blaðið - 13.01.2006, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 blaftiö
Tilræðismanni páfa sleppt
Mehmet Ali Agca sem reyndi að ráðapáfa afdögumfyrir 25 árum
var látinn laus úr fangelsi í gœr. Margir stuðningsmenn fögnuðu
honum við fangelsið en aðrir voru reiðir og hneykslaðir á því að
hann skuli ganga laus.
Mehmet Ali Agca, tilræðismanni páfa, var sleppt úr fangelsi í Tyrklandi f gær.
Milljarðasamningur í hcettu:
Blair þrýstir
á Bush
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands,
hefur reynt að fá George Bush, Banda-
ríkjaforseta, til að samþykkja samning
við Rolls-Royce verksmiðjurnar um
kaup á þotuhreyflum fyrir 2,4 milljarða
Bandaríkjadala (rúmlega 150 milljarðar
ísl. kr.). Verksmiðjurnar gætu tapað
hundruðum milljóna dala ef Bush
ógildir ekki ákvörðun vamarmálaráðu-
neytisins um að hætta við áætlunina.
Breska blaðið Financial Times hefur
greint frá þessu og hefur upplýsing-
arnar frá ónefndum heimildar-
manni innan breska stjórnkerfisins.
I ágúst á síðasta ári tilkynntu
General Electric og RoUs-Royce um
samning um þróun og smíði á hreyfli
fyrir nýja og fúllkomna herþotu
Bandaríkjahers. John Reid, varnar-
málaráðherra Bredands, fundaði
með Donald Rumsfeld, bandarfskum
starfsbróður sínum, f nóvember vegna
frétta þess efnis að varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna byggi sig undir
hugsanlegan niðurskurð á útgjöldum
til vamarmála sem meðal annars
myndu koma niður á verkefninu.
Mehmet Ali Agca, tyrkneskum manni
sem reyndi að ráða Jóhannes Pál II
páfa af dögum árið 1981, var sleppt
úr fangelsi í gær eftir að hafa dúsað á
bak við lás og slá í rúm 25 ár. Stuðn-
ingsmenn hans fögnuðu honum og
fleygðu blómum yfir bíl hans þegar
hann ók frá fangelsinu. Agca, sem er
48 ára, varði 20 árum í fangelsi á Ítalíu
en var síðan framseldur til Tyrklands.
Agca skaut páfann þegar hann ók
í opnum bfl á Torgi heilags Péturs í
Róm 31. maí 1981 og var handtekinn
á staðnum. Páfi hlaut skot í kviðar-
hol, og handleggi en lifði af tilræðið
þar sem kúlurnar náðu ekki að skaða
mikilvæg líffæri. Tveimur árum síðar
hitti páfi Agca í fangelsi og fyrirgaf
honum. Ekki er ljóst hvaða ástæður
lágu að baki tilræðinu.
Eftir að Agca hafði verið fram-
seldur til Tyrklands var hann sak-
felldur fyrir drápið á Abdi Ipekci,
vinstrisinnuðum dálkahöfundi, árið
1979. Dómstóll í Tyrklandi ákvað í
síðustu viku að láta Agca lausan á
sldlorði vegna þess tíma sem hann
hefði setið inni og nýlegra breytinga
á hegningarlöggjöf.
Undrun og reiði
Margir Tyrkir voru undrandi og
reiðir vegna úrskurðar dómstólsins,
þar á meðal fjölskylda Ipeckis. „ Agca
er ekki aðeins morðingi föður míns,
Abdi Ipecki. Ég lít á hann sem þjóð-
armorðingja,“ sagði Nukhet Ipecki,
dóttir hans, á miðvikudag á forsíðu
dagblaðsins sem faðir hennar eitt
sinn vann á. „Morðingja á borð við
hann sem hefur sett svartan blett
á ímynd Tyrklands ætti ekki að
sleppa,“ sagði Deniz Ergin, háskóla-
nemi en margir Tyrkir líta á verk
Agca sem þjóðarskömm.
Benjamin Netanyahu leiðtogi
Líkúdbandalagsins.
Ágreiningur
innan Líkúd
Ráðherrar Líkúdbandalagsins
fóru ekki að skipun Benjamíns
Netanyahu, leiðtoga bandalagsins,
um að segja af sér ráðherraemb-
ætti í gær en hafa í hyggju að gera
það í upphafi næstu viku.Ágrein-
ingurinn beindi kastljósinu að
innanflokksdeilum í Líkúdbanda-
laginu í aðdraganda þingkosninga
í krael sem fram fara í lok mars.
Skoðanakannanir sýna að Líkúd-
bandalagið verði þriðji stærsti
flokkurinn á þingi á eftir Kadima
og Verkamannaflokkinum.
Netanyahu hafði skipað fjórum
ráðherrum Líkúd í rfkisstjórn-
inni að segja sldlið við hana í gær,
skömmu áður en gengið var til
prófkjörs í flokknum. Stjórnmála-
skýrendur í ísrael segja að ráðherr-
arnir vildu sýna fram á að þeir létu
ekki Netanyahu ráðskast með sig.
Nikonfetar ífótspor annarra myndavélaframleiðenda:
Dregið úr fram-
leiðslu filmuvéla
Japanski myndavélaframleiðandinn
Nikon hyggst hætta framleiðslu á
flestum tegundum filmumyndavéla
og linsum og leggja þess í stað megin-
áherslu á stafrænar myndavélar.
Fyrirtækið bætist þar með í hóp ann-
arra myndavélaframleiðenda á borð
við Kodak og Canon sem leggja nú
þegar megináherslu á stafrænar
myndavélar.
Nikon mun hætta framleiðslu á
fimm af sjö tegundum filmuvéla og
mun jafnframt hætta framleiðslu á
linsum á flestar þessara véla.
Talsmaður Nikon sagði að fyrir-
tækið hefði tekið þessa ákvörðun
vegna þess að sala á filmuvélum
hefði minnkað. Á síðasta fjárhagsári
sem lauk í mars árið 2005 nam sala
filmuvéla aðeins 3% af heildarsölu á
myndavélum og myndavélabúnaði.
Salan hafði minnkað um 16% frá
árinu á undan.
Aftur á móti hefur sala á staf-
rænum myndavélum aukist gríðar-
lega að sögn fyrirtækisins og nam
Blaöií/Steinar Hugi
Myndavélaframleiðandinn Nikon mun
leggja megináherslu á framleiðslu staf-
rænna myndavéla héðan í frá.
75% af heildarsölu á síðasta fjárhags-
ári. Til samanburðar má benda á
að þremur árum fyrr hafði hlut-
deild þeirra aðeins verið um 47% af
heildarsölu.
nru*
\Á$ istilboð
" [Koníaktónuð humarstípa mcð risarœkjum
" Stciktur saltfiskur mcð sólfturkiiðum
tómötum otj hvítlaukssósu
2<r. 1.500.-
Vsz:rið Ví^lkomin
Óttast frekari þurrka
í Suður Evrópu
Frakkar og Spánverjar hafa alvar-
legar áhyggjur af loftslagsbreyt-
ingum í Evrópu og óttast að þurrkar,
sem leiddu til mannskæðra skógar-
elda, uppskerubrests og vatns-
skömmtunar á síðasta ári muni end-
urtaka sig. Nelly Olin, umhverfis-
málaráðherra Frakka segir að vegna
þriggja þurrkasumra í röð sé hætta
á því að vatnsskortur í landinu verði
með meiri en nokkru sinni fyrr á
næsta ári. Olin sagði að litlar vatns-
birgðir í Frakklandi væru alvarlegt
vandamál og að sums staðar séu þær
meira en helmingi lægri en í meðal-
ári. „Jafnvel þó að það hellirigni í
tvo og hálfan mánuð mun það ekki
nægja til að grunnvatnsborð verði
viðunandi,“ segir hún.
Umhverfisstofnun Evrópu segir
að vatnsskortur og síhækkandi hita-
stig í Suður Evrópu sé að verða við var-
andi ástand og loftslagslíkan gefur
til kynna að þurrkar kunni að valda
gróðureyðingu í stórum hluta álf-
unnar. I nýjustu skýrlsu stofnunar-
innar segir að loftslagsbreytingar
séu þegar farnar að hafa margvísleg
áhrif og meðal annars megi kenna
þeim um fleiri og alvarlegri skógar-
elda á Miðjarðarhafssvæðinu.
Umhverfisstofnun Evrópu hefur lýst yfir
áhyggjum af síhækkandi hitastigi í Suður
Evrópu.
Starfsmönnum
olíuborpalls
rænt
Vopnaðir menn réðust til atlögu
á olíuborpall, sem Royal Dutch
Shell á í Nígerlu, og rændu fjórum
erlendum starfsmönnum á miðviku-
dagskvöld. Starfsmennirnir voru um
borð í birgðaskipi sem lá við ankeri
á grunnsævi þegar þeim var rænt
og farið með þá á ókunnugan stað.
Blaðamannafélag Bretlands sagði
að að minnsta kosti einn þeirra
sem rænt var hefði verið breskur.
Sveitarfélög i Nígeríu hafa
krafist stærri hluta af tekjum
af olíu sem hefur árum saman
verið flutt frá landinu. Gíslatökur
eru algengar en yfirleitt er gísl-
unum sleppt heilum á húfi.
Starfsmenn Shell, sem reka
olíuborpallinn, hafa verið teknir
sem gíslar tvisvar á undanförnu
ári vegna deilu við sveitarfélög í
nágrenninu sem saka fyrirtæklð um
að ganga á bak orða sinna, en það
hafði lofað að taka að sér þróunar-
verkefni í hinu fátæka héraði. Um
2,5 milljónir tunna af olíu eru fram-
leiddar í Nígeríu á degi hverjum.
Hwang biðst afsökunar áfölsuðum rannsóknum:
Segist vera
fórnarlamb samsæris
Suður-kóreski vísindamaðurinn
Hwang Woo-suk viðurkenndi í gær
að stofnfrumurannsókn hans væri
fölsuð en hélt því jafnframt fram
að hann væri fórnarlamb samsæris.
Hann sagði að vísindamenn hefðu
leitt hann á villigötur er þeir héldu
því fram að honum hefði tekist að
framleiða stofnfrumur. Það væri
jafnframt hans eigin sök að hafa
ekki gengið úr skugga um sannleiks-
gildi niðustaðna vísindamannanna.
Á sama tíma og vísindamaðurinn,
sem eitt sinn var litið á sem þjóð-
hetju, baðst afsökunar á gerðum
sínum gerði hópur manna á vegum
rannsóknarlögreglunnar húsleit á
heimili hans, rannsóknastofu og
víðar í Seoul. Saksóknari segir að
húsleitirnar hafi verið gerðar til
að tryggja að sönnunargögnum
yrði ekki eytt en greint hefur verið
frá því í fréttum að aðstoðarmenn
Hwangs hafi eytt gögnum af tölvu
í rannsóknarstofunni. Vegna sam-
starfs við internetveitur var hægt
að hafa uppi á tölvupósti frá Hwang
og 10 samstarfsmönnum hans. Auk
þess að leggja hald á gögnin hafa 11
menn verið settir í ferðabann út af
rannsókninni.
Hwang Woo-suk segir aö samstarfsmenn
sínir hafi blekkt sig.