blaðið - 26.01.2006, Page 22
22 I VIÐTAL
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006 blaöiö
Forvitnin rekur mig áfram
Bryndís Schram er komin aftur
til íslands eftir átta ára búsetu í
útlöndum, fimm ár í Bandaríkj-
unum og þrjú ár í Finnlandi. „Við
Jón Baldvin lítum á þá dvöl sem
nám, eins konar endurmenntun,"
segir Bryndis. „Mig hefði aldrei
órað fyrir því að munurinn
væri svona mikill á því að búa
í Ameríku og Skandinavíu. Á
Norðurlöndum búum við að vel-
ferðarkerfi sem byggist á því að
menn beri ábyrgð hver á öðrum
en í Ameríku gildir reglan að
duga eða drepast. Þar kostar allt
peninga og þar er ekkert net sem
tekur fallið af fólki ef það hrapar.
Ég hef hitt bandarískar konur
sem lentu á götunni af því þær
áttu ekki fyrir sjúkrakostnaði. Ég
upplifði þetta miskunnarleysi
mjög sterkt.“
Hvað hefur komið þér mest á
óvart við að koma heim eftirþessa
löngu fjarveru?
„Það er gott að koma heim í des-
ember, allir eru glaðir og kátir og
jólin eru framundan. En það er
jafn nöturlegt á bak jólum. Veðrið
og mannfólkið dregur dám hvort
af öðru, maður veit aldrei hvaðan
á sig stendur veðrið. Maður leggst
til svefns við tunglskinsbjarta fönn-
ina. Um nóttina leikur húsið á reiði-
skjálfi í fárviðri. Svo vaknar maður
upp við hellirigningu, auða jörð,
krap, slyddu og forað allt um kring.
Svona er veðrahamurinn óútreikn-
anlegur. Er mannskepnan ekki
undir sömu sök seld?
Ég bý upp í sveit og í byrjun árs
var ekki laust við, að ég fyndi til ein-
manakenndar. Allt venst þetta samt.
En mér liður dálítið eins og Bödda
í Roklandi eftir Hallgrím frænda.
Ef fólk vill forvitnast um, hvernig
útlagar upplifa Island við heimkom-
una, þá verður það bara að lesa þá
bók.“
Verður að verja velferðarkerfið
Þú ert ekki sátt við það sem þú
sérð?
„Hér virðist allt snúast um pen-
inga, og nánast ekkert annað kemst
að. Hvenær gerðist það? Það er verið
að æsa fólk upp í því að peningar
séu það eina, sem máli skipti í lífinu.
Það finnst mér ekki aðlaðandi sjón-
arhorn á tilveruna. íslenskt þjóðfé-
lag er að breytast, og nú er brýnast
að verja velferðarkerfið. Við megum
ekki glutra niður þvi sem hefur
áunnist. Það tók áratugi að byggja
þetta upp, og mér sýnist að það séu
komin göt á það.
Og Ameríkaniseringin virðist
flæða viðnámslaust yfir allt; sjón-
varpsdagskráin er amerísk, kvik-
myndahúsin eru amerísk, vídeó-
spólurnar eru amerískar. Er ekki
hugarheimurinn á góðum vegi
með að verða amerískur? Hugsaðu
þér: Miðbær Mosfellsbæjar - sem á
að vera íslensk sveit - er Kentucky
Fried Chicken, amerísk vídeóleiga
og bensínstöð. Það mætti halda að
þetta væri Texas.
Finnar eru ekki eftirbátar okkar
í alþjóðavæðingunni. En samt sem
áður eru þeir ekki ameríkaniseraðir.
Sjónvarpsdagskráþeirraeráfinnsku,
og ég gat valið úr tugum evrópskra
kvikmynda á degi hverjum í kvik-
myndahúsum borgarinnar. Draum-
urinn er að eignast sumarhús, þar
sem hvorki er rennandi vatn né raf-
magn. Þeir háma í sig reyktan vatna-
karfa á markaðnum, á meðan við
heimtum amerískan hamborgara.
Finnar eru að sönnu lífsreynd
þjóð, þeir hafa þurft að berjast
fyrir þjóðartilveru sinni kynslóð
eftir kynslóð, öld fram af öld. Þegar
þeir loksins fengu frelsið varð það
þeim svo dýrmætt. Þeir skildu að
varðveisla þjóðernis og þjóðlegrar
menningar er það sem réttlætir sjálf-
stæða þjóðartilveru þeirra. Árangur
Finna í skólastarfi hefur vakið
heimsathygli á undanförnum árum.
Finnskir framhaldsskólanemendur
skara fram úr jafnöldum sínum alls
staðar í heiminum í lestrarskilningi,
rökhugsun, raunvísindum og stærð-
fræði. Þjóðfélagsumræðan snýst
um þetta fremur en frásagnir af
lífsstíl auðkýfinga eða skyndigróða
spákaupmanna."
Er mikill munur á Bandaríkja-
mönnum og Finnum?
„Fólk er alls staðar eins; það er bara
umhverfið, sem er ólíkt, aðstaðan,
lífskjörin. Ég eignaðist lífstiðarvini í
Bandaríkjunum, fólk sem enn skrifar
mér og hefur heimsótt mig hingað.
Finnar eru seinteknir, og þeir tala
helst ekki nema þeir hafi eitthvað að
segja. Það tók mig þrjú ár að átta mig
á þessu, eða í þann mund, sem ég var
að yfirgefa landið. Vinir mínir þar
„Það var ekki fyrr en eftir á, þegar við
vorum flutt úr iandi, að ég fann til léttis,
fannst ég frjáls eins og fuglinn. Fór að
njóta þess að vera til, vera ég sjálf. Þetta
voru kannski mín bestu ár."
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Veldu möguleika
Innréttingar í öll herbergi heimilisins.
Fagleg ráðgjöf og glæsilegur sýningarsalur.
KJKE
^ DESIGN
Óteljandi mötfuleikar
Mörkinni 1 108 Reykjavík
slmi 515 0700 www.jke-design.is