blaðið - 22.03.2006, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTXR
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 Ma6ið
Forseti Kína, Hu Jianto, býður Vladímír Pútín velkominn en tveggja daga heimsókn hans
til Kína hófst t gær.
Rússar og Kínverjar styrkja
samstarf á sviði orkumála
Forseti Rússlands, Vladimír
Pútín, og kínverskur starfsbróðir
hans, Hu Jintao skrifuðu undir
samkomulag í gær um nánari
samvinnu þjóðanna á sviði
orkumála. Samskipti þjóðanna
hafa orðið æ nánari undanfarinn
áratug en Kínverjar leggja mikla
áherslu á að fá greiðari aðgang að
rússneskri olíu auk þess sem þeir
reiða sig á rússneskan hergagna-
iðnað við nútímavæðingu herafla
síns.
Pútín er í tveggja daga opinberri
heimsókn i Kína og leiðir níutíu
manna sendinefnd úr olíu- og orku-
geira landsins. Ekki er búist við að
samkomulag náist um staðsetningu
á fyrirhuguðum olíuleiðslum frá
Rússlandi til Kyrrahafsstrandar
Asíu. Staðsetningin er Kínverjum
mikið hagsmunamál þar sem að
innflutningur þeirra á olíu frá Rúss-
landi takmarkast af lítilli flutnings-
getu járnbrautarlesta. Lagning olíu-
leiðslu sem næði frá Síberíu til Kína
myndi breyta miklu um aðgengi
þeirra að orku. Staðsetning leiðsl-
anna mun að miklu leyti ráðast af
því hvort stjórnvöld í Moskvu leggi
meiri áherslu á sölu til Kína eða
Japan.
Forsetarnir tveir ræddu einnig
kjarnorkuáætlun írana sem er
komin á borð Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna. Bæði stjórnvöld
í Moskvu og Peking hafa lýst yfir
nauðsyn þess að málefni Irans verði
leyst við samningaborðið. Talið er
líklegt að Rússar og Kínverjar beiti
sér gegn viðskiptaþvingunum gegn
íran á vettvangi Öryggisráðsins.
Bandaríkjamenn vænd-
ir um fjöldamorð í írak
Fullyrt er að landgönguliðar hafi tekið 15 óbreytta borgara aflífi í bœnum
Haditha í nóvembermánuði. Bandaríkjaher segir rannsókn hafna.
Fallnir bornir í líkhús í Haditha í Irak. Bandarískir landgönguliðar eru sakaðir um að hafa tek-
ið fimmtán óbreytta borgara af lífi en bandarísk yfirvöld sögðu í fyrstu að þeir hefðu farist í
sprengingu. Því er einnig haidið fram að þeir hafi fallið í átökum hermanna og skæruliða.
Fram hafa komið ásakanir þess
efnis að bandarískir hermenn
hafi tekið 15 óbreytta borgara af
lífi í írak. Rannsókn er hafin á
málinu.
Árásin er sögð hafa verið gerð
í bænum Haditha 19. nóvember
í fyrra. Fullyrt er að 12 menn í
sveitum landgönguliða flotans (e.
Marines) hafi tekið 15 óbreytta borg-
ara, hið minnsta, af lífi. Sagt er að
sjö konur og þrjú börn hafi verið
á meðal þeirra sem hermennirnir
myrtu.
Bandaríkjamenn höfðu vísað full-
yrðingum þessum á bug og sagt að
fólkið hefði týnt lífi er vítisvél sem
komið hafði verið fyrir í vegarkanti
sprakk. Nú mun rannsókn hafa leitt
í ljós að þessi skýring fái vart staðist,
að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.
Verður nú, að sögn talsmanna Banda-
ríkjahers, rannsakað hvort fólkið
hafi týnt lífi er það lenti á milli í skot-
bardaga hermanna og skæruliða í
Afganistan. Ennfremur verður rann-
sakað hvort um árás bandarísku her-
mannanna hafi verið að ræða til að
hefna fyrir fallinn félaga.
Algengt er að írakar saki banda-
ríska hermenn um fjöldamorð og
önnur óhæfuverk í landinu. íbúar
í Haditha segja að landgöngulið-
arnir hafi farið um bæinn myrðandi
óbreytta borgara til að hefna fyrir fé-
laga sem fallið hafði skömmu áður.
I skýrslu Bandaríkjamanna sem
unnin var eftir átök í Haditha segir
hins vegar að landgönguliðar hafi
orðið fyrir þungri skotárás úr öllum
áttum. Þeir hafi brugðist til varnar
og fellt átta íraska skæruliða. I þess-
ari skýrslu er fullyrt að óbreyttu
borgararnir 15 hafi týnt lífi í veg-
sprengingu sem varð er bardaginn
hófst. Vikuritið Time greindi hins
vegar fyrst frá því að skýrslan væri á
engan veg í samræmi við framburð
íbúanna. Sagði blaðamaður Time
eftir að hafa séð myndir af líkum
fólksins að óhugsandi væri að það
hefði týnt lífi í sprengingu. Time
telur sig hins vegar ekki geta full-
yrt að fjöldamorð hafi verið framið
í bænum en frumrannsókn hersins
mun hafa leitt í ljós að landgöngu-
liðarnir hafi ekki myrt fólkið hefur
hafi það týnt lífi er það lenti á milli í
bardaga þeirra og skæruliða.
smellu-
rammar
www.samskipti.is
Auðvelt að skipta
um myndefni
verð frá
kf. 2.490 +24,5% vsk.
inni
skilti
E
o
*o
E
o
uo
E
upplýsingar í
síma
Hægt að
fella saman
verð frá
580 7820
kr. 9.900 +24,5% vsk.
SA+iSK IPTOf^
)
\