blaðið - 13.01.2006, Side 26
261 HEIL.SA
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 Uaöiö
Borðum hollt og
hreyfum okkur
Margir eru eflaust að fara á stað í heilsuátak þessa
dagana. Búið að kaupa líkamsræktarkortið og
ísskápurinn hefur verið hreinsaður af óhollustu
jólamánaðarins. Það breytir því ekki að freistingar
eru á hverju strái og allt of auðvelt að grípa með
sér skyndibita þegar hungrið sverfur að. Á heima-
síðu Lýðheilsustöðvar má sjá upplýsingar um
mikilvægi hreyfingar og hollarar fæðu. Stofnunin
er nú að fara í gang með að dreyfa plakötum í
skóla, íþróttahús og fyrirtæki.
Dagleg hreyfing er mikilvœg
Börn þurfa helmingi meiri
hreyfingu en fullorðnir
.Hreyfihringurinn er nýjung og á að
gefa fólki hugmyndir um þá tegund
hreyfingar sem hægt er að stunda",
segir Gígja Gunnarsdóttir verkefnis-
stjóri hreyfingar á Lýðheilsustöð.
,Með hreyfihringnum viljum við leggja
áherslu á mikilvægi þess að fullorðnir
hreyfi sig í hálftíma á dag en börn í
minnst klukkutíma daglega. Hreyfi-
hringurinn er settur fram á mynd-
rænan hátt til að sýna hvernig fólk
getur hreyft sig og það þannig hvatt
til að vera vakandi fyrir hreyfingu í
stað hreyfingarleysis. I hringnum eru
sjö geirar þar sem m.a. má sjá konu að
ganga og á þetta að sýna að hreyfing er
einföld í framkvæmd og þarf ekki að
kosta peninga. í einum geiranum má
sjá eldri mann á leið i sund og á það að
sýna að það er aldrei of seint að byrja.“
Gígja segir að fólk ætti að athuga ferða-
mátann til og frá vinnu og nota hjól
eða ganga í stað þess að nota bílinn ef
möguleiki er. „Þá leggjum við áherslu
á að foreldrar séu góðar fyrirmyndir
barna sinna þegar kemur að hreyfingu
og að fjölskyldan stundi hreyfingu
saman.“ Gígja segir það skipta máli
að fólk hreyfi sig á þann máta sem því
hreyfum okkur
aíll hefur áhríf
þyki skemmtilegastur. „Til að hafa
orku í hreyfingu þurfum við að borða
hollt svo þetta hangir dálítið saman.
Hreyfing stuðlar ekki aðeins að betra
líkamlegu formi heldur dregur m.a.
úr likum á hjarta-, æðasjúkdómum
og stoðkerfisvandamálum."
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03
YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunar-
æfingar, slökun og hug-
leiðsla.
Morgun-, hádegis-,
síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímarfyrirbyrjendurog ——
barnshafandi konur. www.yogaheilsa.is
NÝTT! Astanga yoga
]
.
natturuvorurj
Framleiddar síðan 1923
Kastaníukrem
Cott fyrir þreytta fætur
og káífa. Örvar blóðrás
Hiartarkrem
Mjög gott á fætur og j
huð sem mæðir mÍKÍo
Verndar og styrkir og
í veg fyrir að núðin sp
wemasm:
Franzbranntwein gel
Nudd-gel. Mjög gott við
vöðvabólgu og narðsperrum.
Eykur blóöstreymi til
húðarinnar, kælir og losar um
spennu í vöðvum.
Vörurnar fást í: Árbæjarapóteki, Laugarnesapóteki,
Lyf og heilsu,Lyfjavali og Rimaapóteki.
Offita vaxandi vandamál
Skyndilausnir ekki
líklegar til árangurs
Hjá okkur hér á íslandi er offita
svo sannarlega vaxandi vandamál,
þjóðin er að fitna. Árið 1998 voru
helmingi fleiri karlar með BMI
yfir 25 en árið 1968 og rannsóknir
hafa einnig sýnt okkur að börn
eru að þyngjast. Við tölum jafn-
vel um að það sé eðlilegt að konur
bæti á sig hálfu til einu kílói á ári
eftir 25 ára aldurinn. Það á alls
ekki að vera sjálfsagt að bæta á
sig kílói eftir kílói. Við þurfum
að spyrna við fótum og snúa þess-
ari þróun við.
Hvers vegna er offita vandamál?
Offita er vandamál vegna þess að
offitu fylgja alvarlegir fylgikvillar
og vanlíðan.
Helstu fylgikvillar offitu eru:
• Kransæðasjúkdómar
• Sykursýki Týpa 2
• Ofhárblóðþrýstingur
• Röskun á blóðfitu
• Mæði
• Heilablóðfall
• Gallblöðrusjúkdómar
• Svefntruflanir
• Slitgigt í hnján
• Krabbamein í ristli
» Brjóstakrabbamein
Hvenær er yfirvigt orðin vanda-
mál - hvenær tölum við um offitu?
Við skilgreiningu á offitu er oftast
notaður svokallaður líkamsþyngdar-
stuðull (BMI). Hann er reiknaður út
frá hæð og þyngd samkvæmt formúl-
unni þyngd/hæð2 (kg/m2). Með því
að reikna hann út er unnt að meta
hvort viðkomandi sé of þungur.
Sömu viðmiðunarmörk eru fyrir
konur og karla. Þessi mörk gilda
aftur á móti ekki um börn. Stuðull-
inn tekur ekki tillit til mismunandi
líkamsbyggingar og greinir ekki
milli þyngdar vöðva og fitu þannig
að vöðvamikill og grannur einstak-
lingur getur fengið háan BMI.
BMI stuðullinn gefur fyrst og
fremst vísbendingu um það hvar
viðkomandi er staddur m.t.t. offitu.
Hægt er að reikna út BMI stuðul
sinn á www.doktor.is
Eðlileg þyngd er
BMI 18,5-25
Fyrsta stigs offita er
BMI 25-30
Annars stigs offita er
BMI 30-40
Þriðja stigs offita er
BMI 40 og yfir
Hvers vegna fitnum við?
Það er erfitt að segja nákvæmlega
til um það hvers vegna við fitnum
og hvers vegna sumir fitna en aðrir
ekki.
» Efnaskiptin: Eitt er víst - efna-
skiptin hjá okkur eru misjöfn.
Sumir eiga einfaldlega auðveldara
með að safna forða en aðrir.
• Borðum meira en við brennum.
Til þess að fitna eða safna forða er
ljóst að það þarf að borða meira
en brennt er. Orkuinntakan
þarf að vera meiri en þörfin og
umframorkan er þá geymd sem fita
í líkamanum.
• Umhverfisþættir hafa auk þess
mikil áhrif, kyrrseta er meiri en
áður og framboð á mat gífurlegt.
Það er hægt að léttast og
snúa þróuninni við.
Það eru þó engar skyndilausnir
líklegar til þess að hjálpa þér. Fyrir-
tæki keppast við að setja á markað
og selja „töfralausnir”. Þessar
lausnir eru ekki líklegar til árangurs,
að minnsta kosti ekki til langs tíma
litið. Einfaldar lausnir eru ekki til
og eina leiðin til léttara og betra lífs
er lífstílsbreyting.
"Þú berð ábyrgðina á þínu
lífi og lífi barnanna þinna"
Viljir þú takast á við vandann
þarft þú að taka ákvörðun um að
gera það. Þá er gott að setja sér
raunhæf markmið og muna að
góðir hlutir gerast hægt. Þú ert að
þessu fyrir sjálfan þig og hugsan-
lega börnin þín og það stendur allt
og fellur með því að þú haldir út og
standir þig. Það getur verið gott að
gera eins konar samning í upphafi,
>ar sem fram koma ástæður þess að
)ú leggur í þetta “langhlaup”, mark-
miðin sem þú setur þér á leiðinni og
þegar lokatakmarkinu er náð. Það
er mikilvægt að gera sér grein fyrir
því í upphafi að þegar takmarkinu
er náð er baráttan rétt að hefjast.
Það eru nokkrar greinar um offitu
inn á www.doktor.is þar sem hægt
er að lesa sér til um það hvernig best
er að standa að því að létta sig. Þar
má helstar nefna:
Offita - aðferðir sem virka, e.
Ólaf Gunnar Sæmundsson,
næringarfræðing.
Offita - taktu hana alvarlega,
grein unnin upp úr bæklingi sem
Hjartavernd gaf út árið 2002.
Offita - hreyfing, mataræði,
lyf, e. Hildi Ósk Hafsteinsdóttur,
næringarfræðing.
Ég hvet all þá sem eiga við offitu að
stríða að lesa sér til um þær leiðir
sem gott er að fara til þess að takast
á við vandann. Mataræði og hreyf-
ing skiptir þar að sjálfsögðu mestu
máli en auk þess eru til lyf við offitu.
Lyfin eru aðallega hugsuð fyrir þá
sem hafa BMI yfir 30 eða þá sem eru
með þekkta áhættuþætti offitu. Ef
vandinn er mikill er nauðsynlegt að
vera í sambandi við fagfólk þegar
farið er af stað. Næringarfræðingar,
hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkra-
þjálfarar eða aðrir sérmenntaðir
þjálfara geta svo sannarlega gefið
góð ráð og veitt stuðning.
Gangi þér vel,
Jórunn Frímannsdóttir, hjúkrunar-
frœðingur og ritstjóri www.doktor.is
Mikilvægt aö borða mat
úr öllum fæðuflokkum
Fceðuhringurinn - allt hefur áhrif
Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar má sjá heilsuhring
og upplýsingar um holla fæðu. Hringurinn skiptist
í kornvörur, grænmeti, ávexti og ber, fisk, kjöt egg,
baunir og hnetur, mjólk og mjólkurafurðir og feit-
meti, en í þeim flokki má finna jurtaolíu, steikarfeiti,
lýsi, smjör og annað viðbit.
„Heilsuhringurinn er gerður til að auðvelda fólki að
borðavelsamsettanmatogholltfæði/’segirHólmfríður
Þorgeirsdóttir verkefnisstjóri næringar á Lýðheilsu-
stöð. Framsetningin er gerð til að gera þetta auðvelt."
Það kannast sennilega margir við gamla fæðu-
hringinn þar sem geirarnir voru misstórir og sýndu
mikilvægi hvers fæðuflokks fyrir sig. Núna eru geir-
arnir af sömu stærð en mismikið sett í þá til að sína
mikilvægi hvers fæðuflokks. Það er mikilvægt að borða
mat úr öllum flokkum og að velja margar tegundir úr
hverjum flokki. í miðju fæðuhringsins er vatnsglas
sem á að sýna að vatn er besti svaladrykkurinn.
1 fæðuhringnum eru engin sætindi, gosdrykkir
eða djús enda eru þessar vörur ekki nauðsynlegar
til vaxtar og viðhalds líkamans. I þeim er iðulega
mikil orka en lítið eða ekkert af nauðsynlegum nær-
ingarefnum og er það ástæða þess að þær eru óheppi-
legar. Rannsóknir benda einnig til þess að neysla á
sykruðum drykkjum, t.d. gosdrykkjum, geti aukið
líkur á offitu.
fæðuhringurinn
allt hefur áhrif