blaðið - 04.04.2006, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 : blaAÍÖ
Bush á ættir að
rekja til Svíþjóðar
H+H
©1
Tveir Skandinavar og (tali: George Bush,
forseti Bandaríkjanna og Göran Person,
forsætisráðherra Svíþjóðar, ásamt ítalska
stjórnmálamanninum Romano Prodi.
mbl.is | George W. Bush, Bandaríkja-
forseti, á ættir að rekja til frænda
okkar Svía, að því er sænska dag-
blaðið Svenska Dagbladet hefur
eftir sænskum ættfræðingi í
Bandaríkjunum.
Ættfræðingarnir ráku ættir Bush
aftur um tíu ættliði, aftur til Maans
Andersson sem uppi var á 17. öld. And-
ersson sigldi frá Gautaborg í október
1639 °g nam land í Delaware, nánar
tiltekið innflytjendanýlendunni
Nýju-Svíþjóð . Rannsóknin var gerð
á vegum félagsins Swedish Colonial
Society, sem safnar söguheimildum
um veru Svía og Finna og uppruna í
Bandaríkjunum.
„George W. Bush og fjölskylda
hans hafa mikinn áhuga á þessari
rannsókn. Hún sýnir elstu rætur
þeirra í Evrópu,“ segir ættfræðing-
urinn David Emmi á dögunum í við-
tali við sænska blaðið.
Ert þú einn afþeim sem áttstafræna upptökuvél og
langar til aÖ læra að vinna efniÖ og gera það sem
sölumaöurinn sagði aÖ hægt væri að gera?
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á
undirstöðuatriðum myndbandsgerðar allt frá því að breyta
hugmynd í handrit og fínpússa myndbönd með ýmsum effektum.
Nemendur verða að hafa góða almenna tölvukunnáttu og æskilegt
er að nemendur eigi eða hafi aðgang að stafrænni tökuvél.
Kennt er á Premiere klippiforritið
frá Adobe sem er eitt visælasta
forritið á markaðnum í dag.
- stníræn klippning og eftirvinnsln
GRUNNNAM I
M YNDBANDAVINNSLU
• Kvöldnámskeið
Mánudaga og miðvikudaga 18-22
Byrjar 19. apríl og lýkur 10. maí.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA
: ntV.ÍS =
544 4500 OG Á NTV.IS
Portia Simpson Miller.
Kona verður forsætis-
ráðherra Jamaíku
Portia Simpson Miller, nýrforscetisráðherra Jamaíku, þarf
ekki að óttast verkefnaskort. Morðalda ríður nú yfir landið,
atvinnuleysið er mikið og menntakerfið í rúst.
Portia Simpson Miller hefur svarið
embættiseið forsætisráðherra Ja-
maíku, fyrst kvenna í sögu landsins.
Fjölmargir leiðtogar komu víða að
úr heiminum til athafnarinnar sem
fram fór í höfuðborginni, Kingston.
Simpson Miller, sem er sextug,
tók við embættinu af PJ Patterson
sem verið hafði forsætisráðherra í
14 ár.
Nýi forsætisráðherrann hefur
hvatt landsmenn til að hætta að
hafa áhyggjur af kynferði hennar.
Þjóðin þurfi að sameinast um að
leita lausna á þeim margvíslegu
vandamálum sem hana þjaka. Þar
SlflL
HITABLÁSARAR
Hágæða rafmagns-
og steinolíublásarar
Margar stærðir og gerðir
- hagstætt verð
MURBÚÐIN
Kletfhálsi 7-110 Reykjavík
v Sími 544 5470 ■ www.murbudin.is y
ber hæst gífurlegur fjöldi glæpa.
Simpson Miller var kjörin for-
maður Þjóðarflokksins í atkvæða-
greiðslu en hún bar naumlega sig-
urorð af ráðherra öryggismála og
tveimur öðrum frambjóðendum.
Hún nýtur verulegra vinsælda á
Jamaíku og hefur verið einn þekkt-
asti stjórnmálamaður eyjarinnar frá
því á áttunda áratugnum. Simpson
Miller er af fátæku foreldri komin
en vann sig upp innan Þjóðarflokks-
ins. Hún þykir geysilega ákveðin
og tundurþráður hennar er sagður
stuttur. Hún þykir ná sérlega vel til
alþýðu manna, einkum kvenna og
hinna fátæku.
PJ Patterson naut einnig gríðar-
legra vinsælda á Jamaíku. Hann
leiddi flokk sinn til sigurs í þrennum
kosningum en þá tók að halla undan
fæti. Hann yfirgefur nú embættið
trausti rúinn sökum ásakana um
spillingu.
Simpson Miller bíður ærinn starfi
og erfiður. Glæpatíðni hefur aukist
til mikilla muna. Fleiri morð eru nú
framin en nokkru sinni fyrr í sögu
landsins. Atvinnuleysið er gífurlegt
og menntakerfið er í rúst.
Stjórnarandstaðan segir Simpson
Miller að hafi ekkert nýtt fram að
færa. Sumir innan Þjóðarflokksins
eru sama sinnis.
KD Knight, utanrikisráðherra,
dró mjög í efa að hún reyndist fær
um að sinna þessu embætti áður en
hann sagði af sér.
Þinglcosningar fara fram á Ja-
maíku á næsta ári.
Fékk 10 ára
fangelsisdóm
fyrir aðild
að al-Qaida
mbl.is | Spænskur dómstóll hefur
dæmt Alsírbúann Ahmed Brahim í
tíu ára fangelsi fyrir aðild að hryðju-
verkasamtökunum al-Qaida og fyrir
að ætla að setja upp vefsvæði til að
koma á framfæri upplýsingum um
samtökin.
Ahmed Brahim var handtekinn
i apríl 2002 í Sant Joan Despi, sem
er ekki langt frá Barcelona á. Fann
lögregla hugbúnað og tölvubúnað
sem metinn er á rúmar 40 þúsund
evrur, eða um 3,5 milljónir króna á
heimili hans.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu á Brahim að hafa rætt áform
sín um vefsíðugerð á fundum með
al-Qaida liðum á Spáni. Meðal ann-
ars við Mamdouh Mahmud Salim
sem er nú í bandarísku fangelsi þar
sem hann bíður réttarhalda fyrir að-
ild að sprengjutilræðum árið 1998 á
sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og
Tansaníu. Á þriðja hundrað manns
féllu í tilræðunum.
Þiggið mútur,
en dæmið rétt
Fanny Amun,
starfandi aðal-
ritari nígeríska
knattspyrnu-
sambandsins,
lýsti því yfir
á föstudag að
knattspyrnu- FannyAmun
dómarar ættu að
þiggja mútur, standi þær þeim til
boða. Hann segir hins vegar að dóm-
arar eigi ekki að láta þær hafa áhrif
á hvernig þeir dæma leiki. Amun
sagði á fundi nígeríska knattspyrnu-
sambandsins í síðustu viku að mútur
til dómara væru í sjálfu sér ekki
helsta vandamál nígerískar knatt-
spyrnu heldur fælist vandamálið í
því að dómarar láta múturnar hafa
áhrif á dómgreind sína. Samtök níg-
erískra knattspyrnudómara hafa
mótmælt ummælum Amun.
McCain tekur
ákvörðun um fram-
boð á næsta ári
John McCain, þing-
maður repúblikana,
lýsti því yfir í banda-
rískum fjölmiðlum
um helgina að hann
taki endanlega
ákvörðun á næsta ári
um hvort að hann
muni gefa kost á sér í
næstu forsetakosningum. McCain
gaf kost á sér í forvali repúblikana-
flokksins fyrir kosningarnar árið
2000 en laut í lægra haldi fyrir Ge-
orge Bush, núverandi forseta.
Líklegt þykir að John McCain
þurfi að etja kappi við Rudolph Giuli-
ani, fyrrum borgarstjóra New York,
um tilnefningu flokksins. Giuliani
hefur þó ekki enn tekið ákvörðun
um framboð.
John McCain
Át heilaga kú
mbl.is | Dómstóll í Nepal hefur dæmt
konu til tólf ára fangelsisvistar fyrir
að slátra og leggja sér til munns
kú. Kýr eru álitnar heilagar í Nepal
auk þess sem þær eru þjóðartákn
landsins. Konan, sem heitir Kripa
Bhoteni, er fimmtug og var hand-
tekin eftir að þurrkað kjöt fannst á
heimili hennar. Karlmanns, sem er
grunaður um aðild að málinu, er nú
leitað af lögreglu.