blaðið - 20.03.2006, Qupperneq 8
8 I ERLEKTDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 blaöiö
Reyklaus bær
Reykingar á almannafæri hafa verið
bannaðar með öllu í bænum Calab-
asas í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Er
þetta í fyrsta skipti á Vesturlöndum
sem allar reykingar eru bannaðar í
heilu bæjarfélagi.
Calabas er ungur bær, stofnað var
til þessa samfélags fyrir 15 árum. Þar
býr einkum ríkt fólk.
Bannið mælist misjafnlega fyrir
en ekki kom svo mjög á óvart að ráða-
menn í Calabas tækju slíka ákvörðun
því bærinn er þegar orðinn þekktur
fyrir róttæk lög og reglugerðir á sviði
umhverfismála. Margirhafaorðið til
þess að mótmæla banninu með tilliti
til persónufrelsis.
Forsaga málsins er sú að fyrir sex
mánuðum eða svo hvatti táningur
einn yfirvöld til að bregðast við því
að algengt væri að fólk sinnti reyk-
ingum við innganga stórverslana.
Ráðamenn tóku erindið hátiðlega
og komust að því að best færi á því
að allar reykingar yrðu bannaðar í
bænum. Því er nú bannað með öllu
að reykja á almannafæri t.d. í al-
menningsgörðum, á biðstöðum stræt-
isvagna og úti á götu. Fólki er meira
að segja bannað að reykja á svölum
heimila sinna ef þær eru í nágrenni
opinberra staða t.a.m. sundlauga.
„Þetta er svo vitlaust að ótrúlegt er
að menn geti gert þetta,“ sagði hinn
55 ára gamli Rich Weiss, sem býr í
Calabasas en reykir ekki. „Reykur
dreifist á augabragði þegar reykt er
úti og þeir sem þola ekki reykinn
geta þá bara fengið sér sæti annars
staðar." Cindy Ward, sem er 29 ára og
sogaði í sig síðustu sígarettuna þegar
blaðamann bar að og sagði: „Við
búum í Ameríku þar sem sagt er að
menn hafi frjálst val og vilja og þetta
gengur þvert á þá hugmyndafræði."
Öll ráð verða þó ekki tekin af
Cindy og öðrum reykingamönnum
í Calabasas. Á nokkrum stöðum í
útjaðri bæjarins hefur verið komið
upp „reyksvæðum" sem auðkennd
eru með skiltum.
í vinnunni í samkvæmi
Starfsfólk í vinnustaðapartíum telst
vera í vinnunni þar til yfirmaðurinn
er farinn heim.
Þetta er niðurstaða þýsks dómstóls
sem felldi úrskurð í máli starfsmanns
sem hlaut höfuðáverka í samkvæmi
starfsmanna um jólin.
Málið fór fyrir dómstól í Frank-
furt eftir að tryggingafyrirtæki eitt
hafði neitað að greiða þeim sem varð
fyrir slysinu bætur. Maðurinn höfuð-
kúpubrotnaði m.a. þegar hann rann
og datt fyrir utan veitingastað þar
sem efnt hafði verið til samkvæmis
starfsfólks.
Dómurinn komst að þeirri niður-
stöðu að tryggingasali vinnustaðar-
ins ætti að greiða manninum bætur.
Rökin voru þau að hann hefði enn
verið i vinnunni þegar hann varð
fýrir óhappinu. 1 dómsorðinu segir
að líta beri svo á að tryggingaskil-
málar gildi þar til að „vinnutengdum
viðburði" ljúki. Sé því á hinn bóginn
þannig farið að tímanleg mörk hans
hafi ekki verið ákveðin beri að líta
svo á að viðburðurinn standi enn yfir
á meðan yfirmenn eru á staðnum.
Voltaren Dolo® (diklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem
höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki ur einkennum a nckkrum dögum. skal
leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skeita lifrarstarfsemi ættu
að raðfæra sig við lækni aður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru. ibuprófen eða ónnur bolgueyðandi
lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voitaren Dolo® Notið lyfið ekki á meðgóngu nema í samráði við lækni. en
aldrei á siðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal
vandiega leiðbeiningar a umbuðum og fylgiseðli. Geymiö þar sem börn hvorki ná til né sjá.
FUOTVIRKT
VERKJALYF
^Lyf&heilsa
Við hlustum!
Austurstræti • Austurveri • Domus Medica • Firði. Hafnarfiröi • Fjarðarkaupum
Glæsibæ • Hamraborg Kópavogi • JL-húsinu ■ Kringlunni l.hæð • Kringlunni 3.hæð
Melhaga ■ Mjódd ■ Mosfellsbæ • Salahverfi • Eiðistorgi • Hellu • Hveragerði ■ Hvolsvelli
Kjarnanum Selfossi • Vestmannaeyjum • Þorlákshöfn ■ Dalvík ■ Glerártorgi Akureyri
Hrisalundi Akureyri • Ólafsfiröi • Akranesi • Keflavik
Austurhlutinn afskiptur
íbúar í austurhluta Þýskalands verða lítt varir við heimsmeistaramótið í
knattspyrnu þar t sumar. Aðeins lið Úkraínumanna mun hafa aðsetur í
austurhlutanum og aðeins verður leikið á einum knattspyrnuvelli þar.
Sameining Þýskalands er löngu um
garð gengin en aðskilnaður virðist
enn við lýði þegar horft er til heims-
meistaramótsins í knattspyrnu sem
fram fer þar í sumar.
Einungis verður leikið á einum
velli á landsvæði því sem forðum
tilheyrði Austur-Þýskalandi. Og
aðeins eitt lið, Okraínumenn, mun
hafa aðsetur í austurhlutanum.
Úkraínumennirnir munu halda
til í Potsdam rétt fyrir utan Berlín
en heimsmeistaramótið stendur
yfir frá 9. júní til 9. júlí. Heimsmeist-
arar Brasilíu munu koma sér fyrir í
Frankfurt, miðstöð fjármálalífsins
í Þýskalandi, og flytja sig þaðan til
Köínar. Frakkar verða í höll einni í
Aerzen, skammt frá Hanover í norð-
urhlutanum en Argentínumenn
hafa ákveðið að setja upp búðir
sínar i bænum Herzogenaurach þar
sem íþróttavörufyrirtækið Adidas
hefur höfuðstöðvar.
Sjálfir munu Þjóðverjar halda liði
sínu í Berlín, í vesturhluta borgar-
innar. Jafnvel Angóla, sem forðum
var í ágætu sambandi við hina
kommúnísku valdhafa í Austur-
Þýskalandi, hefur ákveðið að lands-
liðið haldi sig í vesturhluta Þýska-
lands. Yfirskrift mótsins verður
,Tími til að eignast nýja vini,“ og
sýnist ýmsum sem þau kynni verði
bundin við íbúa í vesturhlutanum.
Fá hótel talin henta
í bæklingi sem undirbúningsnefnd
mótsins lét hanna er mælt með alls
110 hótelum fyrir liðin sem taka þátt.
Einungis 16 þeirra gistihúsa eru í
austurhluta Þýskalands. Einungis
fimm kappleikir verða háðir í hinu
gamla Austur-Þýskalandi og ræðir
þar um Zentralstadion í Leipzig.
Völlurinn, sem tekur 45.000 manns,
var reistur sérstaklega fyrir mótið.
Sex leikir og úrslitaleikurinn fara
fram á hinum gamla ólympiuleik-
vangi í vesturhluta Berlínar.
Talsmenn keppninnar segja að
hagkvæmni hafi ráðið för í þessu
efni. Fáir stórir knattspyrnuvellir
séu í austurhlutanum og flugsam-
göngur við mikilvægar borgir á
borð við Frankfurt og Berlín séu
mun betri en við borgir austan
múrsins gamla.
Ýmsum þykir þó þetta fyrirkomu-
lag birtingarmynd þess að þessir
tveir hlutar Þýskalands hafi 1 raun
aldrei runnið saman þó svo samein-
ing hafi átt sér stað árið 1990. Efna-
hagsástand í austurhlutanum er
allt annað og verra en í vestri. Það
sama gildir raunar um fótboltann; í
fyrsta skipti í 15 ár keppir ekkert lið
úr austri í efstu deild þýsku knatt-
spyrnunnar, Bundesligunni. Hansa
Rostock átti þar lengi sæti en féll í
fyrra.
NÝJAR RALPH LAUREN
VÖRUR KOMNAR
Staða
Abbas veikist
mbl.is | Nokkrir háttsettir liðsmenn
palestínsku Fatah-hreyfingar-
innar munu
hafa hvatt
M a h m o u d
Abbas, kjör-
inn leiðtoga
P a 1 e s t í n u -
manna, til að
segja af sér og
fela yfirstjórn
h e r t e k n u
svæðanna í hendur Israelum í mót-
mælaskyni við hernaðaraðgerðir
ísraela á sjálfstjórnarsvæðum Palest-
ínumanna fyrr í þessari viku. Þetta
kom fram á fréttavef ísraelska dag-
blaðsins Ha’aretz um helgina.
Háttsettur liðsmaður samtak-
anna, sem ekki vildi láta nafns síns
getið, sagði hugmyndina hafa verið
rædda í fyrsta skipti á fundi mið-
stjórnar Fatah-hreyfingarinnar á
föstudagskvöld og að það sýndi vel
þá reiði sem rfki meðal Palestínu-
manna í garð ísraela og ráðaleysi
liðsmanna Abbas í kjölfar kosn-
ingasigurs Hamas-samtakanna á
palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum
í janúar.
„Af hverju eigum við að sætta
okkur við að Abbas, sem umheim-
urinn segist styðja, taki við hverju
högginu á fætur öðru?“ var haft
eftir Tayeb Abdel-Rahim, einum
helsta ráðgjafa Abbas, en hann mun
hafa hafið umræðuna á fundinum.