blaðið - 22.03.2006, Side 18

blaðið - 22.03.2006, Side 18
26 IKONUR MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 blaðiö Gód ráö til að slaka á Vinnan getur svo sannarlega verið þreytandi og valdið streitu og þegar það gerist er gott að hafa nokkur góð ráð í bakhöndinni til að takast á við stressið og hlaða rafhlöðurnar. Streitan á það til að fylgja okkur heim eftir vinnu og hafa áhrif á skapferli okkar, samskipti við aðra og jafnvel á svefninn. Hér á eftir fylgja góð ráð sem gott er að hafa í bakhönd- inni þegar streita gerir vart við sig. Ráðin hér á eftir eru fengin frá mörgum konum því það er misjafnt hvað hentar hverjum og einum. * Stutt slökun Slakaðu á í 5 mínútur þannig verð- urðu endurnærð og verður tilbúnari til að takast á við ný verkefni sem bíða. Prófaðu þetta til að endurnýja orkuna. * Hreyfðu þig Farðu í gönguferð eða í líkams- rækt í 45 mínútur daglega. Sú sem þetta reyndi sagði hreyfingu gera það að verkum að henni fannst hún hæfari og kom meiru í verk. * Farðu á stefnumót með sjálfri þér Það getur reynst vel að vakna svo- lítið fyrr en venjulega og eyða stund Pantið sokkabuxurnar á netinu www.primavera.is Fríheimsending efpantað ermeð VISA/Mastercard Afgreiðslutími 3 dagar með sjálfri sér. Fyrir margar konur er þetta eini lausi tíminn því allar stundir dagsins eru skipulagðar. En líkaminn veit hvers hann þarfnast og með þessum stundum er hægt að koma í veg fyrir kvilla tengda streitu eins og höfuðverk. * Dekraðu við skilningarvitin Hafðu kerti á skrifborðinu þínu, mynd af einhverjum úr fjöl- skyldunni eða blóm, láttu hugann reika um stund og dragðu and- ann djúpt. Þetta eykur orku og hugmyndaauðgi. * Kryddaðu tilveruna Fyrir þær sem vinna heima getur verið gott að byrja á því að horfa á góða mynd eða hlusta á tónlist áður en hafist er handa við verkefni dagsins. *Notaðu slökunarkúlur Vertu með slökunarkúlur á skrif- borðinu til að hafa milli handanna. Þetta hjálpar þér að slaka á og koma með nýjar hugmyndir. * Hafðu húmor Það getur verið slakandi að sjá björtu hliðarnar á tilverunni, spauga við samstarfsfélagana og skella upp úr annarslagið. * Fáðu þér smók Fyrir ykkur sem reykið getur verið gott ráð að fara út að reykja þrátt fyrir að það sé ekki hollt. * Fáðu stuðning frá öðrum Þegar þú ert stressuð þarftu stuðn- ing annarra. Hvort sem stuðingur þinn er á heimilinu eða í mikilli fjar- lægð skaltu hafa samaband við fólk sem þú telur að geti veitt þér and- legan stuðning. *Nærðu sálina Hlustaðu á falleg skilaboð sem þú hefur fengið á símsvarann þinn eða lestu gömul sms skilaboð frá ein- hverjum sem þér þykir vænt um. *Breyttu rútínunni Ef þú býrð nálægt heimilinu getur verið gott ráð að fara heim úr vinn- unni í hádeginu og slaka á. Ef sá möguleiki er ekki fyrir hendi getur verið gott að fara á kaffihús, veitinga- stað eða brjóta upp daginn á annan hátt. Heimild: Cosmopoiitan hugrun@bladid.net Prjónaskapur aldrei vinsœlli en nú Mohair, glitþræðir og hnútagarn vinsœlt ípeysur. í gærkvöldi hélt Tinna ehf - prjónablaðið Ýr, sýningu á Hótel Sögu þar sem það nýjasta í hand- prjóni fyrir börn og fullorðna var til sýnis. „Prjónaskapur hefur aldrei verið vinsælli en nú frá því prjónablaðið Ýr hóf útgáfu sína fyrir 18 árum síðan og síðasta haust þurfti að end- urprenta blaðið", segir Auður Krist- insdóttir ritstjóri prjónablaðsins Ýr. „Yngra fólk er mikið farið að prjóna, úrval garns er orðið mjög mikið og margir nýta sér að prjóna á sjálfa sig eða aðra fjölskyldumeð- limi. Núna þykir fínt að vera í heimaprjónuðum flíkum og undan- farið hefur verið vinsælt að prjóna þröngar berustykkjapeysur með rennilás.“ Auður segir að flestir byrji á því að pjóna trefla sem sé mjög einfalt og aðeins þurfi að fitja upp, prjóna slétt og fella af. „Síðan er hægt að fara að prjóna húfur og peysur og það er heldur ekki mikið mál. Prjónaskapur byggir á einfaldri tækni þar uppistaðan eru sléttar og brugðnar lykkjur en leiðbeiningar um prjónaskap má finna í prjóna- blaðinu Ýr. I nýjasta tölublaði blaðs- ins eru leiðbeiningar sem ætlaðar eru þeim sem vilja læra að prjóna og hekla.“ Auður segir algengt að konur hekli fatnað eins og pils, sjöl og vesti. Hannyrðir prjónahóps Reykjavíkurdeildar Rauða kross fslands. Gefandi að prjóna „Það er gefandi að stunda handverk eins og prjónaskap og þetta er menn- ingarlegt fyrirbæri sem hefur fylgt þjóðinni í gegnum aldirnar. Það sem knýr fólk áfram í hannyrðum er sköpunargáfan sem blómstrar og veitir mikla gleði. Á tískusýningunni á Hótel Sögu var hægt að fá hugmyndir um það úrval lita og mynstra sem mest eru notuð núna og hverskonar snið eru í tísku bæði fyrir börn og fullorðna en þetta var í fjórða skipti sem sýn- ingin var haldin. Nú eru 10.000 konur skráðar í ókeypis prjónaklúbb á tinna.is og þeir sem skrá sig fá sent fréttabréf um hvað er á döfinni hverju sinni en vefurinn er fyrst og fremst upplýsinga- og fræsluvefur fyrir hannyrðakonur. Hvað er reyndprjónakona lengi með eina peysu? „Tíminn skiptir ekki máli þegar maður er að gera eitthvað sem er skemmtilegt. Þegar maður prjónar er tíminn fljótur að líða og áður en maður veit af er flíkin tilbúin. Víða um heim hafa sprottið upp prjóna- kaffi þar sem fólk kemur saman og sýnir hvað það er að gera og það væri gaman ef það yrði tekið upp hérlendis.“ Móhair og gullþræðir í tísku Auður segir að mohair og og glit- þræðir séu mikið notaðir í peysur núna. „Þá er hnútagarn mjög vin- sælt en það er aðallega notað í sjöl sem prjónuð eru á grófa prjóna. Þeir litir sem verða mest í tísku í sumar eru blágrænn, brúnn í ýmsum tónum, fjólublár og græni liturinn í ýmsum blæbrigðum, þá er hvítt alltaf vinsælt." Hafa konur í dag tíma til að prjóna? „Já það hafa þær svo sannarlega, þetta er eins og með lestur, spurn- ing um að forgangsraða. Ég nota t.d. tímann fyrir framan sjónvarpið til að hafa eitthvað á prjónunum og þegar ég fer í sumarbústaðinn tek ég hannyrðirnar með.“ hugrun@bladid. net Við eigum afmæli...

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.