blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 1
o-r/æer/a ótmi5777000 Friálst, óháð & ókeypis! 98. tölublað 2. árgangur fimmfudagur 4. maí 2006 Sérblað um veiði fylgir Blaðinu «dag „ Gfasííegt 3ja rétta falgartUBoð Verð aðeíns fcr. 4.200.- Borðapantanir í "ft tlitTi nÝ" síma ^62 6766 ■■I*/IMff / *!**». Rauðarárstígur 39, 5TEAKM0U5E raudara@raudara.is, www.raudara.is Utanlandsferðin hækkar í verði í könnun sem Neytendasamtökin gerðu á verði pakkaferða undan- farin ár kemur fram að verð hækkar þegar krónan veikist en lækkar hins- vegar ekki þegar hún styrkist. „Ég veit dæmi þess að fólk sé að borga allt að 12% hærra verð fyrir ferðina en áður var gefið upp sem getur verið á milli 20-30 þúsund krónur fyrir fjölskylduferð," segir íris Ösp Ingjaldsdóttir lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum. | SÍÐA16. Páfabær veldur úlfúð Breskur grínþáttur, Páfabær, sem gerir grín að valdafíkn og græðgi innan rómverska valdaskipulagsins hefur valdið mikilli úlfúð í Þýska- landi. MTV-tónlistastöðin hefur ákveðið að fresta sýningu þáttanna vegna mótmæla. Margir hafa þó orðið til að benda á sambæri- »leika þessa máls , og umdeildra skopteikninga af Múhameð *% spámanni ' sem orsök- uðu miklar deilur. | SÍÐA36. Kynferðislegt of- beldi er faraldur Mikilvægt er að fjalla um kynferð- islegt ofbeldi og fræðsla um eðlileg mörk í samskiptum skiptir miklu máli. Á ráðstefnunni Yfirstígum óttann munu sérfræðingar ræða for- varnir, fræðslu og heilbrigði. Sigríður Björnsdóttir segir að með umræðu um þessi mál sé verið að láta börn vita að það er ekki allt full- orðið fólk sem þegir: „En það eru alltaf einhverjir sem þora ekki að stíga fram og hjálpa börnum. Þeim fxnnst það óþægi- legt umræðuefni eða of nærri sér.“ | SÍÐA12. Mótstaðan þroskar ma Tryggvi Olafsson myndlistarmaður ræðir um myndlist ina, ræturnar og samhengið í lífinu í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur. I síður 26 & 27 Össur segir stjórnina á flótta undan umræðunni Þingið sent heim í dag og boðað til sumarþings hinn 30. maí eftir að kosningum er lokið. „Ríkisstjórnin er einfaldlega að reka þingið heim af því að hún óttast að ráðleysi sitt hafi áhrif á sveitarstjórn- arkosningarnar,“ segir Össur Skarp- héðinsson, þingmaður Samfylking- arinnar um þá ákvörðun forseta Alþingis að fresta þingfundum í dag og boða til sumarþings hinn 30. maí. „Hún er komin á hraðan flótta undan erfiðum úrlausnaratriðum, sem þola enga bið og leggur ekki einu sinni í boðaðar eldhúsdagsumræður, enda ljóst að þar yrðu efnahagsmálin fyr- irferðarmikil," sagði Össur í samtali við Blaðið. Forseti Alþingis og formenn þing- flokkanna náðu samkomulagi síð- degis í gær um að frestun þingfunda þar til að afloknum sveitarstjórnar- kosningum. Fyrir þinginu liggja enn allnokkur mál, en þyngst í vöfum reynist sjálfsagt frumvarp mennta- málaráðherra um Ríkisútvarpið. „Stjórnarandstaðan er að sjálf- sögðu reiðubúin að koma til þings eftir kosningar, en henni var ekkert að vanbúnaði að sitja út allan maí. En meðan ríkisstjórnin er með allt niðrum sig í efnahagsmálunum, varnarmálunum og hinu endalausa RÚ V-klúðri er ekki nema von þó hún vilji forðast umræðuna." össur segir ljóst að illa hafi verið haldið á spöðunum hjá ríkisstjórn- inni í þingstörfum. „Hluti ráðherra- liðsins hefur lagt fram umdeild og einstaklega hroðvirknislega unnin frumvörp, sem þrátt fyrir langvinna plástrameðferð hafa ekki batnað svo að það megi afgreiða þau á þeim hraða, sem ríkisstjórnin kysi.“ í því samhengi nefnir hann sérstaklega RÚV-frumvarpið, sem hann segir ljóst að þurfi víðtæka pólitíska sátt um, en þess í stað hafi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kosið stöð- ugan ófrið um það. „Það segir sína sögu um þessi ólík- indavinnubrögð stjórnarliðsins, að það er allt fram á síðasta dag að leggja fram ný frumvörp, löngu eftir að allir frestir eru liðnir.“ Þingfundur verður haldinn kl. 13.30 í dag að loknum nefndar- fundum og er gert ráð fyrir að þá verði gengið til atkvæða um þrjú mál, sem rædd voru á Alþingi í fyrra- dag. Þá er fyrirhuguð 1. umræða um frumvarp utanríkisráðherra um skipulag á rekstri Keflavíkurflug- vallar, en þar er heimiluð ráðning flugmálastjórnar á ýmsu starfsliði varnarliðsins svo sem slökkviliði og öðrum sérhæfðum starfsmönnum flugvallarins. Eins er ráðgert að ljúka 2. og 3. umræðu um frumvarp um framhaldsskóla, sem mælir fyrir um afnám samræmdra prófa. Hártæ Öll hársnyrtitæki með góðum afslætti en aðeins í nokkra daga. Sléttujárn, bylgjujárri, vöfflujárn, hárklippur, krullujárn, nefhárasnyrtar, blásarar, hitaburstarr rakvélar og margt fleira. Vörumerki á borð við Babyliss, Braun, Remington og Philips. Búðin þfn byggtogb|jjó „ . ,• _,Kringlunni Smaralind 568 9400 , \ 554 7760

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.