blaðið - 04.04.2006, Síða 22
22 I VIÐTAL
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 blaöið
Okkur vantar fleiri stjörnur
Brynja Björk um slúðurfréttir ogfrœgð
Á sex mánaða ferli sínum sem
blaðamaður og sjónvarpskona
hefur Brynja Björk Garðarsdóttir
vakið töluverða athygli bæði fyrir
skrif sín í slúðurblöð, en á sama
tíma hefur hún sjálf verið umfjöll-
unarefni þessara sömu blaða.
Margrét Hugrún Gústavsdóttir
hitti þessa ungu fjölmiðlakonu á
kaffihúsi í Smáralindinni.
Brynja vakti fyrst athygli þegar hún
var klædd afar stuttu pilsi á forsíðu
tímaritsins Sirkus. Fyrirsögn grein-
arinnar var: „Ég er algjör hnakkam-
ella“. Ég spurði hana út í þetta viðtal
og þessa djörfu fyrirsögn.
„Þetta var einhver einkahúmor
sem gekk aðeins of langt," segir
Brynja Björk og heldur áfram. „Þetta
var ekkert sem ég sagði beint i við-
talinu. Fyrir utan það vissi ég ekki
að viðtalið ætti að fara á forsíðu, ég
bjóst bara við einhverri lítilli grein í
einum dálki. Ætli það megi ekki bara
segja að ég hafi verið ung og óreynd
og ég vissi ekki betur.“
Hafði þetta viðtal mikil áhrif á líf
þitt?
„Já, auðvitað hafði þetta áhrif. Ég
lít samt bara á þetta sem brandara í
dag þó að það sé leiðinlegt að sumir
hafi þessa mynd af mér eftir viðtalið.
Ég held þó að fleiri viti hver Brynja
Björk er út af sjónvarpsþættinum
sem ég er með á Sirkus. Aðalmálið er
kannski að ég áttaði mig ekki á því
að þetta viðtal yrði svona stórt. Við
vinkonurnar fórum saman í spjall
sem við héldum að yrði hálfgert grín,
svo kom bara annað á daginn."
Það er nokkuð athyglisvert að
skömmu eftir að þetta umrædda
viðtal birtist við Brynju var henni
boðið starf sem blaðamaður hjá DV.
Ég spurði hana hvort þessi reynsla
hefði kennt henni einhverja lexíu við
blaðamannastörfin.
„Ég tileinka mér ekki þessar vinnu-
Blalit/SteinarHugi
„Mér finnst skemmtilegast að taka viðtöl við áhugavert fólk. Fólk sem hefur orðið fyrir áhugaverðum lífsreynslum," segir Brynja Björk.
aðferðir, það má segja það. Blaða-
menn eru eins misjafnir og þeir eru
margir og þó að það sé ákveðin rit-
stjórnarstefna í gangi þá eru vinnu-
brögð misjöfn. Mínar vinnureglur
byggjast kannski fyrst og fremst á
því að ég tek allt upp og ef viðmæl-
andi minn krefst þess að lesa yfir
viðtalið, þá er það alltaf sjálfsagt mál.
Ég reyni líka að hafa það ofarlega
í huga að aðgát skal höfð í nærveru
sálar og ég reyni ekki að draga upp
ýktar myndir af fólki. Ég hef bara
staðreyndirnar á hreinu og leyfi
svo persónunni að tala. Þannig má
kannski segja að þessi óþægilega að-
staða hafi kennt mér hvernig best er
að haga vinnubrögðum sínum við
blaðamennsku."
Hvernig fannst þér að hefja svo
skömmu stðar störf sem blaðamaður
hjá sama útgefanda?
„Jú, það var mjög undarlegt. Þetta
gerðist eiginlega þannig að ég fór að
ræða við þáverandi ritstjóra DV varð-
andi þessa grein. Svo þegar við byrj-
uðum að spjalla þá spurði hann hvað
mig langaði að gera í lífinu. Ég svar-
aði honum samviskusamlega og þá
bauð hann mér einfaldlega vinnu!“
Hvaðfinnstþér um slúður almennt?
„Það er nauðsynlegt upp að vissu
marki. Fólk vill lesa um annað fólk
og sækir i fréttir af því, en vissu-
lega er alltaf hægt að ganga of langt.
Blöðin vinna alltaf innan ákveðinna
ramma þó sum gangi lengra en
önnur. Ég myndi til dæmis halda að
Séð og heyrt hafi tamið sér meiri nær-
gætni heldur en Hér og nú. Það blað
hefur til dæmis aldrei, á tíu ára ferli,
fengið á sig kæru.“
Er slúður ekki neikvcett í eðli sínu?
„Það getur bæði verið neikvætt og já-
kvætt. Það er til dæmis slúður í sjálfu
sér að einhver fræg kona eigi von á
barni en á sama tíma eru það gleði-
fréttir. Fréttir af slíku þurfa til að
mynda ekki að vera neikvæðar. Eins
og áður sagði þá sækir fólk i svona
lestur. Ef þessi blöð sem eru núna
að sinna þessum markaði væru lögð
niður þá myndu samstundis spretta
upp sams konar blöð sem fullnægja
þessari þörf.“
Hvernig viðtölfinnst þér skemmtileg-
ast að taka?
„Mér finnst skemmtilegast að taka
viðtöl við áhugavert fólk. Fólk sem
hefur orðið fyrir áhugaverðum lífs-
reynslum eða gert eitthvað athyglis-
vert. Mér finnst svo gaman að deila
með fólki einhverju áhugaverðu sem
verður á vegi mínum. Ætli það sé
ekki þess vegna sem ég er að vinna
á þessum blöðum, þetta starf gefur
manni tækifæri til að segja frá lífinu
í landinu."
í dag byrjar Brynja að starfa hjá
Séð og heyrt, en undanfarið hefur
hún unnið hjá samkeppnisaðilanum
Hér og nú. Brynja segist hlakka til að
hefja störf á nýja staðnum enda mörg
tækifærin innan Fróða sem gefur út
flest tímarit landsins.
Er ekki hœgt að segja að Séð og heyrt
hafi fengið á sig geislabauginn þegar
Hér og nú steig fram og gekk aðeins
lengra ífréttamennskunni?
„Séð og heyrt er bara að reyna að
gera lífið skemmtilegra eins og slag-
Vilt þú
________endurnyia húsbílinn?
Gerir þú miklar kröfur?
Útvegum fyrsta flokks
húsbíla og hjólhýsi af öllum
stærðum og árgerðum
beint frá Þýskalandi.
Allt eftir þínum óskum.
Gott verð - pottþétt þjónusta
Tom Tychsen
Skútahraun 2
Sími 517 9350
Fax 517 9351
Gsm 821 9350
220 Hafnarfirði i tom@husbilagalleri.is
orðið segir. Markmiðið hefur aldrei
verið að koma neinum í bobba og
öfugt við Hér og nú þá er ekki litið
á ákveðna hluti sem fréttir. Þó vil ég
taka það fram að fólkið sem starfar
á Hér og nú er allt afbragðs einstak-
lingar sem og blaðamenn og ekkert
út á þá að setja. Þeir eiga eftir að ná
langt í því sem þeir taka sér fyrir
hendur, hvað sem það verður. Að
auki er búið að setja þar nýja ritstjórn
og ritstjórnarstefnu sem er kannski
ekki eins óvægin og sú fyrri.”
Hvenœr verður tiltölulega ómerkilegt
atvik í lífi einhverrar manneskju að
frétt?
„Það verður að frétt um leið og við-
komandi aðili er þekktur. Fólk sem
er þekkt í þjóðfélaginu getur komið
sér öðruvísi í vandræði en aðrir.
Þannig má segja að það þurfi að gæta
sín meira.“
Nú erum við mjög fámennt samfélag.
Hvar dregur maður mörkin?
„Það getur oft verið mjög erfitt. Við
erum fámenn en samt erum við svo
stór, viljum líta svo stórt á okkur,
vera samkeppnishæf á öllum sviðum.
Ég held að þetta sé bara hluti af því.
Það eru ótrúlega margir frægir á ís-
landi miðað við höfðatölu. Mjög stór
prósenta landsmanna er frægt fólk
miðað við það sem gengur og gerist
annars staðar. Fræg innan gæsa-
lappa. Fólk verður stundum mjög
frægt fyrir ekki neitt.“
Nú má segja að þú sért eiginlega
báðum megin við borðið. Þú ert sjálf
umfjöllunarefni þessara blaða og á
sama tíma ertu aðstarfa fyrirþau. Ný-
legt dœmi er t.d.frétt um ástirykkar
Ásgeirs Kolbeinssonar í Séð og heyrt?
„Þetta var einhver stór misskiln-
ingur,“ segir Brynja og skellir upp úr.
„Við Ásgeir erum ekkert nema góðir
vinir og vinnufélagar. Hann er frábær
maður sem ég hef lært mikið af. Það
er ekkert annað í gangi á milli okkar.
Ég hugsa nú samt að ég verði ekkert
meira í Séð og heyrt. Það gengur ekki
að það sé verið að fjalla um mann-
eskju sem er að vinna á ritstjórninni.
Ég vona um leið að strákarnir hjá Hér
og nú muni skrifa fallega um mig í
framtíðinni."
Þú segir að frœgtfólk verði að passa
sig meira en aðrir?
„Já, og ég geri það núna sjálf. Það er
t.d. stór munur á því hvernig ég fer út
að skemmta mér og svo gæti ég mín
á því hvað ég segi fólki um einkalíf
mitt. Þetta er svolítið erfitt en samt er
þetta bara fylgifiskur frægðarinnar.
Ef ég eignast t.d. kærasta þá þarf ég
kannski að passa mig á því að kyssa
hann ekki á almannafæri. Þetta er
ósanngjarnt gagnvart hinum aðil-
anum en maður verður bara að gæta
sín ef maður vill ekki verða að frétt,“
segir fjölmiðlaprinsessan Brynja
Björk Garðarsdóttir að lokum.
margret@bladid.net
SOLUSYNING A HAGÆÐA HANDGERÐU KINVERSKU POSTULINI
Úti- eða
inniblómapottar
myndir - lampar
vasar - skálar
og fleira
Thin as paper
Sound like a chime
White like jade
Bright as mirror
Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum
Grípið tækifærið
Aukasýning
20-40%
afsláttur
Hlíðasmári 15
Kópavogi
Sími 895 8966
Opið alla daga
frá kl. 9-22
OMISSANDI FENG SHUI FLÆÐI...SKAPAR FALLEGT UMHVERFI