blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 30
38 I FÓLK
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaðið
í LÆRI TIL
PARÍSAR
Einn forkólfa verkalýðshreyfingarinn-
ar kvartaði undan því á dögunum að
öfgahópar væru í auknum mæli farnir
að sölsa undir sig hátíðarhöld á baráttu-
degi verkalýðsins og þótti það slæmt.
Smáborgaranum finnst þvert á móti að
hinir meintu öfgahópar séu þeir einu
sem glæði þessi steinrunnu hátíðarhöld
einhverju lífi nú til dags. Aðrir þátttak-
endur eru eins og afturgöngur sem
viðra gömlu skiltin sin fremur af göml-
um vana en brennandi hugsjón. Ræður
verkalýðsleiðtoganna skilja lítið eftir og
sá grunur læðist að Smáborgaranum
að hann hafi heyrt þær áður. Sama má
segja um slagorðin á skiltunum. Þá þykir
Smáborgaranum Internationalinn og Öx-
ar við ána vera orðnar heldur þreyttar og
leiðinlegar tónsmíðar og mættu lúðra-
sveitirnar að ósekju reyna að poppa svo-
lítið uppefnisskrána.
Þessi deyfð er ef til vill til marks um
þá alkunnu staðreynd að (slendingar
kunna ekki þá list að mótmæla. Á Islandi
þykir ekki kurteisi að andmæla valdhöf-
um og við látum mikið yfir okkur ganga
áður en við hreyfum við mótbárum.
Þá sjaldan að íslendingar taka sig til
og efna til mótmæla verða þau oftar en
ekki klúðursleg og illa skipulögð.
Franska leiðin
Smáborgarinn bjó um tíma í Frakklandi
(þar sem hann kallaðist le petit bourgeo-
is að hætti innfæddra) og er hann ekki
frá því að íslenskir mótmælendur gætu
margt lært af Frökkum í þessum efnum.
Þar láta menn sér ekki nægja að viðra
skilti sín í stutta stund og muldra kraft-
laus slagorð gegn rokinu heldur berja
þeir bumbur, blása í lúðra og hrópa sig
hása á meðan óeirðalögreglan bíður
átekta í hliðargötu. Þar fylgja menn enn
fremur orðum eftir með athöfnum, efna
til verkfalla og vinnustöðvunar, hlekkja
sig við grindverk, hlaða götuvígi og
grípa jafnvel til ofbeldis ef þörf krefur.
Smáborgarinn beinir þeim tilmælum
til forkólfa verkalýðshreyfingarinnar og
atvinnumótmælenda að þeir fari í kynn-
isferð til Parísar til að læra að mótmæla á
franska vísu. Þá er kannski von til þess að
það verði eitthvert fútt í fyrsta maí hátíð-
arhöldum í Reykjavík í framtíðinni.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Gunnar Hersveinn, upplýsingafulltrúi Umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar.
Hjólar þú alltaf í vinnuna?
„Já ég geri það. Bæði á sumrin og á veturna en þá skipti ég yfir á nagladekk.
Það er allt í lagi að vera á nöglum á hjóli, en ekki á bíl! Þá er hjólið alveg
stöðugt í hálkunni. Ef það er rok og rigning þá er ekkert vandamál að
taka hjólið bara í strætisvagninn.“
Um þessar mundir er átakið„Hjólaö í vinnuna" í gangi.
Kristján Þorvaldsson (44) og Árdís Sigurðardóttir (39) Maður skoðar hlífðarbúning gegn fuglaflensu á ráðstefnu í Singapore
voru sæt saman á vorblótinu á Nasa um síðustu helgi.
Indverskur bóndi rannsakar sólblómauppskeru á útjaðri Amritsar
Bandaríski tennisleikarinn Venus Williams þakkar fyrir
sig eftir sigur á tennismóti I Póllandi
KAFFIBLJÐIN
tUPSGJÖFIN ÍÁRERALVÖRU KAFFIVÉL
FRÁ QOICKMILL
l'o
Uamrabor
Þetta voru tíu hringingar. Eigum við
að prófa að hafa þær ellefu?
HEYRST HEFUR...
Pað er jafnan haft fyrir satt
að blaðamenn séu málglatt
fólk, en á hinn bóginn virðist
pennaleti hrjá þá verulega,
svona utan vinnunnar. Að
minnsta kosti hlýtur að teljast
sérkennilegt að á umræðuvef
Blaðamannafélags Islands
(www.press.is/korkur) hefur
ekki sést eitt aukatekið orð um
útgáfustöðvun DV og breytingu
þess í vikurit....
Hljóðið mun fremur þungt
í samfylkingarmönnum í
Reykjavík þessa dagana. Finnst
þeim kosningabaráttan hafa
misst marks til þessa og kenna
um reynsluleysi oddvitans Dags
B. Eggertssonar. Á opnu húsi
framboðsins á
Kaffi Reykjavík
í tilefni í. maí
var margt skraf-
að um þetta og
lágu stuðnings-
menn Stefáns
Jóns Hafstein
ekld á þeirri
skoðun sinni að kosningabar-
áttan væri með allt öðrum brag
ef þeirra vígreifi foringi leiddi
hana. Fólk tengt Steinunni V.
Óskarsdóttur, borgarstjóra í
Reykjavík, tók hins vegar undir
athugasemdir í Morgunblaðinu
um að Steinunn hefði augljós-
lega verið betri kandídat en Dag-
ur og hefði einhverntíman þurft
að segja mönnum það tvisvar,
að Styrmir Gunnarsson væri vin-
sælasti stjórnmálaskýrandinn í
því selskapi...
Hitt er annað mál að Dagur
þarf tæpast að hafa mildar
áhyggjur af þessum keppinaut-
um sínum. Innanbúðarmenn
segja að þau Steinunn V. Óskars-
dóttir og Stefán Jón Hafstein
^ar^tU me^
i ser í kómandi
ar fyrir þingkosningarnar að
ári...
Reynir Traustason veltir
vöngum yfir því á vef
Mannlífs (www.mannlif.is) að
samkvæmt skoðanakönnun
NFS sé meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar í Isafjarð-
arbæ fallinn fyrir Isafjarðaríista
vinstri flokkanna. Sigurður Pét-
ursson, sagnfræðingur, kennari
og stefnuvottur, leiðir listann, en
hann hyggst ekki taka við starfi
bæjarstjóra ef sigur vinnst held-
ur ráða bæj-
arstjórann
utan úr bæ.
Telur Reynir
nánast sjálf-
gefið að hann
leiti þó ekki
of langt yfir
skammt að
bæjarstjóra og minnir á að eigin-
kona hans, Ólína Þorvarðardótt-
ir, sé á lausu, en hún lét nýverið
af starfi skólameistara Mennta-
skólans á Isafirði eftir storma-
samavist...
Annars kvarta ísfirskir sjálf-
stæðismenn sáran undan
því að fréttir af skoðanakönnun
NFS hafi verið mjög á eina lund
og ky nnt í öllum fréttatímum að
meirihlutinn vestra væri fallinn
og látið með könnunina eins og
úrslitin í kosningunum séu frá-
gengin. Segjast þeir ekki hafa
heyrt samsvarandi kannanir í
Reykjavík kynntar í fréttatím-
um með upphrópunum um að
meirihluti R-listans sé fallinn...