blaðið - 22.03.2006, Page 8

blaðið - 22.03.2006, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 blaöiö Hörð átök í Nepal Rúmlega 30 manns, hið minnsta, týndu lífi i átökum í gær í Nepal. Mannfall fer nú vaxandi á ný í átökum stjórnhersins og skæruliða maóista. Að sögn tálsmanns yfirvalda féll 21 skæruliði og tíu hermenn í átökum gærdagsins. Sagði ónefndur herforingi að njósn hefði borist af því flokkar skæruliða hefðu safn- ast saman í Dhading-héraði um 80 kílómetra vestur af höfuðborginni, Kathmandu. Hefði þeim verið gerð fyrirsát og rúmlega 20 þeirra verið felldir. Kvaðst stjórnarherinn ekki hafa orðið fyrir mannfalli í þessari að- gerð. Hins vegar hefðu tíu hermenn fallið í tveimur árásum í austurhluta landsins. Á mánudag féllu 13 stjórnar- hermenn, hið minnsta, í bardögum skammt austur af Kathmandu. Þá lauk sex daga aðgerð skæruliða sem miðaði að því að hefta vöruflutninga um vegi landsins. f janúarmánuði hurfu skæruliðar frá einhliða vopnahléi sem þeir höfðu lýstyfirenstjórnvöldbrugðustáengan hátt við. Hafa bardagar því harnað til muna á undanliðnum vikum. Talið er að rúmlega 13.000 manns hafi týnt lífi í átökunum í Nepal á síðustu tíu árum. Maóistar hófu vopnaða bar- áttu gegn konungdæminu árið 1996. Þeir hyggjast steypa því og koma á kommúnísku lýðveldi. SPt r BÆJARLIND 1 - Sími 544 4510 Niðurlútur stjórnmálamaður segir af sér: Leila Freivalds, fráfarandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, og Göran Persson forsætisráðherra á fundi með blaðamönnum í gær. Forsætisráðherrann sagði Freivalds hafa ákveðið að láta af embætti en i Svíþjóð telja stjórnmálaskýr- endur flestir að hún hafi verið þvinguð tii afsagnar. Stærsti vandi Perssons leystur OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10.00 - 20.00 Okkur vantar fólk til starfa við afgreiðslustörf.. VERKSVIÐ • Grænmetisborð og pontonir • Vöruáfylling • Kassi Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf... Upplýsingar veitir verslunarstjóri Friðrik Sigþórsson Verslunarstjóri: Fín verslun Spar Gsm: 897-0379 Sími: 544-4510 Frissi@sparverslun.is ______________________________________________________ Otrivin nefúðinn og nefdroparnir innihalda xýlómetasólin sem vinnur gegn bólgu, nefstiflu og slimmyndun vegna kvefs og bráðrar bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin virkar fljott og áhrifin vara i 6-10 klst. Otrivin getur valdið auka* verkunum, s.s. ertingu í slímhúð og sviðatilfinningu. Einnig ógleði og höfuðverk. Otrivin má nota þrisvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn. Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leitt til þurrks í nefslímhúð. Sjúklingar með glaku eða þeir sem hafa ofnæmi fyrir xýlómetasólin ættu ekki að nota Otrivin. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Otrivin MENTHOL UKONSERVERET Otrivin MtNTHOll Austurstrætí ■ Austurveri • Domus Medica • Firöi, Hatnarfirði • Fjarðarkaupum Glæsibæ ■ Hamraborg Kópavogi • JL-húsinu • Kringlunni 1 .hæð ■ Kringlunni 3,hæð Melbaga ■ Mjódd ■ Mosfellsbæ • Salahverfi ■ Eíðistorgi ■ Hellu ■ Hveragerði • Hvolsvelli Kjarnanum Selfossi ■ Vestmannaeyjum • Þorlákshöfn • Dalvík • Glerártorgi Akureyri Hrísalundi Akureyri ■ Ólafsfirði ■ Akranesi • Keflavik ^ - I / Mæsespray í NEFUÐI 10 ml • Otrivin fyrir 2-10 ára lometazolin. i /drochlorid. | ■ Otrivin fyrir 10 og eldri • '■ :í f 1 ■ Otrivin Menthol fyrir Laila Freivalds sagði ígær afsér embœtti utanríkisráðherra Svíþjóðar. Hún var vænd um embættishroka og að hafa reynt að hefta skoðanafrelsið í Svíþjóð. Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, skýrði frá þvi í gær- morgun að hún hefði ákveðið að segja af sér embætti. Freivalds hafði sætt harðri gagnrýni á síðustu mánuðum og m.a. verið vænd um embættishroka. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur þegar ákveðið að Bosse Ringholm, aðstoðarforsæt- isráðherra, taki við embætti utan- ríkisráðherra. Á blaðamannafundi í gærmorgun harmaði Persson af- sögn Freivalds og sagði hana hafa verið „kröftuga og hæfa” í embætti utanríkisráðherra. Sagði einnig af sér embætti dómsmálaráðherra Freivalds sem er 63 ára tók við emb- ætti utanríkisráðherra í október- mánuði árið 2003 eftir að forveri hennar Anna Lindh hafði verið ráðin af dögum. Freivalds var dóms- málaráðherra Svíþjóðar 1988-1991 og síðar á ný á árunum 1994-2000. Þá neyddist hún til að segja af sér i kjölfar ásakana um að hún hefði fengið við góðu verði íbúð sem hún hafði lengi haft á leigu en var í eigu Stokkhólmsborgar. Freivalds var harðlega gagn- rýnd sökum framgöngu sinnar þegar hundruð Svía týndu lífi er flóðbylgjan mikla myndaðist á Ind- landshafi í kjölfar landskjálfta við Indónesíu í desembermánuði árið 2004. Þótti hún sýna málinu furðu lítinn áhuga og var m.a. vænd um að hafa kosið að fara fremur í leik- hús en að standa neyðarvaktina í utanríkisráðuneytinu. Þetta var þó ekki málið sem réði örlögum hennar. í febrúarmánuði var netsíðu stjórnmálasamtaka, Sver- igedemokraterna, lokað. Samtökin höfðu þá hvatt lesendur til að senda inn skopteikningar af Múhameð spá- manni en deilan vegna slíkra mynd- birtinga í Danmörku var þá í há- mæli. I ljós kom að embættismaður einn í utanríkisráðuneytinu setti sig í samband við netfyrirtæki það sem hýsti vef Sverigedemokraterna. Var Freivalds af þessum sökum vænd um að vilja hefta skoðana- og mál- frelsið i Sviþjóð. Þessu neitaði ráðu- neytið raunar og var því lýst yfir að ekki hefði verið þrýst á um að síðunni yrði lokað heldur eingöngu bent á að birting skopteikninga af spámanninum á sænskri síðu gæti haft alvarlegar afleiðingar. Freivalds fullyrti í viðtölum að hún hefði hvergi komið nærri máli þessu og sagði ekki rétt vera að hún hefði gefið undirsáta sínum skipun um að beita sér fyrir því að vefsíð- unni yrði lokað. Síðar komu fram upplýsingar sem gáfu tilefni til að ætla að þessi framburður utanrík- isráðherrans væri ekki alls kostar réttur. Styrkir ríkisstjórnina í fréttaskýringu Svenska Dagbladet i gær sagði að brotthvarf Freivalds úr embætti ætti að vera Göran Pers- son forsætisráðherra léttir. Staða hans og rikisstjórnarinnar yrði sterkari en áður. Freivalds hefði verið „stærsti vandi“ forsætisráð- herrans. Fullyrt var I grein þessari að Persson hefði neyðst til að reka ut- anríkisráðherrann úr embætti. Það mætti vissulega túlka sem ósigur en Freivalds hefði staðið frammi fyrir vantrauststillögu sem hún hefði vart fengið staðið af sér á þingi. Að auki hefði Freivalds verið trausti rúin vegna framkomu sinnar þegar flóðbylgjan reið yfir á Indlandshafi. Persson gæfist því nú kærkomið tækifæri til að gera breytingar á stjórn sinni í því augnamiði að öðl- ast traust kjósenda á ný. high Flott hugmynd að fermingargjöf Klra 3 Frábært kúlutjald með stóru fortjaldi. Fermingartilboö 8m9i kr. Verð áður 10.990 kr. Tjöld frá 5.990 kr. SMÁRALIND SIMI 545 1550 o GLÆSIBÆ SiMI 545 1500 o KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 UTILIF

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.