blaðið - 13.01.2006, Side 32
32 I MENNING
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 blaöiö
Ástkona leysir
frá skjóðunni
Rithöfundurinn Robert Graves
lést árið 1985 og var þá níræður.
Nú, tuttugu árum síðar, hefur
fyrrum ástkona hans stigið fram
og skýrt frá ástríðufullu sam-
bandi þeirra í viðtali við Sunday
Times. Aemilia Laracuen er 73 ára
og býr í New York. Þegar hún hitti
Graves var hann kvæntur og fjög-
urra barna faðir. Hún var þrítug
og hann var 67 ára gamall. Hann
orti mörg þekktustu ástarljóð sín
til hennar og sendi henni mörg
hundruð bréf.
Graves er meðal annars höfundur
bókanna um Kládíus, Rómarkeis-
ara, Ég Kládíus og Guðinn Kládíus,
en bækurnar urðu að gríðarlega vin-
sælum sjónvarpsþáttum. Graves var
mikill kvennamaður og átti í ástar-
samböndum utan hjónabands og þar
skipti sambandið við Aemiliu hann
mestu. Eftir andlát hans gerði fjöl-
skyldan sér far um að leyna öllum
merkjum um annað en að Graves
hefði verið ástríkur fjölskyldufaðir.
Aemilia minnist Graves með mik-
illi hlýju og segir að aldursmunur-
inn hafi ekki truflað hana. „Robert
var líkamlega hraustur og vel á sig
kominn," segir hún. „Hann var
afburðagreindur og mjög fyndinn,
þegar hann gekk inn í herbergi var
eins og sólin hefði birst... Þegar
maður hefur upplifað svo innilega,
fullkomna ást þá er mjög erfitt að
gefa hana frá sér. Ég hef aldrei aftur
fundið neitt sem líkist henni. Ég
sakna hans ennþá.“
Kynlíf milli þeirra var af
skornum skammti því Graves þjáð-
ist af getuleysi og Aemilia svaf hjá
öðrum mönnum. Graves var þó
mjög háður Aemiliu og stundum
fór Beryl, eiginkona hans, á fund
Aemiliu og bað hana um að koma
til Graves þvi hann þarfnaðist
hennar. Aemilia segist ekki enn
skilja hvað Beryl hafi gengið til
með þessu. Vinkona Graves og
Beryl segir að þetta hafi ekki átt
að koma á óvart þar sem Beryl
hafi svo að segja aldrei sýnt mann-
legar tilfinningar og eina skiptið
sem hún hafi sést gráta hefði verið
þegar kötturinn hennar dó. „Hún
hafði hvorki áhuga á eiginmanni
sínum né börnum. Hún hafði ekki
áhuga á neinu nema kommúnisma
og gæludýrunum sínum,“ segir vin-
konan um Beryl. Graves yfirgaf
konu sína um tíma til að vera hjá
Aemiliu en hún vildi ekki eyða lífi
sínu í að hjúkra gömlum manni og
rak hann frá sér. Sambandi þeirra
laukþó ekki þá heldur seinna þegar
Aemilia varð ástfangin af manni
sem var tuttugu árum yngri en
hún og fór með honum til Indlands.
Graves lagðist á spítala, 71 árs, en
hann var ekki án ástkonu því 17
ára stúlka, dóttir náins vinar hans,
heimsótti hann á sjúkrabeðið og
játaði ást sína. Hún varð næsta ást-
kona hans. Aemilia segir að ef kyn-
líf þeirra Graves hefði verið gott þá
hefði sambandið enst. „En þar sem
við stunduðum ekki kynlíf þá var
það hugur hans og hugmyndaflug
sem ég laðaðist að,“ segir hún.
Aemilia seldi háskóla í Kanada
bréfin sem Graves sendi henni.
Samkomulag var gert við Graves
fjölskylduna um að ekki mætti
lesa bréfin fyrr en eftir dauða
Beryl. Hún lést árið 2003 og því
má búast við að ekki sé langt þar
til bókmenntafræðingar eða blaða-
menn birti ítarlega umfjöllun um
þau.
Robert Graves, höfundur bókanna um Kládíus var mikill kvennamaður og nú hefur fyrr-
um ástkona hans, Aemilia Laracuen skýrt frá sambandi þeirra en þau sjást hér saman á
mynd.
Mynd af vídeóverki Anouk De Clercq.
Prjár sérsýn•
ingar i Safni
Metsölulistinn - allar bækur
Almanak Háskóla fslands
Háskólaútgáfan
Endalausorka
Judith Millidge
Skugga Baldur - kilja
Sjón
4 fslandsklukkan - kilja
Halldór Laxness
5 Grafarþögn - kilja
Arnaldur Indriðason
6 Lovestar - kilja
Andri Snær Magnason
^ Almanak Þjóðvinafélagsins
Sögufélagið
Þú ert það sem þú borðar
Gillian McKeith
9 Sjálfstætt fólk - kilja
Halldór Laxness
10 Skítadjobb - kilja
Ævar Örn Jósepsson
Listarnir etu gerðir út frá sólu dagana 28.12.0S - 03.01.06 i
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar
Metsölulistinn - allar bækur
^ Ultimate Hitchhiker's Guide
‘ DouglasAdams
2 The Innocent
Hadan Coben
Silver Spoon
Phaidon
4 Eldest/Eragon Boxed Set
Christopher Paolini
TheChronidesof Narnia
C.S. Lewis
The Big Book of Su-Doku
' Mark Huckvale
j T0EFL Test with CD-Rom 11. edition
Pamela J. Sharpe
8 Times History of the 20'th Century
Richard Overy Ed.
9 The Closers
Michael Connelly
Winning
Jack Welch & Susan Welch
Listarnir eru gerðir út frá sdlu dagana 28.12.0S - 03.01.06 í
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar
Þrjár sérsýningar opna í Safni,
Laugavegi 37, laugardaginn
i4.janúar kl. 16.00. Sýningarnar
eru opnar i4.janúar til ó.febrúar.
Listamennirnir sem sýna eru:
Anouk De Clercq - Log, Einar Falur
Ingólfsson - Sögustaðir, Greg Barr-
ett - kynning á nýjum verkum
Anouk De Clercq
Belgíska listakonan Anouk De
Clercq vinnur aðallega með mynd-
bandsmiðilinn, verk sem m.a. leiða
áhorfandann í ferðalag um tölvu-
gerða innviði bygginga, þar sem
ljós og skuggar mynda arkítektú-
rísk form. Hún sýnir einnig önnur
verk sem byggja á ferð um tölvugert
landslag, takast á við draumástand
og að skapa skipulag í óreiðu.
Einar Falur Ingólfsson
í nokkur ár hefur Einar Falur farið
um söguslóðir tiltekinna íslend-
ingasagna og ljósmyndað landið og
ábúendur á þeim bæjum sem koma
við sögu, um 1.000 árum eftir að
sögurnar eiga að hafa átt sér stað.
Ljósmyndaverkin í Safni eru frá
sögustöðunum úr Njálssögu; Hlíð-
arenda og Bergþórshvoli. Við Hlíðar-
enda er horft upp að meintum haugi
Gunnars Hámundarsonar. Á Berg-
þórshvoli stendur ábúandinn Eggert
Haukdal á bæjarhólnum forna og í
eldhúsi hans hangir gömul loftmynd
af byggingu Guðjóns Samúelssonar
arkitekts sem stóð þar á hólnum
- á þeim sama stað sem fornleifaupp-
gröftur sýndi að hús höfðu brunnið
á Söguöld.
Greg Barrett
Greg Barrett er ungur listamaður
sem sýnir nú keramikskálar sínar í
Safni. I verkum sínum fæst Barrett
við þá tilviljanakenndu útkomu leir-
brennslunnar sem fæst við notkun
mismunandi kemískra efna í bland
við lífræn efni úr daglega lífinu s.s.
sígarettuösku, kaffikorg og sjávar-
þang. Þannig verða skálarnar um
leið frásögn aflífi Iistamannsins, Iíkt
og daglegt safn skissubókarinnar.
Hættu að reykja
Salka hefur gefir út bókina Ef ég
get hætt getur þú það líka. Valgeir
Skagfjörð leikari og fyrrum stór-
reykingamaður deilir hér með
lesendum reynslu sinni af því að
hætta reykingum fyrir fullt og allt.
Þetta er bók fyrir alla þá sem vilja
hætta að reykja og eru orðnir lang-
þreyttir á skyndilausnum. Þjóð-
þekktir einstaklingar hafa reynt að-
ferðir Valgeirs með góðum árangri
og þar má meðal annarra nefna,
Einar Má Guðmundsson rithöf-
und, Eyþór Gunnarsson tónlistar-
mann og Súsönnu Svavarsdóttur
rithöfund.
109 SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóörétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
5 7
9 1 2
9 1 2
8 3 7
9 2 1 8 4 3
6 4 8
7 9 1
7 4 1
4 3
1 5 2 9 7 6 4 8 3
8 7 9 3 4 5 1 2 6
3 6 4 1 2 8 9 5 7
5 1 6 7 8 4 3 9 2
9 2 8 5 1 3 7 6 4
7 4 3 2 6 9 5 1 8
2 8 7 4 5 1 6 3 9
6 3 5 8 9 7 2 4 1
4 9 1 6 3 2 8 7 5