blaðið - 20.03.2006, Side 22

blaðið - 20.03.2006, Side 22
30 I ÍPRÓTTIR MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 blaðiö Fisichella sigraði örugglega Fernando Alonso hafnaði í öðru sœti og Renault er komið með 13 stigaforystu á Ferrari ogMcLaren eftir kappaksturinn í Sepang. ftalinn Giancarlo Fisichella tileinkaði sigurinn æskuvini sínum sem lést í bílslysi á dögunum. Efstu 8 í Sepang Heildarstig efstu ökumanna SKYNDIPROFIÐ Middlesbrough 1. Hvað heitir heimavöllur liðsins? 2. Hvað heitir fyrirliði liðsins? 3. Hvaða tveir Brasilíumenn leika með liðinu? 4. Hvaða ár vann liðið sinn eina deildabikar? 5. Á hvaða velli lék liðið áður en það fluttist á Riverside 1995 •jjjed auiosajXv 'S 'froo 1 k ')|)equjaq3oa Ojqej 60 eAjJOQ 'í 'aje6qtnos qjojeo 1 'opjSJOAja 1 Chelsea líklegast 2006/2007 Breski veðbankinn William Hill er þegar farinn að taka við veð- málum um hvaða lið sigri ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili, 2006/2007. Hægt er að veðja á fjögur lið, Manchester United, Liverpool, Arsenal og Chelsea og kemur eflaust fáum á óvart að hið síðastnefnda er talið langlíklegast. Stuðlarnir líta svona út: Chelsea 1.44 Man Utd. 6.00 Liverpool 6.00 Arsenal 11.00 Giancarlo Fisichella hafði loks- ins heppnina með sér og sigraði í öðrum kappakstri Formúlunnar í ár sem fram fór í Sepang í Malasíu í gær. Liðsfélagi hans hjá Renault, Fernando Alonso, sem sigraði í Bar- ein um síðustu helgi, lenti í öðru sæti og Jenson Button hjá Honda varð þriðji. Fisichella hóf keppni á ráspól og leiddi kappaksturinn frá fyrstu sekúndu. Alonso kom í mark tæpum fimm sekúndum á eftir ítal- anum og Button rúmum fimm sek- úndum á eftir Alonso. Ólukkan heldur áfram að elta Kimi Ráikkönen en hann þurfti að hætta keppni eftir að Christian Klien hjá Red Bull ók á hann í opnun- arhringnum. Við áreksturinn flaug Finninn út af brautinni og gat því ekki haldið áfram en Klien gat tekið þjónustustopp og kláraði 26 hringi. Michael Schumacher hjá Ferrari hóf keppni í 14. sæti en liðsfélagi hans Felipe Massa byrjaði næst aft- astur. Massa átti hins vegar góðan dag og tók aðeins eitt þjónustustopp og þegar upp var staðið hafði hann tryggt sér fimmta sætið og varð sek- úndu á undan Schumacher. Eftir kappaksturinn í Malasíu hefur Renault-liðið 28 stig og er 13 stigum á undan sínum helstu keppi- nautum, Ferrari og McLaren. Ljóst er að liðið þykir afar líklegt til að verja titil sinn frá því í fyrra sem heimsmeistari bílasmiða. bjorn@bladid.net 1. Giancarlo Fisichella 10 2. Fernando Alonso 8 3. Jenson Button 6 4. Juan Pablo Montoya 5 5. Felipe Massa 4 6. Michael Schumacher 3 7. Jacques Villeneuve 2 8. Ralf Schumacher 1 1. Fernando Alonso 18 2. Michael Schumacher 11 3. Jenson Button 11 4. Giancarlo Fisichella 10 5. Juan Pablo Montoya 9 6. Kimi Raikkönen 6 7. Felipe Massa 4 8. Mark Webber 3 Alka-Seltzer Alka-Si'ltzer *ií freyditafia v.ó '.ófuðverk t»ðavcrk, 1 ■) ou •;'>ðvd-/**rk'urn, ta' r -erk ou ".ta '■•’kt tnnihaidsefni: Asetyfsalísýlsyrd 324 rr**i- Skómmtun- 'orör oq bötn 1.- ara oij eltiri: I-. freyöitofíui i senn. Er cur’ek'ó e’tir l>orf.:*!- uo i es: 8 ír ut» Mtt* j . ihr:r,r. Alk Se*tzef á ulitaf að levsa upr) i /ai < Fio"* *:.u •'<tr !f»\sdr' r . hei’ ■ v«*í*a o-v.verkttnar eigc -»• 1 <<■ o o . <f' '■ ; > :ð ». ■-.•••úi! . .. . ief'i . •öc.ji. 'u ofsak uðd U. jjua :, ■ .er j'"ga í-iec-nqu á ekki ao gefa asctvisal' R. oi’agjot. Asetýi>air>ýis>. a •- il?t *.V brjostan joik. Áfgengar aukaverkauir eru aukin biæöíngarhætta, ornæuu, niðurgangur, cqleð' svirr", suð tvrir eyrum, aukin svitamvnduri. '.esid allari fylgiseöilinn vandlega aður en iiyrjad er aö nota lyfið. Handhafi markadsieyfis: Bayer HeaíthCare AG. Umboö a isiandi: Vistor hf, Horgatúni 2, Garðabæ. LENGJAN LEIKIR DAGSIIMS Spilaðu á næsta sölustað eða á lenqjan.is Banik Ostrava - Sparta Prag 2,80 2,75 1,90 Erzgebirge Aue - Hansa Rostock 2,15 2,60 2,50 Sedan - Le Havre 1,70 2,85 3,25 Southampton - Watford 2,45 2,60 2,20 Bologna - Atalanta 2,25 2,40 2,60 Skeytin inn Sven-Göran Eriksson, knatt- spyrnustjóri enska lands- liðsins, segir að Joe Cole sé að sínu mati besti leikmaður enskuúrvalsdeild- arinnar á þessu tímabili. Valið á besta leik- manninum fer fram á næstu dögum en Eriksson hefur ekki atkvæðis- rétt. Sagði hann þó aðspurður að Cole yrði hans fyrsti valkostur, eða þá Thierry Henry sem hann segir vera al- gjöran burðarás í liði Arsenal. „Hann hefur bætt sig gríðarlega á þessu tímabili. Jose Mourinho spilar stóran þátt í því, en hann hefur unnið frábært starf með Cole. Ég hef trú á því að hann getir orðið einn af þeim bestu á HM í sumar,“ sagði Eriksson. Frank Lampard, leikmaður Chelsea, segir að það yrði gríðarleg afturför fyrir liðið ef Jose Mourinho myndi yfir- gefa það. Mourinho var um helg- ina orðaður við Inter Milan og því haldið fram að baktjaldamenn ynnu hörðum höndum að því að koma honum frá Lundúnum til Mílanóborgar. „Fyrir mér er allur árangurinn sem við höfum náð Mourinho að þakka. Ég blæs á allar fullyrðingar um að þetta sé bara spurning um peninga. Það getur hvaða hálfviti sem er keypt lið og fullt af stjörnu- leikmönnum, en það er ekki þar með sagt að það muni ná árangri,“ sagði Lampard. Enska knattspyrnusam- bandið fékk Brasilíumann- inn Luiz Felipe Scolari í atvinnuviðtal um helgina vegna starfs knattspyrnustjóra enska landsliðsins. Scolari er talinn vera annar maðurinn sem knatt- spyrnusambandið ræðir við en fyrir viku síðan fór Alan Cur- bishley, stjóri Charlton, í viðtal. Hinn 57 ára gamli Scolari hefur áður náð góðum árangri með brasilíska landsliðið en því stýrði hann til sigurs á HM 2002. Hann hefur síðan þjálfað portúgalska landsliðið sem lenti í öðru sæti á EM 2004 en samningur hans rennur út eftir HM í sumar. Franski varnarmaðurinn Franck Queudrue greindi frá því í gær að hann vilji yfirgefa Middlesbrough þegar samningur hans rennur út 2008. Queudrue hefur verið orðaður við bæði Liverpool og Paris St. Germain eftir að hafa átt mjög gott tímabil í vetur. Á þeim fimm árum sem Queudrue hefur verið hjá Boro hefur hann aldrei verið val- inn í franska landsliðið og sagði hann að nú væri kominn tími til að breyta til. „Að mörgu leyti langar mig að fara aftur heim til Parísar. En á móti kemur að ensk knattspyrna er sú sem hentar mínum leikstíl best, þannig að ég er ekki viss hvað ég geri,“ sagði Queudrue.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.