blaðið - 17.01.2006, Qupperneq 4
4 I INWLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 blaöiö
íslandsbanki:
Hlutabréfakaup
vekja spurningar
Sömu stjórnendur fá kauprétt ogfengu ífyrra. Þá voru bréfin seld nákvœmlega þremur
mánuðum síðar. Deilt á misjafna aðstöðu hluthafa.
BlaöiS/Steim Hugi
Icex:
Bankarnir
hækka enn
Hlutabréf í KauphöU íslands
hækkuðu mikið i gær eins og
þau hafa raunar gert jafnt og þétt
frá áramótum. Úrvalsvísitalan
hækkaði um 1,74% og er hún nú í
6176 stigum, sem er met. Viðskipti
með hlutabréf námu rösklega
11,3 milljörðum og þar báru hæst
viðskipti með bréf í KB Banka
upp á 5,4 milljarða. Mesta hækkun
var á bréfum Atlantic Petroleum,
sem hækkuðu um 7,08%. Bréf í FL
Group hækkuðu um 2,73% og bréf
Landsbankans hækkuðu um 2,93%.
Mesta lækkun í Kauphöllinni var
hins vega hjá Mosaic Fashion, 2,08%
og bréf í Össuri lækkuðu um 1,30%
Fram úr björtustu vonum
Nokkur fyrirtæki hafa hækkað
gríðarlega mikið á þeim sextán
dögum sem liðnir eru frá áramótum.
Það eru FL Group og íslandsbanka
sem mest hafa hækkað en bréf í
fyrirtækjunum hafa hækkað um
20%. Hækkunin þessa fyrstu daga
ársins er mun meiri en bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona, en því
má ekki gleyma að hlutabréf hafa
hvergi í hinum vestræna heimi á
undanförnum tveimur árum en
einmitt tá fslandi. Miklir peningar
virðast vera í umferð og er því þrýst-
ingur á hækkanir á hlutabréfúm.
Útrás bankanna hefur haff sitt að
segja, en þeir hafa náð að margfalda
veltu sína á stuttum tíma. Flest
verðbréfafyrirtæki spáðu áfram-
haldandi hækkunum á markaði á
þessu ári, að minnsta kosti fyrri
hluta ársins, en þessar hækkanir
eru framar björtustu vonum.
BlaM/Frikki
Eins og frá var greint í Blaðinu í
gær hafa spurningar vaknað um
hlutabréfakaup Bjarna Ármanns-
sonar, forstjóra fslandsbanka, í
bankanum, en skammt er í uppgjör
hjá bankanum. Fleiri stjórnendur
hafa fengið kauprétt eða keypt í
bankanum að undanförnu og hafa
heimildarmenn Blaðsins á fjármála-
markaði látið í Ijós áhyggjur af því
hvernig að málum er staðið. Sérstak-
lega staldra menn við það að við
hlutafjáraukningu hafi stjórn fallið
frá forkaupsrétti hluthafa, en síðan
tekið ákvörðun um að selja sjálfum
sér og útvöldum hluthöfum.
193 milljónirá mann
í liðinni viku var tilkynnt um kaup-
réttarsamninga fimm framkvæmda-
stjóra íslandsbanka. Samkvæmt
þeim fá þeir hver um sig að kaupa
fyrir rúmar 193 milljónir á næstu
þremur árum, 10 milljónir hluta
á genginu 19,34. I tilkynningunni
segir að þetta sé gert til þess að binda
betur saman hagsmuni fyrirtækis-
ins og hiuthafa.
Athygli vekur að þessir sömu
stjórnendur fengu og notfærðu sér
siíka samninga í fyrra, en markmið
þeirra samninga var líka sagt það
að tengja saman hagsmuni hluthafa
og stjórnenda. Sú tenging stóð hins
vegar ekki nema í þrjá mánuði, en
nú freistar bankinn þess að tengja
stjórnendur og hiuthafa enn og aftur
og eru kaup framkvæmdastjóranna
fimm bundin næstu þrjú árin.
Vafasamir samningar
í fyrra vöktu þessir samningar sér-
staka athygli vegna þess að stjórn-
endurnir seldu bréfin nákvæmlega
þremur mánuðum eftir að þeir
keyptu þau, en fyrr máttu þeir
ekki selja. Þannig leystu þeir til
sín tæplega hálfan milljarð króna
í söluhagnað af bréfunum. Vakti
það spurningar um hver eiginlegur
tilgangur kaupréttarsamninganna
hafi verið og var talað um duldar
bónusgreiðslur í því samhengi.
Stjórnendur lækkuðu
hlutabréfaverð
Ekki síður var það gagnrýnt að hin
mikla sala æðstu stjórnenda bank-
ans átti vafalaust sinn þátt í lækkun
á gengi hlutabréfa í íslandsbanka, en
þann dag námu viðskipti með bréf
í fslandsbanka um 5,7 milljörðum
króna og féll gengi bréfanna um
1,9%. Bjarni Ármannsson, forstjóri
íslandsbanka og einn umræddra
stjórnenda tók undir þá skoðun. í
kjölfarið sigldu spurningar á mark-
aðnum um það, hvort stjórnendur
fjármálastofnunar á borð við fs-
landsbanka ættu að geta staðið í við-
skiptum af þeirri stærðargráðu, sem
skaðað gæti hagsmuni þúsunda ann-
arra hluthafa bankans.
Þá kom fram kom að hlutabréfa-
kaup stjórnendanna voru skuldsett,
en ekki fékkst upplýst hver hefði
lánað fyrir þeim eða á hvaða kjörum.
Eins lék mörgum hugur á að vita
hvort öðrum fjárfestum í íslands-
banka stóð til boða að fá lán á sam-
bærilegum kjörum, til þess að auka
við hlut sinn í bankanum.
Olíuverð hækkaði á heimsmörk-
uðum í gær. Óvíst er hvaða áhrif
það gæti haft á eldsneytisverð hér
heima.
Óvissa með stjórnmálaástand
Verð á hráolíu á heimsmörkuðum
hækkaði um hálfan dollar í gær í
kjölfar frétta um vaxandi spennu
milli frans og vesturlanda. Þá hefur
óvissa með stjórnmálaástandið í
Nígeríu einnig átt sinn þátt í því að
skapa óróa á olíumörkuðum en Níg-
ería er áttundi stærsti útflytjandi
hráolíu í heiminum.
Magnús Ásgeirsson, hjá innkaupa-
og áhættustýringardeild Olíufélags-
ins ehf, segir verðsveiflur af þessu
Ingólfsfjall
Mun lækka um
80 metra verði
af efnistöku
Skipulagsstofnun hefur borist
frummatsskýrsla Fossvéla ehf.
vegna mats á umhverfisáhrifum
efnistöku úr Ingólfsfjalli. Gert er
ráð fyrir að allt að tvær milljónir
rúmmetra verði teknar úr fjallinu
á 10 - 15 ára tímabili. Efnistakan
verður með þeim hætti að efni
verður rutt fram af fjallsbrúninni
og að fjallsrótum. Segir í skýrslunni
að fyrirghugaðar framkvæmdir
muni hafa mikil, neikvæð sjónræn
áhrif og að áhrifin verði varanleg
og óaffurkræf. Fjallsbrúnin mun
breytast á kafla og verður breyt-
ingin mjög sýnileg. Einnig mun
fjallsbrúnin lækka um 80 metra.
Ef litið er til jákvæðra þátta gerir
skýrslan ráð fyrir því að umferð
vörubifreiða á vegum muni minnka
vegna þess hve stutt er í námuna
frá helstu markaðssvæðum. Næsta
sambærilega náma við Ingólfsfjall er
í Lambafelli og gert er ráð að kostn-
aður myndi aukast talsvert verði
hún frekar fyrir valinu. Efnis- og
flutningskostnaður mun jafnframt
aukast um 200 - 300 milljónir á
ári miðað við núverandi kostnað.
tagi ekki óalgengar og erfitt sé að
meta hversu mikil áhrif ástandið
í íran og Nígeríu muni hafa á elds-
neytisverð hér heima. „Það koma
svona fréttir af og til og sem betur
fer hafa þær ekki alltaf mikil áhrif.“
Magnús segir að í kjölfar vaxandi
spennu milli vesturlanda og írans
hafi þó byrjað að gæta ákveðins
óróa á mörkuðum í síðustu viku og
hækkanirnar í gærmorgun endur-
spegli m.a. það. „Ef að franir færu
að skrúfa fyrir olíuna þá byrjar ein-
hver vitleysa á markaðinum. En ég
hef bara trú á því að menn beri gæfu
til þess að koma í veg fyrir slíkt. Enn
sem komið er hækkunin ekki mikil
og gæti vel gengið til baka.“
Olíuverð:
Vaxandi órói á mörkuðum
1,1 "'"i '"'.'j
Vale
Allt almennt múrverk
Áratuga reynsla Sími 893 5315 valex@simnet.is
Húsaviðgerðir
Steining
Flísalagnir
Múrkerfi
ÞÚ ERT ÞAÐ
SEM ÞÚ REYKIR
Skordýraeitur, etanól, tjara, blásýra,
ammoníak, arsenik, aceton, kvikasilfur,
brennisteinsvetni, kveikjarabensín, blý,
eldflaugaeldsneyti, kolsýringur o.fl.
LYÐHEILSUSTOÐ
- lifiö heil
Vinningshafar í hönn-
unarsamkeppni ljóskers
Ljóstæknifélag (slands, Tímaritlð Ljós og Orkuveita Reykjavíkur hafa staðið fyrir
hönnunarsamkeppni um Ijósker í vetur. Vinningstillöguna átti arkitektinn Massimo
Santanicchia, en f öðru sæti urðu arkitektarnir Sigurður og Jóns Stefán Einarssynir og
tæknifræðingurinn Jón Otti Sigurðsson. Tillaga Estherar (rar Steinarsdóttur, vöruhönn-
uðar hafnaði svo í þriðja sæti.
Markaðsvaktin - Veist þú hvað er að gerast á markaðnum í dag?
ÓKEYPIS
á www.mentis.is
Microsoft■
C E R T I F I E D
Sigtúni 42 105 Reykjavfk Sími 570 7600 infoOmentis.is
a mentis
HUGBÚNAÐUR