blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 20
28 I SAMSKIPTI FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaöiö 10 manna pókerborð Mjög vandað borð! Einnig hægt að fá með rauðum dúk Verð: 19.990,- WWW.VERSLA.IS Hlíðarsmári 13 S: 5666-999 „Vildi ná tvöföldun á lestrarhraða en margfaldaði það.“ Þorvaldur Kristinsson, 32 ára prentari. Sumarnámskeið hefst 15. maí og 1. júní Sumarnámskeið Akureyri hefst 17. maí og 26. júní Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400 HRAEX^ESTRAFtSl^LJlNN VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiöinu siáttuvéiamarhaðunnn Vagnhöfða 8 (sama gata og Bílabúð Benna) Sími: 517 2010 Nautið-2i. apríl til 21. maí Þolinmótt, alvöru- gefið og íhaldsamt NAUT 20. APRÍL - 20. MAÍ HVAÐ SEGIR FREYJA UM KYNIN? Nautið er íhaldssamt, fast fyrir og lætur fátt raska ró sinni. Það vill sjá áþreifanlegan árangur af verkum sínum. Fólk i þessu merki treður sjaldnast öðrum um tær og sjálft vill það fá að vera í friði. Ef reynt er að telja það á eitthvað sem því hugn- ast ekki fyllist það þvermóðsku. Fólk í nautsmerkinu hefur flest góða stjórn á skapi sínu, en ef það á annað borð reiðist er það alltaf meira en lítið. Það verður ösku grenjandi reitt og er lengi að jafna sig á eftir. Það er því ráðlegast að espa nautið ekki svo það verði ekki mannýgt. Fólk í þessu merki elskar heim- ili sitt og það er einsdæmi ef að í þessu merki finnst einstaklingur sem ekki nýtur þess að hafa það gott heima. Það tekur notalegheitin fram yfir glæsileika. Pírumprjál er nautinu ekki að skapi, það vill hafa hlutina ekta. Nautsfólkið er yfirleitt hraust og leggst ekki í rúmið fyrr en í fulla hnefana. Það er einu sinni þannig með nautin að þau eiga afar erf- itt með að meðtaka ráðleggingar nema þær séu þeim að skapi. Að þrjóskast við að fara eftir læknis- ráði hefur oft komið þeim í koll. Nautið er þolinmótt, lystugt og al- vörugefið. Það hefur gaman af gríni á meðan ekki er að því vegið. Þver- öfugt við það sem margir halda er nautið ekki hefnigjarnt. En það getur verið afar fálátt við þá sem því líkar ekki við. Karlmaður í nautsmerkinu Hann er fremur rólyndur en treystu ekki á að hann sé hagsýnn þó að hann haldi það sjálfur. Það kann að taka hann langan tíma að kanna hvort hann vill bindast stelpunni sem hann hefur verið með í marga mánuði. Þegar hann hefur á annað borð ákveðið sig getur hann verið dálítið yfirþyrmandi. Oftast er þó þessi maður ábyrgur og góður heimilisfaðir. Nautsmaðurinn er afbrýðisamur og því afar óráðlegt að vekja slíkar tilfinningar í brjósti hans. Hann er líka tortrygginn, en hann getur verið afar blíður, tillitssamur, góður elskhugi og mikill verndari. Hann er listhneigður og vinnusamur. Hann þolir ekki háværar konur eða karlmannlegar, hans draumadís á að vera pen og snyrtileg. Þessi maður er skipulagður og leggur á ráðin varðandi framtíðina. Hann er vel meðvitaður um það að á eftir góðu ári getur komið magurt ár. Tengdamóðir nautsins ætti að varast að ráðleggja tengdasyninum nema hann heinlega biðji um ráð. í fjármálum má búast við því besta af þessum mönnum. Kvenmaður í nautsmerkinu Þessar konur eru heiðarlegar og þær búa flestar yfir bestu eiginleikum sem einn maður getur óskað sér. Hún hefur ríkulega siðferðiskennd og allar hennar gjörðir eru heiðar- legar. Venjulega eru nautskonurnar rólegar og fastar fyrir á hverju sem dynur. Hún hefur mikla þörf fyrir ör- yggi og ástúð og sá sem veitir henni þetta tvennt fær það margfaldlega endurgoldið. Ef hlutirnir eru í jafn- vægi hefur þessi kona mikla orku og hún er sívinnandi. Heimilið er hreint og fínt og hún kann vel að fara með peninga. Hún hefur mikla þolinmæði og viljafestu. Þessi kona gerir ekki mikið með menntun og gáfur en hefur þó ágætis heilabú en hún metur mann- gerðina meira en öll heimsins próf. Hún hefur sjaldnast áhuga á fólki sem er uppfullt af hugmyndum. Hún er traust og býr yfir miklum aga og sjálfstjórn. Hún vill hafa allt ekta og fátítt er að sjá gerviblóm á heimili hennar. En algeng sjón er blómvöndur sem tíndur er úti í haga. Þekktir einstaklingar í nautsmerkinu Ella Fitzgerald Adolf Hitler Harry S.Truman Ólafur R. Grímsson Auður EirVilhjálmsd. Halldór Laxness Áhrifastjörnur þessa merkis eru, Venus og Merkúr. Happadagur: föstudagur. Happalitir: Ijósgrænt og rauðgult. Heillasteinar: mánasteinar og smaragðar. Happatölur:6og 5. Smáaugiýsingar 510-3737 Auglýsingadeild 510-3744 Ritstjórn 510-3799 Skiptiborð 510-3700 blaði&= Verðlaskkun 3060% afsláttur af mynstruðum sasngurverasettum Ný viðskiptasambönd - milliliðalaust við framleiðanda Vandaður sasngurfatnaður í 29 ár &sngurfataveralunin Smáfólk Ármúla 42, Opið fré kl 11 VINNUVÉLANÁMSKEIÐ NÁMSKEIÐ VIKULEGA Staðstetning Mjódd w ^ I , www.ovs.is liuBn Jm \m UPPLÝSINGAR OG INNRITUN I Sl'MA 894 2737 300 spilapeningar, 2 spilastokkar og dealer button kit í fallegri tösku Verð: 3.990 kr,- WWW.VERSLA.IS Hlíðarsmári 13S: 5666-999

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.