blaðið - 26.01.2006, Side 16
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006 bla6Í6
16 IFERÐALÖG
GIRNILEGIR
& GÓÐIR
SMÁRÉTTIR í VEISLUNA
OSTA OG SÆLKERAKÖRFUR
LÉHIR RÉniR í HÁDEGINU
VEISLUÞJÓNUSTA
SMÁRÉTTIR SÉRVARA
OSTABUÐIN
Skólavörðustfg 8, 101 Reykjavík - Pöntunarslmi: 562 2772
Leiðin liggur
út um páskana
f Havana, höfuðborg Kúbu, iðar allt af mannlífi og stefna fjölmargir fslendingar þangað um páskana. Hjá Plúsferðum er uppselt til
Kúbu.
Sífellt fleiri ákveða að nýta sér
páskahátíðina til að skella sér í
gott frí, hvort heldur sem er með
fjölskyldunni, makanum eða
vinunum. Þeir sem ekki flúðu ís og
myrkur um jólin hugsa sér margir
til hreyfings um páskana og fer nú
hver að verða síðastur að bóka sér
utanlandsferð. Blaðið setti sig í
samband við þrjár ferðaskrifstofur
og fékk að fræðast um það vin-
sælasta sem er í boði þessa páska.
Kom á daginn að fólk virðist nú-
orðið sækja minna í skíðaferðir en
áður, en sólríkar og framandi slóðir
verða miklu heldur fyrir valinu.
Ljubljana og Ijónin í Afríku
Guðrún Sigurgeirsdóttir, fram-
leiðslustjóri hjá Úrval Útsýn, segir
safaríferðir til Mombasa í Kenýa
tvímælalaust vera það heitasta sem
ferðaskrifstofan býður upp á um
páskana. Að þessu sinni er farið
með leiguflugi og er hópurinn sá
stærsti sem farið hefur en hann
telur 212 manns. „Ástæðan fyrir því
að fólk velur að fara til Kenýa er tví-
þætt. Annars vegar er fólk að fara
til að slappa af, gista á góðu hóteli
og láta líða úr sér við strendur Ind-
landshafsins. Hins vegar er fólk að
fara til að upplifa spennandi hluti
og fara í ævintýraferðir," segir Guð-
rún. „ Til að mynda er hægt að sigla
á skútu meðfram ströndinni, fara í
menningarferðir um borgina og svo
náttúrulega að upplifa það að skoða
villidýrin í Afríku."
Guðrún segir ekkert því til fyrir-
stöðu að taka börnin með í slíkar
ferðir en þó séu fullorðnir í meiri-
hluta að þessu sinni. „En börnin hafa
auðvitað ekki síður en fullorðnir
gaman að því sjá ljónin í Afríku,“
bætir hún við. n daga ferð kostar á
bilinu 150-160 þúsund á mann og er
hálft fæði innifalið í verðinu. Þegar
blaðamaður náði tali af Guðrúnu í
gær voru einungis 10 sæti laus svo
ljóst er að áhugasamir þurfa að hafa
hraðar hendur.
Af öðrum spennandi áfangastöðum
sem Úrval Útsýn býður upp á má
nefna Lubljana, höfuðborg Slóveníu.
Guðrún segir Ljubljana vera ákaflega
spennandi og skemmtilega borg sem
sé óðum að komast á kortið sem vin-
sæll ferðamannastaður. „1 Ljubljana
getur fólk gert ævintýralega góð kaup
því verðlagið er með eindæmum lágt.
Það er hár gæðastaðall á hótelunum,
borgin er lítil og þægileg og maturinn
Benidorm hefur löngum veriö vinsæll áfangastaöur meðal fslendinga og verður jafnvel
sá allra vinsælasti í ár.
Úrval Útsýn býöur upp á spennandi safaríferöir til Mombasa í Kenýa. Vafalaust ógleymanleg upplifun fyrir ævintýraþyrsta fslendinga.