blaðið - 11.05.2006, Page 22
‘IsCensiza CamCa-
(tíötíð Cest í Ceímí
Hereford steikhús býður upp á sérvalið íslenskt lambakjöt.
Aðeins besta fáanlega kjötið er
matreitt á Hereford steikhús en
Ferskar kjötvörur hf. sérvelja
allt kjöt og sker það eftir kúnstar-
innar reglum fyrir steikhúsið.
íslenska lambakjötið hefur
vakið sérstaka athygli víða um
heim. Rannsóknir hafa verið
gerðar bæði hérlendis og erlendis
á landbúnaðarvörum og hefur ís-
lenska lambið komið langbest út
úr öllum þessum könnunum.
Almenningur hefur á und-
anförnum árum farið að gera
auknar kröfur um hollustu og
hreinleika matvæla. Fólk vill
fá ferskt og gott kjöt sem hefur
ekki verið mengað með óæski-
legum efnum eins hormónum
en hormónagjöf er ekki leyfð í
sauðfjárrækt á íslandi. Kannanir
á lambakjöti hafa staðfest gæði
íslenska lambsins en samkvæmt
niðurstöðum samanburðarrann-
sóknar sex Evrópuríkja á sam-
setningu og gæðum lambakjöts
er íslenska lambakjötið meyrast
og ríkast af Omega 3-fitusýrum.
(slenska lambakjötið ber keim
af hreinni náttúru landsins
Hin geysivinsælu svínarif á Hereford
steikhúsi eru látin marinerast í hinni
frábæru 66 Motel sósu frá Hot Spot
og síðan pensluð með henni áður en
þau eru borin fram.
Þetta gerir þau ómótstæðilega góð
Ýmsir þættir hafa áhrif á bragð
og gæði lambakjöts en þar má
nefna kyn lambsins, aldur þess
og fæðan sem það hefur nærst
á. íslenskt lambakjöt er þekkt
um allan heim fyrir hreinleika
og einstakt bragð. Ástæðan fyrir
þessum einstöku gæðum er að
sjálfsögðu sú að íslensk lömb hafa
flest öll gengið frjáls í ómenguðu
umhverfi á fjöllum og heiðum,
drekkandi hreint og tært vatn
og nærst á grænum grösum og
berjum en þetta skilar sér í ljúf-
fengu og bragðmiklu kjöti.
íslenska lambakjötið þykir
fremur bragðmilt og það er að
hluta til vegna þess að íslensku
lömbin eru mun yngri þegar
þeim er slátrað. Erlendis eru
lömbin sem leidd eru slátrunar
gjarnan eldri og af þau sökum
verður kjötið ekki eins gott.
Mörgum finnst erlent lambakjöt
of bragðsterkt en það getur líka
stafað af því fóðri sem þau hafa
fengið enda verða útlendingar
margir hverjir undrandi þegar
þeir bragða íslenska lambakjötið
og tala um hve bragðgott og milt
það sé.
Ekki má gleyma því að íslenskt
lambakjöt er laust við hormóna
og sýklalyf, öfugt við lambakjöt
í ýmsum öðrum löndum. Allt
kjöt er skoðað af dýralæknum og
síátrun og kjötvinnsla er undir
ströngu gæðaeftirliti.
Því er ekki furða að íslenska
lambakjötið sé alltaf jafn vinsælt.
Hereford steikhús býður að sjálf-
sögðu upp besta á lambakjötið
og dýrindis meðlæti með og því frá borðum eftir að hafa snætt ís-
ætti enginn að fara vonsvikinn lenska lambið.
HEREFORD FRÉTTIR