blaðið

Ulloq

blaðið - 26.01.2006, Qupperneq 10

blaðið - 26.01.2006, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006 blaðÍA Flug riðlast þrátt fyrir verkfallslok Mannekla í breska hernum Verkfalliflugmanna hjá SAS lauk ígœr en búist er við aðþað muni hafa áhrifáflugáœtlun fram eftir degi. Meira en 750 ferðum var aflýst þá þrjá daga sem verkfallið stóð ogflugfé- lagið varðfyrir stórtapi Það var einmanalegt um að litast á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn í gær enda fjöl- mörgum flugferðum aflýst vegna verkfalls flugmanna hjá SAS. Búist er við að áætlunarflug flugfé- lagsins SAS frá Kaupmannahöfn og Ósló muni riðlast í dag, þrátt fyrir að verkfalli flugmanna félagsins hafi lokið síðdegis í gær. Verkfall- inu lauk í kjölfar þess að stéttarfé- lögum flugmannanna í Danmörku, Noregi og Svíþjóð var stefnt fyrir vinnuréttardómstól í Stokkhólmi. 1 gær var þriðji dagur verkfalls- ins sem hefur valdið meiriháttar röskunum á flugsamgöngum. SAS heldur því fram að samkvæmt gild- andi kjarasamningum flugmann- anna sé þeim óheimilt að fara í verkfall. Talsmaður flugmann- anna sagði i gær að þeir myndu snúa aftur til vinnu ef dómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að verkfallið væri ólöglegt. Meira en 750 ferðum aflýst Meira en 750 flugferðum hefur verið aflýst í Kaupmannahöfn og Ósló síðan verkfallið hófst á mánu- dag og þúsundir farþega hafa orðið strandaglópar. Jens Stoltenberg, forsætisráð- herra Noregs, skipaði Liv Signe Navarsete, samgönguráðherra, að athuga hvort stjórnvöld ættu ein- hverja möguleika á því að grípa inn í málið ef verkfallið drægist á langinn. „Þetta er algerlega óásættanleg staða sem hefur áhrif á fjölda saklauss fólks,“ sagði Stol- tenberg í viðtali við dagblaðið Ver- dens Gang. Gengi hlutabréfa í SAS féll Gengi hlutabréfa í SAS Group féll um allt að 4,5 sænskar krónur í kauphöllinni í Stokkhólmi í gær út af verkfallinu og talið er að félagið tapi jafnvirði 300 milljóna íslenskra króna á degi hverjum. Flugmennirnir vilja með verkfall- inu mótmæla fyrirhuguðum breyt- ingum á kjarasamningum þeirra sem þeir óttast að kunni að leiða til uppsagna og verri starfsskilyrða. Skipulagsbreytingin er liður í viða- mikilli sparnaðaraðgerð SAS sem ætlað er að skila félaginu hagnaði eftir nokkur tapár. Krafist lífstíðar- fangelsis Saksóknarar á Indónesíu hafa farið fram á að íjórir Ástralar verði dæmdir til lífstíðarfangelsis og sá fimmti til tuttugu ára fangelsis fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl. Fimmmenningarnir eru á meðal níu Ástrala sem handteknir voru á ferðamannaeyjunni Balí í apríl fyrir að reyna að smygla meira en 8,2 kg af heróíni til Ástralíu. Áður höfðu saksóknarar farið fram á dauðarefs- ingu yfir einum höfuðpauranna í málinu og að tveir til viðbótar yrðu dæmdir í lífstíðarfangelsi. Hægt er að dæma fólk til dauða fyrir eiturlyfjasmygl á Indónesíu og hafa yfirvöld þar í landi skorið upp herör gegn smygli á Balí sem þau segja að sé að verða miðstöð alþjóðlegrar dreifingar á eiturlyfjum. Móöir eins sakbornings hughreystir hann fyrir réttarhöldin. Edge barstóll - ftölsk hönnun og framleiósla Tvísýnar kosningar í Palestínu Jafnt var með tveimur stcerstu fylkingunum samkvœmt skoðana- könnunum. Óvíst er hvaða áhrif gott gengi Hamas-samtakanna muni hafa áfriðarferlið. Hamas-samtökin og Fatah-hreyf- ingin, tvær stærstu stjórnmálafylk- ingar í Palestínu, voru báðar sigur- vissar í gær þegar Palestínumenn gengu til þingkosninga. Báðar fylk- ingarnar sögðust geta íhugað sam- steypustjórn ef hvorug þeirra ynni afgerandi sigur. Jafnt var með fylk- ingunum samkvæmt skoðanakönn- unum. Kjörsókn var góð og síðdegis í gær höfðu þegar um 60% atkvæðis- bærra manna greitt atkvæði Mahmoud Abbas, leiðtogi Palest- ínumanna, sagðist vera reiðubúinn að taka aftur upp friðarviðræður við ísraelsmenn jafnvel þó að Hamas- samtökin gengju til liðs við ríkis- stjórnina að kosningum loknum. Jafnvel þó að Hamas-samtökin vinni ekki sigur í kosningunum er þeim spáð góðum úrslitum sem gætu fleytt þeim í ríkisstjórn í fyrsta sinn. Góður árangur Hamas hefur skotið yfirvöldum í ísrael og víðar skelk i bringu enda bera samtökin ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása á undanförnum árum. Þau hafa hins vegar ekki staðið að sjálfsmorðs- árásum síðan vopnahléi var lýst yfir fyrir ári síðan og það þykir vera til marks um að þau kjósi fremur að vinna að framgangi sinna mála eftir hefðbundnum leiðum. Ismail Haniyeh, helsti frambjóð- andi Hamas, hefur að vísu lýst því yfir að samtökin hafi ekki í hyggju að leggja niður vopn eftir kosning- arnar eins og Abbas vonast til. Þá hefur annar háttsettur frambjóð- andi lýst því yfir að samtökin muni ekki hvika frá þeirri stefnu sinni um eyðingu Israelsríkis. Palestínsk kona sýnir blekbláan fingur sinn eftir að hafa greitt atkvæði í Gasaborg. Breski herinn býður fyrrverandi hermönnum 6000 pund (um 660.000 ísl. kr.) fyrir að skrá sig á ný í herinn í örvæntingarfullri tilraun til að stemma stigu við fækkun hermanna. Herferðinni er einkum beint að ungum, lægra settum foringjum sem hafa hætt í hernum til að vinna fyrir sér sem öryggisráðgjafar í Irak. Um 3000 hermenn, þar af um 590 yfirmenn, vantar upp á til að liðið sé fullskipað. Einkarekin öryggisfyrirtæki hafa boðið fyrrverandi hermönnum allt að þrefalda launahækkun fyrir að taka að sér öryggisgæslu í írak. Þá hefur nýskráningum í herinn fækkað af öðrum or- sökum, svo sem stríðinu í írak, frásögnum af illri meðferð og litlu atvinnuleysi heima fyrir. Varnarmálaráðuneytið stendur straum af átakinu sem gæti kostað það hundruð þúsunda punda. kveikir í húsi Ungur Austurríkismaður kveikti í íbúð sinni þegar hann hugðist koma kærustu sinni á óvart. Hann raðaði 220 kertum á gólf íbúðar- innar þannig að þau mynduðu hjarta. Þegar hann var húinn að raða upp kertunum kveikti hann á þeim og fór siðan úr húsi til að ná í kærustuna í vinnuna. Því miður vildi ekki betur til en svo að það kviknaði í íbúðinni á meðan hann var að ná í hana. Ástareldurinn sem brann á milli elskendanna er nú að ösku orðinn og hefur kærastan flutt heim til foreldra sinna á ný. Hiksti leiðir til tveggja dauðsfalla Maður í Kólumbíu skaut ungan frænda sinn fyrir slysni til bana á dögunum. Maðurinn beindi skammbyssu að frændanum í því skyni að hræða hann nógu mikið til þess að hann losnaði við þrálátan biksta. Ekki vildi betur til en svo að skot hljóp úr byssunni sem fór í háls unga mannsins sem lést samstundis. Slysið fékk svo á byssumanninn að hann beindi vopninu næst að sjálfum sér og tók í gikkinn. Hið hörmulega atvik átti sér stað síðastliðið sunnudags- kvöld þegar mennirnir tveir sátu að drykkju með nágrönnum sínum í hafnarborginni Barranquilla. Betra skiputag á nýju ári! e ifc>i ...með skrifstofuvörum frá Múlalundi 339kr.pr.stk ujrssfina.:?** 1.080kr. pk/ Hátúni lOc • S: 562-8500 • Fax: 552-8819 • www.mulalundur.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.