blaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 22
22 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 blaöið f s 1 jf ám Blaðið/Steinar Hugi „Enginn skyldi gera sér grillur um að hann sé nauðsynlegur og að ekki sé hægt að skipta honum út, hvort sem um er að ræða fyrir- tæki eða einstaklinga,“ segir Kári Stefánsson forstjóri íslenskrar erfðagreiningar. „Fyrirtækið hefur á síðustu árum skilað þokka- legum árangri í mannerfðafræði. Ég þekki reyndar ekki til annarra stofnana í heiminum sem hafa lagt jafn mikið af mörkum þegar kemur að mannerfðafræði, að minnsta kosti hvað varðar algenga sjúkdóma. Hvort það skiptir megin máli fyrir þessa þjóð veit ég ekki. Ég veit ekki hvað þessi þjóð vill eða þarf.“ Finnst þér þessi þjóð erfið og skrýtin? „Nei, mér finnstþessiþjóð fín. Ekki endilega vegna þess að ég viti allt um hana heldur vegna þess að mér finnst að hér eigi ég heima.“ Hvað mikið í manneskjunni eru erfðir og hvað mikið er einstak- lingseðli, óháð erfðum? „Eg held að erfðir séu býsna stór hluti af okkur. Við erum sett saman á grundvelli upplýsinga sem liggja í erfðamengi. Upplýsinga sem urðu til við að erfðamengi frá móður og föður blönduðust. Einstaklingur vaknar, elst upp í umhverfi sínu og verður við það manneskja. Þegar upp er staðið eru menn sambland af því sem þeir erfðu og þeirri tónlist sem þeir hlustuðu á, bókunum sem þeir lásu, matnum sem þeir átu eða átu ekki, fólkinu sem þeir hittu og svo framvegis. Hinn frjálsi vilji er flókið fyrirbæri.“ En trúirðu ekki á þennan frjálsa vilja? „Jú, við höfum öll vilja en stundum vakna hjá mér efasemdir um það hversu frjáls hann er.“ Afhverju efastu um það? „Vegnaþess að maður fæðist á ákveð- inn hátt og upplifir ákveðna hluti og endar sem manneskja með ákveðnar skoðanir sem maður ræður kannski ekkert endilega við.“ Hef lítið keppnisskap Þú ert sterkur persónuleiki. Sumir sem hafa sterkan persónuleika vilja hafa veikgeðja fólk við hliðina á sér. Aðrir sterkir persónuleikar vilja hafa sterka persónuleika sér við hlið. Hvor manngerðin ert þú? „Ég hef ekki hugmynd um það. Ég hef unnið með alls konar fólki. Sumt af því hefur ævintýralega sterkan vilja. Lengi vann ég með Hannesi Smárasyni sem hefur svo sannar- lega látið til sín heyra síðan hann fór héðan. Ég reikna ekki með að menn komi til með að skilgreina hann sem fyrirferðarlítinn einstak- ling eða lítinn persónuleika. Okkur tókst að vinna vel saman. Ég sakna Hannesar dálítið, hann er mikill ævintýramaður. Þegar maður rekur flókið fyrir- bæri eins og þetta fýrirtæki er þá hefur maður ekki efni á að velja í kringum sig fólk vegna þess að það hefur lítinn persónuleika og maður hrekur ekki fólk frá sér vegna þess að það hefur sterkan persónuleika." r v --------------------------------------------------------------------------\ Sjóntækjafræðingur með réttindi tii sjónmælinga og linsumælinga Endurnýjar þú gleraugun þín nógu oft eða langar þig bara í ný? Vaxtalaus kjör í allt að 24 mánuði engin útborgun Suðurlandsbraut 50, I bláu húsunum viö Faxafen Sfmi:568 1800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.