blaðið - 20.03.2006, Qupperneq 20

blaðið - 20.03.2006, Qupperneq 20
MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 Maöi6 28 i Sólpallar og skjólgirð- ingar alltaf vinsœlar Hœstu skjólgirðingarnar hafðar opnar efst til að hleypa inn birtu. Snjóbrœðslu- lagnir auka þœg- indi og öryggi Viðflestar nýbyggingar er lögð snjóbrœðslu- lögn áður en bílaplanið er fullklárað. Áður fyrr girti fólk í kringum garða sína til að koma í veg fyrir að skepnur kæmust inn og eyðilegðu blóm og runna. Nú er sú hætta vart lengur til staðar en samt sem áður finnst fólki notalegt að hafa í kringum garða sína girðingu sem gegnir þá hlut- verki skjólveggs og getur verið til mikillar prýði. Sólpallar eru líka vinsælir og fyrir þá sem vilja sameina þetta tvennt er hægt að fá palla með skjólvegg. ,Við erum með ýmsar tegundir girð- inga og seljum tilbúnar girðingaein- ingar,“ segir Stefán Valsson, verslun- arstjóri hjá Byko. „Girðingarnar eru yfirleitt úr timbri en nú er að koma ný tegund sem er bæði úr áli og timbri og er mjög skemmtileg. Fólk er mikið að girða í kringum hús sín eða gera skjólgirðingar til að búa til skjól í bakgarðinum hjá sér.“ Girðingarnar eru mis háar en þró- unin er í þá átt að þær eru að lækka. Hægt er að velja um girðingar á hæðarbilinu 90-180 cm en fólk er hætt að vera með heilu virkin fyrir framan húsin hjá sér eins og tíðkað- ist áður. Hæstu girðingarnar eru yf- irleitt hafðar opnar efst til að hleypa inn birtu. Sólpallarnir alltaf vinsælir ,Það er mikil pallamenning á Islandi og fólk er mikið að setja upp palla sjálft. Þegar það er gert er mikilvægt að skoða málin vel og við bjóðum fólki upp á viðtal við Björn Jóhann- son, landslagsarkitekt, til skrafs og ráðagerða. Björn hefur verið mjög vinsæll og er bókaður langt fram í tímann en hann byrjar að ráðleggja fólki 11. apríl. Fólk er beðið um að koma með teikningar af húsinu og út frá því ráðleggur Björn um stærð og lögun pallanna. Ég mæli með því að fólk leiti ráða hjá landslagsarki- tekt áður en það byrjar að smíða til að fá þokkalega sýn á garðinn og þá möguleika sem eru fyrir hendi,“ segir Stefán og bætir við að algeng- ast er að pallar séu smíðaðir sem framhald af stofu eða öðru herbergi íbúðarinnar. Byko hefur gefið út handbókina Sumar í garðinum en þar er að finna ráðleggingar um hvernig á að smíða palla, girðingar og annað sem lítur að garðyrkju. „Hægt er að velja harð- við og gagnvarða furu sem hráefni í pallana. Harðviðurinn er örlítið dýrari, en í raun er það einfaldlega smekksatriði hvað fólk velur.“ En það er er ekki nóg að byggja pallinn heldur þarf líka að halda honum við. „Til að verja pallana er borin á þá hálfþekjandi viðarvörn eða pallaolia og þannig er litur pallsins einnig ákveðinn. Best er að bera á pallinn um hálfum mánuði eftir að hann er lagður og það hlífir honum fyrir rigningu og sólarljósi. Eftir það ætti að bera á pallinn einu sinni á ári,“ segir Stefán. Hægt að fá tilbúnar undirstöður Byko er með áhaldaleigu þar sem hægt að er leigja bora og fleira sem fólkþarf að nota við pallasmíðina. Þá leigir Byko bor til að bora fyrir und- irstöðum en með bornum er búið til gat sem hægt er að steypa í eða koma fyrir tilbúinni pallaundirstöðu. „Með því að koma fyrir tilbúinni pallaundirstöðu sleppur fólk við alla drulluvinnu en þarf aðeins að fylla upp að undirstöðunum. I sumum tilfellum býður undirlagið upp á svo- kallað metpost en það er staur sem er rekinn 90 cm ofan í jörðina og þá sleppur fólk einnig við að steypa undirstöður,“ segir Stefán að lokum. hugrun@bladid.net .Snjóbræðslulagnir eru aðallega notaðar á göngusvæðum og á bíla- stæðum við byggingar," segir Böðvar Markan, eigandi B. Markan pípu- lagna ehf. „Snjóbræðslulagnir eru bæði vinsælar hjá einstaklingum og fyrirtækjum og við flestar nýbygg- ingar er lögð snjóbræðslulögn áður en planið eða stéttin er fullkláruð. Við einbýlishús og stærri hús er líka hægt að nýta affall hússins en einnig inniheldur öll þau bætiefni sem til þarf svo að varmaskiptar, stýr- ingar og rör endist betur gegnum árin og tæringar og útfellingar verði í lágmarki en ekkert kerfi er viðhaldsfrítt. Notkun affalls er einfaldasta og ódýrasta lausnin þó lokað kerfi þýði aukið öryggi.“ Ylur settur undir hellur við ný hús 1 Valsson hjá Byko segir mikla paliamenningu vera á fslandi og að fólk velji frekar timbur en steypu. er hægt að skjóta innspýtingu inn í kerfið. Þá er heitu vatni skotið inn þegar kólnar í veðri. Miðað er við að plön fyrir einbýlishús séu u.þ.b. 50 fm2 og þá fara um 200 metrar af slöngum ef affallið eitt og sér á að duga.“ Nokkrar tegundir snjóbræðslukerfa „Ef leggja á snjóbræðslulagnir á stór svæði getur kerfið orðið stærra en húsið ræður við og í þeim tilfellum er ráð að setja uppblöndunarkerfi á affallið. Þá er kerfið komið með raf- magnsdælu ásamt innspýtingu. Þá er það farið að vinna að hluta með affallinu og heitri innspýtingu og getur þá ráðið við öllu fleiri fermetra í plani og göngustigum.“ Böðvar segir æskilegt að nota lokað snjó- bræðslukerfi þar sem annað hvort er steypt eða malbikað yfir rör ásamt steyptum tröppum sem auðvitað er mikið öryggisatriði. „Lokuð kerfi eru dýrust í uppsetningu, en um leið talin öruggustu kerfin þar sem frostlögur er á kerfinu. Því er tryggt að þau haldi velli í miklum kulda sem annars gæti skaðað kerfi sem af einhverjum orsökum hreyfðu ekki vatn og lagnir springa með tilheyr- andi afleiðingum. Við hönnun á snjóbræðslukerfum ætti alltaf að huga að því slaufur, sem geta orðið allmargar, séu sem jafnastar í lengdum og þannig geti maður náð góðum árangri við still- ingar á kerfinu. Mitt mat er að betra er að hafa fleiri slaufur styttri en færri og lengri. Þá fæst betri nýt- ing á hita á hverja slaufu og plönin bræða betur. Oft er þó miðað við allt að 200 metra í slaufu. Pípulagningameistarar eru farnir að nota nýja tegund af frostlegi sem Böðvar segir að við ný hús séu af- fallslagnir settar undir hellulagnir en það getur verið kostnaðasamt að fræsa í steypt plön í eldra húsnæði til að setja snjóbræðslulögn í. „Það er betra að brjóta upp steinsteypt plön og setja hellur í staðinn. Hellulagnir kosta um 6-10 þúsund á fermetrann sem gerir um 600 þúsund krónur fyrir sama plan, sá kostnaður hefur þó verið meiri.“ Snjóbræðslulagnir undir sumum götum Böðvar segir það fyrst og fremst þægindi og öryggi sem gera snjó- bræðslukerfin svona vinsæl. „Það er þægilegt að komast út í bíl án þess að eiga það á hættu að detta í hálku og pósturinn og aðrir sem erindi eiga að húsinu eiga auðveldara með að komast leiðar sinnar í snjó og hálku þegar hitalögn er sett undir hellur. Sveitafélögin eru farin að nota snjóbræðslulagnir undir götur sem liggja í miklum halla sem er til mik- illa bóta, sérstaklega ef fólk þarf að stoppa í brekkunni. Miklum fjár- munum er eytt í snjóbræðslulagnir fyrir utan stórmarkaði og fyrirtæki og er kostnaðurinn bæði mikilll í lögn og rektri. Þrátt fyrir kostnað- inn er ylur undir öllum nýjustu plön- unum þar sem fjölmenni leggur leið sína.“ Böðvar segir að þar sem íslend- ingar búi við ódýra vatnsorku sé ekki úr vegi að nýta sér snjóbræðslu- kerfi til upphitunar því vatnið sem fari í þau fari annars til spillis. Hann ráðleggur um leið að gott viðhald og eftirlit sé um leið lykill að góðri nýt- ingu vatnsins. hugrun@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.