blaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 blaöi6
Norðmenn standa sig
verr í umhverfismálum
Norðmenn falla um 16 sœti á lista yfir umhverfisvœnustu þjóðir
heims samkvœmt nýrri könnun. Ástœða fallsins er meðal annars
breytt viðmið sem notuð eru til grundvallar matinu. Talsmaður
Verkamannaflokksins lofar bótum og betrun.
Noregur hefur fallið um sextán sæti á lista yfir þau ríki sem þykja standa sig hvað best i
umhverfismálum í heiminum.
Vopnasmygl
í Japan
Lögregla í Japan hefur handtekið
fjóra menn, þar af tvo Filipsey-
inga, vegna gruns um að þeir hafi
smyglað sprengiefni og byssum sem
nota mætti til að gera hryðjuverka-
árásir. Lögreglu grunar að fjórmenn-
ingarnir hafi flutt ótilgreint magn
af vopnunum og sprengiefninu til
hafnarborgarinnar Yokohama, á
skipi sem skráð er á Filipseyjum.
I tengslum við málið hefur verið
gerð húsleit í byggingum í eigu
þekktra glæpasamtaka í Yokohama.
Lögregla í Tókýó og Yokohama neit-
aði að tjá sig um málið. I skýrslu jap-
önsku lögreglunnar frá síðasta ári er
því haldið fram að hætta sé á hryðju-
verkaárásum í landinu vegna náinna
tengsla þess við Bandaríkjamenn.
Ekkert lát
á eldum
Hundruð manna hafa neyðst til að
yfirgefa heimili sín vegna mikilla
skógar- og kjarrelda í Viktoríufylki
í Ástralíu. Slökkviliði hefur reynst
erfitt að hamla útbreiðslu fjögurra
stærstu eldanna. Þrír þeirra voru
í gær innan við íoo km frá Melbo-
urne, næst stærstu borg Ástralíu.
Fulltrúi slökkviliðs sagði að rign-
ingar hefðu hjálpað lítillega til á
sumum svæðum. Þá hefði jafnframt
eldur blossað upp í kjölfar þrumu-
veðurs í Grampians-þjóðgarðinum.
Meira en 120.000 hektarar lands
hafa brunnið í þjóðgarðinum. Á
þriðja tug heimila hafa orðið eld-
inum að bráð í Viktoríu, þrír menn
hafa farist og um 61.000 kindur.
Norðmenn hafa fallið úr öðru
sæti í það átjánda á lista yfir
þær þjóðir sem þykja standa sig
best í umhverfismálum í heim-
inum. Prófessorar við hina
virtu bandarísku háskóla Yale
og Columbia, mátu frammi-
stöðu og aðgerðir 133 ríkja
í umhverfismálum og voru
nýjustu niðurstöður kynntar á
efnahagsráðstefnu iðnríkjanna
í Davos í Sviss.
Ein af aðalástæðum fallsins er sú
að nú eru ný viðmið lögð til grund-
vallar matinu en í fyrra. Noregur
fær því til að mynda ekki jafnháa
einkunn fyrir góða stöðu lýðræðis-
mála í landinu, þó að það sé talið
mikilvægur grundvöllur góðrar
umhverfisstefnu.
Noregur fær bestu einkunn sem
hægt er að fá þegar litið er til þátta
á borð við gæði neysluvatns, hrein-
læti og notkunar vatns og timburs.
Aftur á móti fær landið slæma ein-
kunn þegar kemur að ofveiði í sjávar-
útvegi, styrkjum til landbúnaðar og
verndun óspilltrar náttúru.
Ekkert ríki fær A
„Fall Noregs í átjánda sætið er ekki
gott en þið eruð ennþá á meðal
20 hæstu þjóðanna. Rannsóknin
gefur einnig skýrt til kynna á hvaða
sviðum Noregur verður að bæta sig,“
sagði Marc Levy, einn þeirra sem
stóð að rannsókninni, í viðtali við
Aftenposten. „Rannsóknin sýnir
einnig að heimurinn á við stórt sam-
eiginlegt vandamál að stríða. Jafn-
vel bestu þjóðirnar gætu ekki fengið
hærra en „B“ ef um próf í skóla væri
að ræða. Enginn fékk „A“, sagði
hann.
Asmund Kristoffersen, talsmaður
Verkamannaflokksins í umhverfis-
málum, tók fréttunum illa og
kenndi fyrrverandi ríkisstjórn
um stöðu mála og lofaði bótum og
betrun hinnar nýju „rauðgrænu“
ríkisstjórnar.
Osama Bin Laden leiðtogi Al Katda.
ísraelska leyniþjónustan:
Hugðist myrða
Bin Laden
Mossad, leyniþjónusta Israels,
hafði áætlanir um að ráða Osama
Bin Laden, leiðtoga Al Kaída sam-
takanna, af dögum fyrir áratug.
Israelska dagblaðið Yedioth hafði
þetta eftir heimildarmanni innan
leyniþjónustunnar í gær. Mossad
komst á slóð Bin Ladens þegar hún
aðstoðaði bandaríska og egypska
leyniþjónustumenn við að rann-
saka tilraun íslamskra öfgamanna
til að ráða Hosni Mubarak, forseta
Egyptalands, af dögum. Samkvæmt
fréttinni réð leyniþjónustan konu
sem var náin Bin Laden til að myrða
hann.
Hætt var við áætlunina eftir að
tengsl ísraelsmanna og föðurlands
konunnar rofnuðu vegna ástands
mála fyrir botni Miðjarðarhafs.
Ekki fylgdi sögunni hvað konan hét
eða hvers lensk hún væri. Danny
Yatom, sem var yfirmaður Mossad
á þessum tíma, neitaði að tjá sig
um málið við Reuters-fréttastofuna.
Talið er að Bin Laden haldi sig nú í
fjallahéruðum á landamærum Pak-
istans og Afganistans.
Umboösmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, slml 461 6020 • HEKLA, Borgamesi, alml 437 2100 • HEKLA, laafiröi, slmi 456 4666
HEKLA, Reyöarfiröi, slml 470 6100 • HEKLA, Reykjanesbæ, síml 420 5000 • HEKLA, Selfossl, siml 482 1416
HEKLA, Kletthálsi 11, slml 590 5760
www.hekla.is, heklaOhekla.is
ALLTAF
Klettháls
Klettháls
Klettháls
VW Passat 1,6 beinsk.
skráður 11/02 ek. 67.000
verð áður 1.440.000 kr. verð 1.290.000 kr.
VW Golf Highline 1,6 sjálfsk
skráður 07/03 ek. 49.000
verð 1.560.000 kr.
VW Golf Highline 4x4 beinsk.
skráður 05/03 ek. 51.000
verð áður 1.730.000 kr. verð 1.350.000 kr,
VW Passat stw 1,6 beinsk.
skráður 06/03 ek. 70.000
verð áður 1.640.000 kr. verð 1.440.000 kr.
Aíborgun pr. mán.
Afborgun pr. mán.
Afborgun pr. mán.
i 60 mán.
í 60 mán.
laugavegi
Laugavegi
Laugavegi
Laugavegi
VW Bjalla 1,6
skráður 11/01 ek. 82.000
verð áður 1.290.000 kr. verð 1.100.000 kr.
VW Golf 4x4 2,0
skráður 01/04 ek. 45.000
verð áður 1.690.000 kr. verð 1.400.000 kr.
VW Golf Highline 1,6
skráður 10/03 ek. 40.000
verð áður 1.720,000 kr. verð 1.350.000 kr.
VW Passat 4x4 1,8
skráður 05/00 ek. 135.000
verð áður 1.090.000 kr. verð 890.000 kr,
Afborgun pr. mán.
Afborgun pr. mán.
Afborgun pr. mán.
i 60 mán,
nrtön.
Bílaþing Heklu er rétti staðurinn til að finna góðan notaðan Volkswagen
Kletthálsi 11
www.bilathing.is
sími 590 5760
Laugavegi 174
Opið mánudaga til föstudaga 10-18 • laugardaga 12-16
www.bilathing.is
bilathing@hekla.is
Núnier cilt í noluthnn bi'lwit
HEKLA