn flokksins taka þátt í ferðinni og þykir klippara það mikið gleðilefni, enda hafa jafn margir þingmenn vart verið samankomir undir einu þaki frá þvf þingi var slitið einhvern tíman seint á sfðasta ári.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.