blaðið - 28.01.2006, Síða 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
BUGUMST EKKI
UNDAN ÞRÝSTINGI
1 gær stóðu Samtök atvinnulífsins fyrir mikilli ráðstefnu á Hótel
Nordica. Bar hún yfirskriftina „Orkulindin Island" og var þar fjallað
um ál- og orkuframleiðslu hér á landi í nútíð og framtíð. Sérstaka
athygli vakti að aðstandendur ráðstefnunnar sáu ástæðu til að ráða
öryggisverði frá fyrirtækinu Securitas til að tryggja öryggi ráðstefnu-
gesta. Ekki þarfað leita lengra aftur í tímann en til síðastliðins sumars til
að sjá vandræði í kringum slíka ráðstefnu. Þá réðust umhverfisverndar-
sinnar inn í fundarsal þar sem forráðamenn í ál- og orkuiðnaðinum
réðu ráðum sínum, slettu á þá grænu skyri og voru með almenn upp-
steyt. í framhaldi hélt hópur atvinnu mótmælenda upp á hálendi Islands,
nánar tiltekið á svæðið í kringum Kárahnjúka, til að halda mótmælum
vegna stóriðjustefnu stjórnvalda áfram. Þar voru framin ýmis skemmdar-
verk og bæði stefndu mótmælendur sér og öðrum í hættu. Það var því
full ástæða fyrir þá sem stóðu fyrir ráðstefnu gærdagsins til að hafa
áhyggjur.
Málið í heild sinni hefur beint sjónum almennings að því hvaða áhrif
jafnvel fámennir hópar fólks með öfgafullar skoðanir geta haft. Full-
yrða má að framkoma þeirra sem skyrinu slettu, sem og þeirra sem
harðast gengu fram í mótmælum á austurlandi í sumar, hafi ekki orðið
málstað umhverfisverndarsinna til framdráttar. I framkomu þeirra
felst ennfremur talsverður tvískinnungur. Boðskapur fólksins var að fá-
mennur hópur valdamikils fólks, hvort sem það voru stjórnmálamenn,
ráðherrar eða viðskiptajöfrar, hefðu í krafti valda sinna knúið óvinsælt
mál í gegn, þvert á vilja almennings. Á móti vildi þessi fámenni hópur
umhverfisverndarsinna snúa þessari ákvörðun við, án þess í raun að sýna
nokkurn tímann raunverulega fram á það fylgi sem málstaður þeirra
hafði.
I framhaldi má segja að í ljós hafi komið að almenningur hér á landi
hefur lítinn sem engan áhuga á að láta slíka öfgahópa reka sig út í horn
og neyða sig til ákvarðanatöku um viðkvæm málefni án þess að hafa
tíma til að hugsa sig um. Þegar umhverfisverndarsinnar tóku sig síðan
til og voru með friðsamleg mótmæli, með tónleikahaldi og öðrum list-
rænum uppákomum, skilaði það mun meiri árangri en hinar róttæku
aðgerðir mótmælenda í sumar. Þegar málin voru lögð upp án öfga fór
almenningur að hugsa málið. Það er sú þunga skriða almenningsálitsins
sem orsakað hefur viðsnúning í málinu, en ekki framkoma fámennra
umhverifsverndarhópa.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar. Bæjarlind 14*16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolhrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net
Bjami Daníelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjami@bladid.net
14 I ÁLIT
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 blaAÍ6
poLVUÐ UPp&riLUNGATtVANlW&>i
BRV ALLfllt eTróK&KYTTURNMl VÍL\A
$?iLA V/NS7X4 MFGiN. HÆKKX S>KAJJ^
°Gr AuKA ItiKiQárGjÖLO
Þegar ég kaus hjá Framsókn
Ég er svo mikill jafnaðarmaður í mér
að ég kaus í prófkjöri Framsóknar-
flokksins. Velferð Framsóknar-
flokksins skiptir mig svo sem ekki
ýkja miklu en ég á þar kunningja
sem ég vil að komist til áhrifa, enda
held ég að hann geti gert nokkuð
gagn við stjórn borgarinnar. Þannig
að ég ákvað að sýna sveigjanleik í
stjórnmálaskoðunum mínum, setja
hag borgarbúa í forgrunn og kjósa
í prófkjöri Framsóknarflokksins.
Sem mér finnst bara þó nokkuð göf-
ugt af mér.
Ekkert svindl
Ég hefði vitaskuld ekki kosið í próf-
kjörinu ef ég hefði þurft að ganga í
Framsóknarflokkinn en þar sem
flokkurinn er opinn í báða enda
þurfti ég bara að mæta og skrifa
undir plagg. Ég var reyndar töluvert
flóttaleg til augnanna þegar ég gekk
inn í Framsóknarmiðstöðina enda
leið mér eins og ég væri að svindla
mér inn í partí. Nú er ég löngu hætt
að mæta í partí en ég veit af gam-
alli reynslu að maður er venjulega
fljótur að jafna sig eftir slíkt svindl.
Það tekur nefnilega enga stund að
svæfa samviskuna.
Þegar til kom var ég eiginlega
ekkert að svindla. Á plagginu stóð
nefnilega: „Ég aðhyllist stefnu
Framsóknar-
flokksins“. Ég aðhyllist afar margt
í lífinu, eins og til dæmis stefnu
Framsóknarflokksins í stóriðju-
málum svo ég skrifaði undir með
góðri samvisku og sagði við sjálfan
mig: „Þetta er flokkurinn sem við
samfylkingarmenn munum mynda
stjórn með í næstu kosningum svo
það er tímabært að vera vinaleg.“
Frænka Reynis Trausta
Svo kom að því að merkja við sex
frambjóðendur. Ég setti minn kand-
ídat í fyrsta sæti og frænku Reynis
Traustasonar í annað, en Reynir
hafði beðið mig fyrir hana. Svo varð
ég stopp. Ekki gat ég kosið höfuðand-
Kolbrún Bergþórsdóttir
stæðinga mannsins sem ég hafði sett
í fyrsta sæti. Þegar ég er í ham hef
ég miskunnarlaust skap. Prófkjörs-
barátta er stríð og þar einangrar
maður óvininn. Ég varð að nota inn-
sæið við að raða í næstu sæti. Ég hef
alltaf heillast af nöfnum sem byrja
á Ás - eða Ást og þarna var einmitt
kona með nafn sem hentaði þessum
smekk mínum. Ég skellti henni í
þriðja sætið. Svo var þarna einhver
Gestur Gestsson. Mér fannst ég
kannast við það nafn.„Getur verið
að þetta sé Gestur góði sem var einu
sinni í Alþýðuflokknum?" hugsaði
ég og merkti við hann til öryggis. Ég
vildi ekki bregðast honum ef þetta
skyldi vera hann. Þá voru eftir tvö
nöfn. Þetta var orðið nokkuð erfitt.
Ég skellti tölustöfunum 5 og 6 á ein-
hverja frambjóðendur sem ég man
ekki lengur nöfnin á. Þegar maður
fer í prófkjör til að kjósa kunningja
sinn og frænku vinar síns þá hefur
maður ekki fulla athygli á öðrum
frambjóðendum. „Óvenju mikið af
frambjóðendum hjá svona litlum
flokki,“ hugsaði ég þegar ég gekk út.
Þegar ég var komin í vinnuna fór
ég að velta því fyrir mér hvernig
prófkjör enduðu þar sem kjósendur
vissu ekkert hvað þeir væru að gera
eftir að hafa kosið sitt fólk í tvö efstu
sætin. Með þeirri aðferð er hætt
við að hending ráði hverjir komist
á lista. Kannski situr Framsóknar-
flokkurinn uppi með furðulegan
lista og það verður fólki eins og mér
að kenna, hugsaði ég. En mundi þá
að Framsóknarflokkurinn á víst
bara möguleika á að koma einum
manni inn í borgarstjórn. Ég held að
kandídatinn minn verði sá maður.
Þannig að ég var eiginlega bara að
kjósa einn mann - og svo frænku
Reynis Traustasonar.
Höfundur er blaðamaður..
Klippt & skorið
klipptogskond@vbl.is
Stefán Jón
Hafstein
reynir nú
allt sem hann getur
til að blása lífi í kosn-
ingabaráttu slna.
Ekki er vanþörf á því
samkvæmt nýjum
skoðanakönnunum
er kappinn nánast í frjálsu fylgisfalli og er nú
með minnst fylgi þeirra þriggja sem sækjast
eftir að leiða lista Samfylkingarinnar I Reykja-
vlk. Ekki er langt sfðan hann leiddi baráttuna,
en er nú skyndilega lentur I að þurfa að sækja
verulega á. Staða hans hlýtur að vekja athygli,
því þegar Samfylkingarmenn völdu leiötoga-
efni sitt fyrir um fjórum árum sigraði Stefán þá
baráttu með miklum bravör.
Helsta vopn Stef-
áns um þessar
mundir er að
hampa störfum sínum
innan borgarinnar á slð-
asta kjörtímabili. Þar hefur
hann verið áberandi I menn-
ingar- og menntamálum, þar sem hann hefur
farið mikinn. Reyndar náði Steinunn Valdís
borgarstjóri að stela senunni á dögunum
þegar hún hækkaði laun almennra starfs-
manna Reykavíkurborgar verulega. En Stefán
er ekki af baki dottinn því hann hefur að undan-
förnu haldið hvern blaðamannafundinn á
fætur öðrum þar sem niðurstöður rannsókna
eru kynntar, ýmis átaksverkefni o.s.frv. Svo
duglegur er Stefán að undanfarna viku hefur
hann haldið einn blaðamannafund á dag. Ekki
amaleg afköst það.
o
Prátt fyrir þetta hefur
framboð Stefáns
ekki náðflugi. Stefán
virðist nefnilega ekki átta sig
á nýjum leikreglum prófkjara.
Það virðist framsóknarmað-
urinn Björn Ingi Hrafnsson hinsvegar gera
en fátt virðist nú geta komið I veg fyrir sigur
hans I prófkjöri flokksins. Mikil útlitsbreyting,
sem innihélt að gleraugun voru látin fjúka, and-
litið gert sólbrúnna og fataskápurinn var upp-
færður samkvæmt nýjustu tísku, virðist skila
sínu. Það er spurning hvort Stefán muni leita á
sömu mið og birtist kjósendum á næstunni þar
sem hann skartar nýju „lúkki". Kannski bölvar
hann I hljóði yflr að hafa ekki kynnt sig betur
fyrir kosningu um kynþokkafyllsta mann
landsins á dögunum. Slfkt hefði líklega tryggt
honum ófá atkvæði.