blaðið - 20.03.2006, Page 24

blaðið - 20.03.2006, Page 24
32 I MENNING MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 blaöiö Óham ingjusam- asta kona Evrópu Ný œvisaga varpar Ijósi á Evu Braun, ástkonu Adolfs Hitlers í næstu viku er væntanleg á markað bókin The Lost Life of Eva Braun. Þarna er á ferð- inni ævisaga konunnar sem var ástkona Hitlers í 14 ár og kaus að fremja sjáfsmorð með honum fremur en að lifa án hans. Höfundur bókarinnar, Angela Lambert, aflaði nýrra heimilda við gerð bókarinnar. Hún ræddi meðal annars ítarlega við frænku Evu, Gertrude sem veitti henni að- gang að dagbók Alois Winbauer, frænda Evu og Gertrude, en þar er lýst áhyggjum fjölskyldunnar af sambandi Evu við Hitler. Sagnfræðingar hafa fram að þessu veitt Evu litla athygli og almennt hefur hún fengið þann dóm að hafa verið litlaus og vitgrönn. Angela Lambert segir að margt hafi komið sér á óvart við rannsókn á lífi Evu. Eins og til dæmis það að Eva var ekki nasisti. Hún var heldur ekki gyðingahatari og bað Hitler um að þyrma þeim gyðingum sem hún og fjölskylda hennar þekkti. Hafði þörf fyrirvin Ást Evu til Hitlers færði henni ekki hamingju. Einkabílstjóri Hitlers sagði að Eva hefði verið óhamingju- samasta kona í Evrópu. I maí mán- uði 1935 skrifaði Eva í dagbók sína: Eva Braun. „Hún var óhamingjusamasta kona sem ég hef kynnst", segir frænka Evu Braun um konuna sem elskaði Adolf Hitler. „Hann (Hitler) hefur margoft sagt mér að hann sé yfir sig ástfanginn af mér en hvaða þýðingu hefur það þegar hann hefur ekki sagt hlý orð við mig í þrjá mánuði.“ Opinberlega kom Hitler fram við Evu af kulda, jafnvel fyrirlitningu. Hitler kynntist Evu árið 1929. For- eldrar Evu voru skelfingu lostnir þegar hún gerðist ástkona Hitlers og litu á dóttur sína sem fallna konu. Eiginkonur nasistaleiðtoga litu niður á Evu og fannst hún ekki nægilega fín fyrir Foringjann og buðu henni aldrei inn á heimili sin. Albert Speer, arkitekt og yfirmaður hergagnaframleiðslu Þriðja ríkis- ins, sagði að Eva hefði verið „róleg stúlka, afar viðkunnanleg, feimin og hógvær. Ég kunni samstundis vel við hana og seinna urðum við góðir vinir. Hún hafði þörf fyrir vin.“ Þráði að vera elskuð Árið 1943 kom Eva grátandi til Spe- ers og sagði að Hitler hefði ráðlagt henni að finna sér ástmann þar sem hann gæti ekki lengur fullnægt henni. Hitler var orðinn getulaus. Ekki hvarflaði að Evu að yfirgefa Hitler. Gurtrude frænka hennar segir að Eva hafi setið við símann og beðið eftir að Hitler hefði sam- band. „Hún var óhamingjusamasta kona sem ég hef kynnst. En þegar endalokin blöstu við horfðist hún í augu við raunveruleikann. Hún var yfirveguð og ég er viss um að hún kaus sjálf endalok sín.“ 30. apríl 1945 tók hin 33 ára gamla Eva Braun inn eitur og dó með mann- inum sem hún elskaði svo heitt. Ævisagnaritari Evu, Angela Lamb- ert, segist hafa spurt Gertrude frænku Evu hvað Eva hefði virkilega þráð, hvort það hefði verið frægð, hjónaband, börn... Gertrude svaraði: „Hún vildi einungis vera elskuð.“ JPV naer góðum árangri á bóka- messunni í London Blaði/Frikki Skáldsaga Ólafs Gunnarssonar, öxin og jörðin, kemur út í bókaklúbbi Bertelsmanns í Þýskalandi. JPV útgáfa tók þátt í árlegri bókamessu í London fyrir stuttu en messan er önnur mikilvæg- asta bókamessan. Hin er haldin árlega að hausti í Frankfurt. Söludeild JPV átti tugi funda með útgefendum víðs vegar að úr heim- inum til að kynna höfunda forlags- ins. Lagt var kapp á að ná fundum lykilmanna stórra og öflugra forlaga sem líklegastir væru til að ná árangri á sínum markaði enda stefna JPV að semja frekar við þá sem hafa sterka markaðsstöðu og fylgja islenskum bókum eftir af tiltrú og metnaði. JPV hefur aldrei fundið jafn mikinn áhuga erlendra útgefenda á verkum höfunda forlagsins og mörg dæmi um að erlendir útgefendur hafi bit- ist um útgáfuréttinn. Á bókamessunni var gengið frá samningi við Bertelsmann sam- steypuna í Þýskalandi um útgáfu á Öxinni og jörðinni eftir Ólaf Gunn- arsson en hún hreppti íslensku bók- menntaverðlaunin þegar hún kom út. Nýlega er komin út önnur skáld- saga Olafs í Þýskalandi, Tröllakirkja, og hefur hún hlotið mikla Umfjöllun og fengið afar góða dóma. Það varð hins vegar niðurstaða JPV að ganga til samninga við nýjan útgefanda í Þýskalandi fyrir Ólaf enda Bertels- mann vafalaust einn öflugasti útgef- andinn þar í landi og náðust mjög hagstæðir samningar um útgáfuna. Hún kemur fyrst út í bókaklúbbi þeirra sem hefur 2.6 milljónir með- lima. Síðan verður bókin gefin út fyrir almennan markað og svo loks í kiljubroti. Ekkert lát er á velgengni Tima nornarinnar eftir Árna Þórarins- son og seldi JPV hollenska útgefand- anum De Geus útgáfuréttinn en nokkrir hollenskir útgefendur vildu gefa bókina út en De Geus varð fyrir valinu. JPV hefur nýlega gengið frá útgáfusamningum fyrir Tíma norn- arinnar á öllum Norðurlöndum, í Þýskalandi og á Ítalíu og nú standa yfir samningaviðræður við fjölda út- gefenda um allan heim, m.a. á Spáni, Bretlandi og Rússlandi. Mikill áhugi er á spennusögum Þráins Bertelssonar og viðræður i gangi við ýmsa útgefendur. Það dró ekki úr áhuga útgefenda að skáld- sögur hans fjalla um íslenska sam- tið og margt það sem hefur verið fjölmiðlum erlendis mikið umfjöll- unarefni síðustu misseri. Bernskuminningar Guðbergs Bergssonar, Faðir og móðir og Dul- magn bernskunnar, eru nýkomnar út í Þýskalandi og hafa fengið góðar umsagnir. Gengið var frá samn- ingum um útgáfu á Svaninum í Hol- landi en hann hefur þegar komið út víðs vegar um heim. »■» Eva og Hitler. Opinberlega kom hann fram við hana af kulda, jafnvel fyrirlitningu. SU DOKU talnaþrautir Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir i hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 6 2 1 9 4 8 6 2 1 3 7 9 8 2 5 2 4 9 3 1 8 3 6 1 5 5 8 2 1 4 7 2 3 Lausnir siðustu gátna 9 7 5 8 2 3 1 6 4 4 1 8 5 6 9 2 3 7 2 3 6 4 1 7 8 5 9 5 2 1 9 4 6 3 7 8 8 4 3 1 7 2 6 9 5 6 9 7 3 8 5 4 1 2 3 5 2 6 9 4 7 8 1 1 6 4 7 5 8 9 2 3 7 8 9 2 3 1 5 4 6 6 4 5 8 1 3 9 2 7 2 3 7 4 9 6 1 5 8 8 1 9 5 2 7 6 3 4 3 2 8 6 5 9 4 7 1 9 6 4 1 7 2 5 8 3 5 7 1 3 4 8 2 6 9 7 5 6 9 8 4 3 1 2 1 9 2 7 3 5 8 4 6 4 8 3 2 6 1 7 9 5

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.