blaðið - 26.01.2006, Page 17
blaðið ! FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006
FERPALÖG I 17
er góður,“ segir Guðrún.
Sökum þess hversu seint á árinu
páskarnir eru að þessu sinni býður
Úrval Útsýn ekki upp á sérstakar
skíðaferðir til Alpanna eins og oft hafa
verið áður. Eftir sem áður er þó ennþá
boðið upp á vinsælar páskaferðir til
Dublin, Portúgal og Kanaríeyja.
Allt að seljast upp
Jörg Königseder, sölufulltrúi hjá
Sumarferðum, segir að tilboðsferðir
um páskana hafi selst eins og heitar
lummur og t.a.m. sé núþegar nær upp-
selt til Alicante, Calpe og Benidorm.
Hins vegar er búið að bæta við auka-
ferð til Kanaríeyja. Verð á ferðum til
Kanarí er allt á milli 40-100 þúsund
krónur og fer þá eftir gæðastuðli á hót-
elinu sem gist er á og hvort matur er
innifalinn eður ei. Jörg segir að allur
gangur sé á því hverjir fari til Kan-
aríeyja, það sé mildð til eldra fólk en
einnig fjölskyldufólk og ungmenni.
Tenerife tilheyrir Kanaríeyja-
klasanum en hún er stærst af sjö
eyjum Kanaríeyja og er staðsett um
300 kílómetra norður af Afríku. Jörg
segir að enn séu laus sæti um páskana
til Tenerife en sá áfangastaður er að
hans sögn mjög vinsæll. Segir hann
að athygli hafi valdð hversu mikið
fólk hafi verið að bóka lúxushótelin
þar og virðast margir kjósa fremur
dýrari og glæsilegri valkost. Ferð til
Tenerife og gisting á fimm stjörnu hót-
eli kostar rúmar 100 þúsund krónur
og er þá innifalinn morgunmatur.
„Það er varla hægt að hafa það glæsi-
legra,“ segir Jörg um Tenerife.
Benidorm vinsælast í ár
„Kúba, Portúgal og Benidorm," svaraði
Laufey Jóhannsdóttir, framkvæmda-
stjóri Plúsferða, að bragði aðspurð um
vinsælustu páskaferðirnar. Hún segir
að allt líti út fýrir að Benidorm verði
vinsælasta sólarlandaferðin í ár. „Beni-
dorm er alltaf jafn vinsælt og vinsælla
nú en nokkru sinni fýrr. Ekki bara
um páskana heldur hefur fólk mikið
verið að bóka ferðir þangað í sumar,“
segir Laufey og telur meginástæðuna
vera að íslendingar þekki staðinn vel
og hafi af honum góða reynslu. Hún
segir að þó að Benidorm sé hin klass-
íska sólarlandaferð sé hægt að finna
sér margt annað að gera en að liggja
bara á ströndinni. „Til dæmis horfa
margir til þess að hægt er að fara í golf,
enda er að finna rosalega flotta golf-
velli á Benidorm," segir Laufey.
Ferðirnar til Kúbu eru uppseldar
um þessa páska en þær hafa notið
sívaxandi vinsælda. Farið er til höfuð-
borgarinnar Havana en einnig býðst
gestum að fara til Varadero þar sem
hægt er að sóla sig á ströndinni. „Fólk
er að fara til að njóta Kúbu á meðan
Castro er ennþá við völd og vill sjá um-
hverfið og þessa veröld," segir Laufey.
Samanlagt eru um 350 manns að fara
til Kúbu á vegum Plúsferða og Úrvals
Útsýn um þessa páska en ódýrustu
ferðirnar þangað kostuðu í kringum
80 þúsund krónur.
bjorn@bladid.net
j .
Ferð.is starfar út frá Kaupmannahöfn ogbýður upp á nýjar lausnir íferðamálum fyrir íslendinga.
Ferðast ódýrt um heiminn
Ferð.is er ný íslensk ferðaþjónusta sem
býður upp á ódýrar lausnir fyrir Islend-
inga í ferðahugleiðingum. „Við erum í
rauninni að benda fólki á ýmsa mögu-
leika í ferðalögum sem það hefði e.t.v.
annars ekki fundið,“ segir Jón Haukur
Daníelsson, sem á og rekur þjónustuna.
Jón Haukur bjó í Danmörku í 18 ár og
rak þar ferðskrifstofuna Islandsrejser
þar sem hann starfaði sem tengiliður
fýrir Dani sem vildu ferðast um heim-
inn. Eftir að hann flutti aftur til Islands
ákvað hann að halda þjónustunni
áfram, en nú fyrir íslendinga og í nóv-
ember síðastíiðnum stofnaði hann Ferð.
is. Þjónustan starfar í samvinnu við
Ticketitravel sem er undir ströngu
dönsku gæðaeftirliti.
„Þjónustangengur út áað tryggja fólki
sem ódýrasta ferðamöguleika," segir
Jón Haukur, en hann býður einnig upp
á að bóka hótel, bílaleigubíla og annað
tilfallandi fyrir fólk sem er að ferðast.
Snýst um að hjálpa fólki
Jón Haukur segir að með því að nýta
sér þjónustu Ferð.is og fljúga frá Kaup-
mannahöfn geti fólk sparað sér a.m.k.
helming af verðinu sem það væri ann-
ars að greiða. Nefnir hann sem dæmi
að hægt sé að fá vikuferð til Taílands
með hótelgistingu á um 50 þúsund
krónur. „En maður þarf alls ekki að
vera að fara svona langt i burtu til þess
að hagnast á þessari þjónustu,“ segir
Jón Haukur. „Fólk getur farið til t.d.
Barcelona eða Parísar fyrir innan við 10
þúsund krónur. Það þarf bara að byrja
á að koma sér til Kaupmannahafnar."
Hann segir að fjölmörg dæmi séu um
að fólk ferðist í gegnum þjónustuna til
staða sem íslensk flugfélög bjóði upp á
ferðir til. „Það eru meira að segja dæmi
um að fólk sé að panta sér- ferðir til Or-
lando hjá okkur. Þó að Flugleiðir fljúgi
til Orlando hefur fólk einfaldlega þurft
að borga miklu minna hjá okkur fýrir
bæði flug og hótel heldur en bara fyrir
flugið með Flugleiðum.“
Jón Haukur segir þjónustuna vera
alhliða og ekki einskorðast við bók-
Jón Haukur Daníelsson ásamt syni sínum
Daníel sem starfar einnig hjá fyrirtækinu.
anir. „Ef fólk leitar til mín með eitthvað
sem við getum ekki boðið upp á þá
hika ég ekki við að benda því á aðra
möguleika, hvort sem þá er að finna
hjá keppinautum eður ei. Mér finnst
heiðarleikinn skipta öllu máli í þessu.
Þessi þjónusta snýst náttúrulega um
að hjálpa fólki,“ segir Jón Haukur að
lokum._______________________________
Á heimasíðu Ferð.is (www.ferd.is) má
finna nánari upplýsingar um fyrirtækið
og þau tilboð sem það býður upp á.
Göngugreiningu
Stuðningshlífar
innlegg
Hitahlífar
Ráðgjöf
Armstafi
íþróttaskó
Gönguskó
Barnaskó
fleXor
ecco' <^asiG
NÆSTA SKREF
Suðurlandsbraut 34 • Sími 517 3900