blaðið - 22.03.2006, Page 2

blaðið - 22.03.2006, Page 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 blaöið blaöi Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur Sími: 510 3700 * www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Framkvæmda- stjóri Morgun- blaðsins hættir mbl.is | Hallgrímur Geirsson reindi frá því í gær á aðalfundi rvakurs hf„ útgáfufélags Morgunblaðs- ins, að hann hefði óskað eftir starfs- lokum sem framkvæmda- stjóri félagsins. Stjórn Árvak- urs hefur fyrir sitt leyti fallist á þessa ósk Hallgríms en jafn- framt farið þess á leit að hann gegni stöðu framkvæmdastjóra uns nýr kemur til starfa. Ár- vakur á helmingshlut í félaginu Ár og degi sem gefur út Blaðið. Hallgrímur segir í greinargerð, sem hann flutti á aðalfundinum og sendi starfsfólki Árvakurs í gær, að á liðnu ári hafi orðið uppstokkun í hópi hluthafa og stjórna. Ný kynslóð með nýja þekkingu, menntun og reynslu hasli sér völl í forystuliði félags- ins og gefi því aukinn styrk til að takast á við þau stóru verk- efni sem framundan séu. Því telji hann að nú sé rétti tíminn til að kalla eftir nýjum forystu- manni á framkvæmdastjórastól til að leiða þá vinnu sem fram- undan sé og ráðið geti miklu um framtið útgáfufélagsins og starf- semi þess. Hallgrímur tók við starfi fram- kvæmdastjóra Árvakurs í. októ- ber árið 1995. Þar á undan var hann stjórnarformaður félags- ins í niu ár. Íshokkíið æft Blcliö/SleinarHugi Þrátt fyrir aö landið okkar sé skírt eftir frosnu vatni er ekki svo að landið sé hulið fs. Þvert á móti er erfitt fyrir þá sem stunda einhvers- konar skautaíþróttir að finna isi lagt vatn til að leika sér á. Þvf er leitað á tilbúin svell og vandinn þannig leystur. Það var einmitt það sem félagar í þriðja flokki Skautafélags Reykjavfkur gerðu og mættu til æfingar f fullum herklæðum. Hlutabréf lækkuðu mikið Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,25% í viðskiptum upp á tæpa sex milljarða króna í Kauphöllinni i gær. Mest lækk- uðu hlutabréf í KB-banka, eða um 4,8% í viðskiptum upp á 2,1 milljarða króna. Landsbankinn lækkaði um 4,33%, íslandsbanki um 4,21% og bréf í Straumi-Burð- arás lækkuðu um 2,78%. Minniháttar árekstrar Lítið varð um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær þrátt fyrir töluverða hálku á götum. Fimm árekstrar höfðu verið skráðir í höfuðborginni um sex- leytið í gær sem er óvenju lítið. Um minniháttar árekstra var að ræða í öllum tilfellum. Þrír fólksbílar lentu í árekstri við Litlu kaffistofuna í gær- morgun og þá missti erlendur ferðamaður stjórn á bíl sínum skammt frá Hvolsvelli með þeim afleiðingum að hann fór heila veltu. Danske Bank gefur út svarta skýrslu um íslenskan efnahag Spáir minnkandi landsframleiðslu og hröðu gengisfalli á nœsta ári. ísland horið saman við Thaíland og Tyrkland fyrir kreppurnar þar. Bankarnir svarafullum hálsi. Islendingar stefna hraðbyri inn í efnahagslægð, sem kann að lækka gengi íslensku krónunnar um fjórð- ung og hleypa verðbólgu af stað. Þetta kemur fram í skýrslu Danske Bank, sem út kom í gær. „Lands- framleiðsla gæti fallið um 5-10% á næstu tveimur árum,“ segir í skýrsl- unni, sem Lars Christensen er aðal- höfundur að, en hann er einn helsti greiningarsérfræðingur bankans. Danske Bank er næststærsti banki á Norðurlöndum. Þá telur höfundur líklegt að 10% verðbólguhvellur verði þegar grengi krónunnar falli. I skýrslunni er bent á að verðbólga hafi undanfarin tvö ár farið fram úr verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Islands um leið og hagvöxtur hafi verið meiri en 8% árið 2004 og 5% 2005. Atvinnuleysi hafi hins vegar Pylsubarinn LaugardaTN farið niður í 1,6%. Þennan vöxt segir skýrsluhöfundur megi rekja til „slá- andi skuldaaukningar, skuldsetn- ingar og áhættu, sem á sér fáa líka i víðri veröld.“ Sem kunnugt er lýsti matsfyrir- tækið Fitch efa um lánshæfi íslands fyrir mánuði og vísaði til gjaldeyr- ishalla, erlendra skulda og skulda- stöðu bankanna. Merrill Lynch áætlar að íslensku bankarnir skuldi um 1,2 billjónir króna, sem gjaldfalli á næsta ári, en landsframleiðsla Is- lands nemur rétt tæpri billjón króna (þúsund milljörðum). í skýrslunni er útlitið ekki talið bjart. „Niðurstaða okkar er að Is- land sé nánast á alla mælikvarða litið í verri stöðu en Thaíland var fyrir kreppuna 1997 og aðeins lít- ilega betur statt en Tyrkland fyrir 2001“ íslendingar taka til varna Hér er um verulegan áfellisdóm að ræða yfir islensku fjármálalífi. Er þess skemmst að minnast að Davið Oddsson, Seðlabankastjóri, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið á föstu- dag fráleitt að ræða um „krísu“ í þessu samhengi og taldi slíka um- ræðu einkennast af misskilningi, fljótfærni og jafnvel illum hug. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra tók í sama streng á Alþingi í gær og sagði það væri áhyggjuefni hversu viljugir sumir fjölmiðlar og stjórnarandstaðan hefðu verið til að taka undir órökstudda gagn- rýni, sem nokkrir erlendir aðilar hefðu haft uppi á íslenska fjármála- kerfið. í hópi þessara erlendu að- ila væru meðal annars bankar og greiningardeildir banka, sem væru í harðri samkeppni við íslenska að- ila og gagnrýnin væri hreinlega sett fram 1 því skyni að koma höggi á samkeppnisaðila. Islensku bankarnir hafa einnig tekið til varna hér heima sem er- lendis og má segja að Landsbank- inn hafi gengið þar fram fyrir skjöldu og talið gagnrýni á stöðu bankans óverðskuldaða. I yfirlýs- ingu frá bankanum kom fram að eiginfjárhlutfall bankans væri 13,1% en í Bretlandi væri meðaltalið 8,1%. KB banki hefur gefið út ámóta yf- irlýsingu. Þá kemur fram í yfirlýs- ingu Landsbankans að í þolprófi Fjármálaeftirlitsins hefði komið í ljós að Landsbankinn gæti hæglega staðist 35% hrun í Kauphöllinni, 25% lækkun krónunnar og 20% út- lánatap, þó allt þetta dyndi yfir í einu. Þá hafa menn einnig vísað til þess að um 75% af útistandandi lánum í bankakerfinu eru með veð i fyrirtækjum, sem eru með tekjur í erlendum gjaldeyri. Sérfræðingar benda á að þrátt fyrir að allt reynist í himnalagi í ís- lensku efnahagslífi muni áhrif um- ræðunnar samt verða nokkur. Lán íslenskra banka erlendis verði dýr- ari og um leið verði þeir varfærnari í útlánum. CCC Helöskirl (C^ Léttskýjað ^ Skyjað ^ Alskýjað - Rigning, lítilsháttar Rignlng 5 5 Súld 'K Snjðkoma r^7 Slydda TJJ Slydda rjj Snjóél ' Skúr Amsterdam 03 Barcelona 15 Berlfn 04 Chicago -04 Frankfurt 05 Hamborg 02 Helsinki -04 Kaupmannahöfn 02 London 05 Madrid 12 Mallorka 16 Montreal -02 New York 01 Orlando 16 Osló 0 París 06 Stokkhólmur -01 Þórshöfn 0 Vín 09 Algarve 16 Dublln 03 Glasgow 04 Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 302 0600 Byggt ó upplýsingum frá Veöurstofu íslands

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.