blaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 13
blaðið MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
VÍSINDI I 13
Malaríutilfellum fjölgar í Afríku
Hœkkun hitastigs virðist meðal annars stuðla aðfjölgun malaríutilfella samkvœmt nýlegri rannsókn.
Tilfellum malaríu fjölgar ört í
hálöndum Austur-Afríku. Sam-
kvæmt nýlegri rannsókn má að
hluta til skýra þessa fjölgun með
hækkandi hitastigi. Hitastigið í
hálöndum Austur-Afríku hefur
hækkað um hálfa gráðu á Celsíus
á síðustu fimmtíu árum sam-
kvæmt vísindamönnum. Hækkun
hitastigsins hefur bein áhrif á
fjölda moskítuflugna en þær bera
malaríu á milli fólks.
Malaríutilfellum hefur íjölgað veru-
lega á vissum svæðum hálanda
Austur-Afríku og hluti orsakarinnar
er hitastigsbreytingar. Þessi nýja
rannsókn byggir á nýrri greiningu
á hitastigi á fjórum hálandasvæðum
í Vestur-Kenýu, Suðvestur-Oganda,
Suður-Rúanda og Norður-Búrundí.
„Þessi svæði höfðu verið rannsökuð
áður en ekki fundist neinar sannanir
fyrir hlýnuninni," segir Dr. Merce-
des Pascual í háskólanum í Mich-
igan. „Við skoðuðum svæðin aftur og
lengdum tímarammann sem miðað
var við. I ljós kom að hitastigið hafði
hækkað um hálfa gráðu á Celsíus á
fimmtíu árum en hröðustu breyting-
arnar voru frá áttunda áratugi síð-
ustu aldar og til dagsins í dag.“
Ekki helsta orsök
Þessar niðurstöður þýða ekki að hita-
stigið sé helsta orsök fjölgunar mal-
aríutilfella en þetta er einn af þeim
þáttum sem þarf að skoða. Á und-
anförnum árum hafa komið upp ný
malaríutilfelli á nokkrum svæðum
í hálöndum Austur-Afríku þar sem
hitastigið er nokkrum gráðum lægra
en á þeim svæðum Afríku sem lægra
liggja.Mögulegarskýringargetaverið
búferlaflutningar, minni gæði heilsu-
gæslu og aukin mótspyrna gegn mal-
aríulyfjum. Einnig hefur verið bent
á að með hærra hitastigi eða aukinni
rigningu fjölgar moskítóflugum sem
dreifa malaríusníklinum.
Moskítóflugum flölgar um 30-100%
í rannsókninni voru hitastigsbreyt-
ingarnar settar í sérhannað tölvufor-
rit sem gerir líkan af stofni moskító-
flugnanna. Ef hitastig hækkar um
hálfa gráðu á Celsíus reiknar tölvu-
forritið með að moskítóflugum fjölgi
á milli 30-100%. „Fjölgunin verður
vegna áhrifa hitastigsins á þroska
moskítóflugnanna,“ segir Dr. Pascual.
„Áhrifanna gætir lfka á fullorðnar mo-
skitóflugur en ekki þó eins mikið." Á
lægri svæðum þar sem mikið er af
moskítóflugum og malaría er land-
læg myndi slík breyting á hitastigi
hafa lítil áhrif á fjölda sýkingartilfella.
En aftur á móti eru skordýr fágætari
á hásléttunni og því er líklegra að
aukning malaríu megi rekja til fjölg-
unar moskítóflugna.
svanhvit@bladid.net
Súkkulaði-
löngun erfist á
milli kynslóða
Ást fólks á súkkulaði getur verið
mun dýpri en venjuleg sætinda-
þörf. Súkkulaði getur kveikt
löngun á allt annan hátt en
annað sælgæti og flestum líður
sérstaklega vel eftir neyslu þess
og margir telja að það geti verið
ávanabindandi.
Allt súkkulaði
sem er selt í versl-
unum innheldur
töluvert magn af
sykri, staðreynd
sem gæti að hluta
til skýrt hvers
vegna súkkulaði
virðist vera ávana-
bindandi. 1 raun
er hægt að erfa
löngun í sætindi
frá foreldrum
sínum en nýleg
ROmlega 300 efni
eru í súkkulaði.
Ekki er vitað
hvaðaáhrif öil
þeirra hafa á
mannslíkamann.
rannsókn sem var gerð f New York-
háskóla gefur til kynna að arfgengi
löngunar fólks í sætindi. Rannsóknin
var gerð á tveimur stofnum músa
sem voru sérstakiega fóðraðar eftir
því hvort foreldrarnir vildu sætt
eða ósætt vatn. Rannsakendurnir
fúndu gen sem var ólíkt í þessum
tveimur hópum og leituðu sfðan
eftir svipuðu geni í mannfólkinu.
Súkkulaði framkallar
ánægjutilfinningu
Rétt eins annar sætur matar verður
súkkulaði til þess að auka endorfín-
framleiðslu líkamans en endorfín er
náttúrlegt líkamshormón sem fram-
kallar ánægjutilfinningu. Burstéð
frá ánægjutilfinningunni þá eru
margvísleg efni í súkkulaði sem geta
ýtt undir löngun í súkkulaði. Sannast
sagna eru yfir 300 efhi í það og
ekki er vitað hvaða áhrif öll þeirra
hafa á mannslíkamann. Margar
konur segjast sérstaklega finna fyrir
súkkulaðilöngun þegar þær hafa á
klæðum. Þetta er mögulega vegna
þess að í súkkulaði er magnesium
en skortur á magnesíum getur aukið
á tíðarverki. Barnshafandi konur
tala líka um súkkulaðilöngun en
það getur gefið til kynna að þær
þjáist af blóðleysi en járninnihald
súkkulaðis á að bæta þar úr.
Ástarlyf
Súkkulaði lætur okkur líka líða vel
með svörun við heilann þar sem
fleiri lítt þekkt innihaldsefni súkku-
laðis virðast hafa áhrif á taugaboð-
efnakerfi heilans. Taugaboðefni eru
efnafræðilegir sendiboðar heilans
sem virka á þann hátt að þau senda
rafmerki á milli taugaffuma. Þessi
merki valda breytingum í skynjun og
tilfinningum sem við finnum fyrir.
Margir segja að súkkulaði sé nokk-
urs konar ástarlyf og á margan hátt
er það rétt. Trýptófan er efni sem
heilinn notar til að búa til taugaboð-
efni sem heitir serótónín. Serótónín
framkallar ofsakætisviðbrögð og
nokkurs konar alsælutilfinningu.
Tbe leading British magazine Car came in the January 2006 to the same condusion as so many other judging panels:
THE COMPETITORS FOR THE 2005 CAR OF THE YEAR:
ALFA ROMEO 159 LEXUSRX400H JAGUARXJD
RANGE ROVER SPORT HONDA CIVIC
BMW 3-SERIES SUZUKISWIF RENAULT CLIO
TOYOTA AYGO MERCEDES BENZ S-CLASS
Suzuki Swift er bilt sem hefur sett ný viðmið i hönnun, útliti og aksturseiginleikum fólksbíla
og hefur fengið fádæma góðar viðtökur um allan heim. Suzuki Swift var vaiinn btil ársins á Islandi 2006
af BIBB samtökum Islenskra bflablaðamanna. Suzuki Swift var einnig valinn „Car of the Year" 2005
af virtasta bílablaöi Bretlands „Car magazine".
Hann var valinn bfU ársins á frlandi, Nýja-Sjálandi, Astralfu, Kina, Mafasfu og Japan.
I Japan fékk Suzuki Swift Ifka „most fun special special achievement award" og „Design award of the year".
$ SUZUKI
...er lífsstíll!
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100.
www. suzukibilar. is