blaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 6
6 I INNLENÐAR FRÉTTIR LA0GARDAGUR 28. JANÚAR 2006 blaöið Framsókn: Prófkjör í dag Framsóknarmenn í Reykjavík efna til prófkjörs í Laugardalshöll í dag. Þar verður valið í sex efstu sæti fram- boðslista framsóknarmanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í vor. Opið er frá ldukkan ío - 18 og rétt til þátttöku eiga allir félagar í framsóknarfélögunum í Reykja- vík, ásamt þeim sem skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við flokkinn. f vikunni fór fram atkvæðagreiðsla utan kjörfundar og var þátttaka þar með besta móti að sögn starfs- manns flokksins. Einn frambjóð- enda, Marsibil J. Sæmundsdóttir nýtti sér það og á myndinni má sjá hana lauma sínu atkvæði í kjörkass- ann. Ellefu einstaklingar berjast um sætin sex, fimm konur og sex karlar. Frá undirritun samnings milli Nýsis og Fjölsmiðjunnar. Útgerð Háseta vantar á bát BlaÖiÖ/Frikki Finna þarf framtíðarlausn um skipulag Vatnsmýrarinnar segir Dagur B. Eggertsson Vatnsmýrin Aðlþjóðleg dóm- nef nd í hugmynda- samkeppni Stór alþjóðleg hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrar- innar er nú í undirbúningi. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, borg- arfulltrúi: „Ég á sæti í nefnd, sem ásamt samgönguráðuneytinu, hefur það hlutverk að taka út Vatnsmýrar- svæðið og finna nýtt flugvallarstæði á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að flestir hagsmunaaðilar séu farnir að átta sig á þvf að við þurfum að finna lausnir, bæði vegna þarfa borgarbúa og flugsins". Búið er að skipa dómnefnd í hug- myndasamkeppninni en í henni sitja Spánverjinn Joan Busquets, sem var yfirmaður skipulagsmála í Barcelona í aðdraganda Ólympíu- leikanna. Hann hefur líka komið að skipulagi flugvallarsvæða um allan heim. Hildebrand Machleit, sem er Þjóðverji, skipulagði og stýrði upp- byggingu og skipulagningu á flug- vallarsvæði í Berlín, og Kees Kaahn. Að lokum er þar Steve Christer full- trúi íslenskra arkitekta. „Þetta er dómnefnd, sem verður kynnt á næstunni og hefur alla burði til þess að vekja alþjóðlega athygli á verkefninu og laða að sterka hópa til þátttöku“, segir Dagur. Viðtal við hann er að finna á bls. 18. Landsbankinn: 25 milljarðar í hagnað 1 ársreikningi Landsbankans fyrir árið 2005 má sjá að hagnaður bank- ans eftir skatta nam 25 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár er einnig góð, eða 46%. Vaxta- og þjónustu- tekjur jukust um 68% á milli ára, eða um 16 milljarða. Hreinar þjón- ustutekjur voru 16,7 milljarðar og er það 88% aukning. Hreinar vaxta- tekjur aukast sömuleiðis um 56% og voru þær 14,7 milljarðar. Tekjur af erlendri starfsemi jukust einnig, um 7,6 milljarða og voru þær 10,4 millj- arðar, eða 17% af hreinum rekstrar- tekjum. Ef litið er á hreinar rekstrar- tekjur má sjá að að aukning þeirra er um 82%, en þær voru 61 milljarðar á árinu. Besta afkoma í sögu bankans Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri, bendir á að afkoman sé sú besta í sögu bankans og segir hann svig- rúm til frekari vaxtar vera verulegt í ljósi mjög sterkrar eiginfjárstöðu. „Uppbygging bankans í alþjóðlegri fyrirtækja- og fjárfestingabanka- starfsemi gengur mjög vel og starfa nú um 600 starfsmenn á vegum bankans í 12 löndum.“ Kortalesarar til sýnis Blalið/lngó Kortalesarar, sem fundust f farangri manns sem kom meö Norrænu til Seyðisfjarðar á dögunum, voru til sýnis hjá iögreglunni f Reykja- vfk í gær. Talið er víst að maðurinn, sem er með búlgarskt vegabréf, eigi sér vitorðsmann hér á landi. Um er að ræða sérútbúin tæki sem sett eru framan á hraðbanka í þeim tilgangi að lesa kort viðskiptavinarins og misnota þau síðan. Maðurinn neitaði allri sök við yfirheyrslur og hefur honum verið sleppt. flokks Ingi Björn sætið 1 Opið prófkjör Framsóknarflokksins í Reykjavík 28. janúar www.bjornmgi.is Þekkingarfélagið Nýsir og Fjöl- smiðjan hafa gert samkomulag um stofnun sjávarútvegsdeildar við Fjölsmiðjuna í Kópavogi. Stefnir smiðjan að útgerð 150 tonna báts þegar á þessu ári og verður áhöfnin skipuð unglingum sem ekki hefur tekist að fóta sig á almennum vinnumarkaði. Nýsir mun leiða hóp stuðningsaðila Fjölsmiðjunnar, sem fjármagna bátakaupin og rekstur deildarinnar. Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, segir fulla þörf á því að koma sjávarútvegsdeildinni á legg. „Hugmyndin er sú að áhöfn bátsins verði skipuð ungu fólki, að undanskildum skipstjóra, stýri- manni og vélstjóra. Um borð fá nem- arnir tækifæri til þess að kynnast sjó- mennskunni, aðlagast lífinu á sjó og læra réttu handbrögðin. Markmiðið er að nemar Fjölsmiðjunnar geti síðan verið gjaldgengir skipverjar og svarað kallinu þegar vanan háseta vantar á bát.” Héraðsdómur Reykjavíkur Fimm Tuttugu og fimm ára gamall karl- maður var í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær dæmdur í fimm mánaða fangelsi, en honum var meðal ann- ars gefið að sök að hafa beitt sautján Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga Qjj?1 HjartaHeill simi 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta fangelsi ára gamla, greindarskerta stúlku kynferðislegu ofbeldi. Ennfremur var manninum gefið að sök að mis- þyrma stúlkunni, brenna með sígar- ettuglóð, sparka í hana liggjandi og hóta henni lífláti. Málið þótti snúið því fórnarlambið var nokkuð tvísaga við yfirheyrslur, sem meðal annars var rakið til þess að yfirheyrslur fóru fram nokkuð eftir að atburðurinn átti sér stað, sem og til greindarskorts hennar. Var maðurinn sýknaður af ákæru um kynferðislega ofbeldið, þar sem ekki þótti full sannað að það hafi átt sér stað. Hann var hinsvegar fund- inn sekur um að hafa beitt stúlkuna ofbeldi og var þvi dæmdur í fimm mánaða fangelsi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.