blaðið

Ulloq

blaðið - 01.06.2006, Qupperneq 1

blaðið - 01.06.2006, Qupperneq 1
..smjatt, smjatt é’kjamms! 16“ pizza með 2 aleggstegundum , og brauðstangir að auki á I ib«/U ef þú sækir fyrir 50 kr i viðbót færðu 2 lítra af Coca Cola ■ DEIGLAN Fastagestir frum- flytja Baróperu á Grand Rokk Listahátíð Grand Rokks hefst í dag | SfÐAIO ■ ÍPRÓTTIR Landsliðsmenn Tógó í knattspyrnu gera óhóflegar launakröfur Þátttaka á HM í upp- námi | SfÐA 30 ■ VÍSINDI Konur gera karla heimska Takmörkuð afkastageta giftra vísindamanna | SfÐA 12 Frjálst, óháð & ókeypis! Ometanlegar minningar Það verður sífellt algengara að íslendingar leggi í heimsreisur og geri víðreist um heiminn. Einn þeirra erTómas Ingi Ragnarsson, sem hefur þrisvar sinnum lagt upp í langferð yfir heimsins höf og ferðast um Asíu. Tómas á erfitt með að gera upp á milli allra þeirra fjöl- mörgu staða sem hann hefur heimsótt á ferðum sínum enda hefur hann tyllt niður tá á mörg- um svæðum sem talin eru með- al þeirra fegurstu í veröldinni. „Ég er nýkominn frá Nepal og Himalayafjöllin eru mér mjög ofarlega í huga. Einnig varð ég mjög heillaðuraf N-Víetnam. Fólkið þartók mér sérlega vel og var í alla staði yndislegt. Fólkið sem maður hittir fyrir í þessum löndum er svo stórhluti af þessu öllu saman." segir Tómas Ingi. | SÍÐA24 Olga Guðrún Árnadóttir ræðir um uppreisnarhug hippakynslóðarinnar og hatrömm viðbrögð borg- arastéttarinnar í viðtali við Kolbrúnu Bergþórs- dóttur | SfÐUR 18-19 Valgerður kærir morðhótun á mótmælaspjaldi Valgerður Sverrissdóttir, iðnaðar- ráðherra, kærði íslandsvini í gær sem stóðu fyrir mótmælum á laug- ardaginn vegna umhverfismála. Ástæða kærunnar er mótmælaskilti sem á stóð „Drekkjum Valgerði, ekki íslandi”. Telur Valgerður þessi orð fela í sér alvarlega hótun og sé hún til þess fallin að vekja ótta hjá sér og fjölskyldu sinni. Bla6i6/Frikki Bandaríkjamenn til viðræðu við írani um kjarnorkumál Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, lýsti yfir því í gær að stjórnvöld vestra væru til- búin að taka þátt í marghliða við- ræðum við fulltrúa írana gegn því að klerkastjórnin þar hætti við um- deilda kjarnorkuáætlun sína. Rice sagði Bandaríkjamenn tilbúna til að ganga til slíkra við- ræðna ásamt fulltrúum Evrópu- sambandsins. Skilyrði væri á hinn bóginn að íranir hættu starfsemi sem tengist auðgun úrans og kjarnorkuendurvinnslu. George W. Bush forseti kvaðst þeirrar hyggju að unnt yrði að leysa kjarnorkudeiluna með diplóma- tískum aðferðum. Bandaríkjamenn hafa látið að þvi liggja að til greina komi að beita hervaldi gegn írönum reynist það nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að klerkastjórnin i Te- heran eignist gereyðingarvopn. Fréttaskýrendur segja yfirlýs- ingu Rice fela í sér stefnubreytingu gagnvart Irönum. Ríkin tvö hafa lítil sem engin samskipti átt frá árinu 1979 þegar starfsmenn sendi- ráðs Bandaríkjanna í Teheran voru teknir í gíslingu. Utanrikisráðherrann sagði Banda- ríkjamenn tilbúna til að setjast að samningaborðinu um leið og íranir leggðu fram sannanir fyrir því að kjarnorkuáætlunin hefði verið lögð til hliðar. Tilgangurinn með þess- ari tillögu væri ekki síst sá að sýna fram á vilja Bandaríkjastjórnar til að leysa deiluna með friðsam- legum hætti. Hvatti hún stjórnvöld í Teheran til að íhuga tilboð þetta af fullri alvöru. Rice mun eiga fund með ríkjum þeim sem eiga fastafull- trúa í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna auk fulltrúa Þjóðverja í Vínar- borg. Þar verða ræddar hugmyndir þær sem ríki ESB hafa kynnt i því skyni að leysa kjarnorkudeiluna. Rice kvaðst viðurkenna það að íranir ættu rétt á því að nýta kjarn- orku í borgaralegum tilgangi en fordæmdi um leið þann stuðning sem hún kvað klerkastjórnina veita hryðjuverkamönnum. Aðspurð hvort til greina kæmi að fara með hernaði gegn írönum kvað hún ljóst að Bush Bandaríkjaforseti hygðist ekki hafna neinum möguleikum í því efni. Fram kom í máli utanríkisráð- herrans að tilboði um viðræður yrði komið til íranskra stjórnvalda með milligöngu svissnesku ríkisstjórnar- innar. Fréttaskýrendur sögðu í gær- kvöldi að telja bæri þessa tillögu um marghliða viðræður við írani með þátttöku Bandaríkjamanna mjög mikilvæga. Lautarferð í Hljómskála- garðinum Þeir skemmtu sér konunglega krakkarnir af Laufásborg sem fór í lautarferð með kennaranum sínum í Hljómskálagarðinn í gær. Þar var farið í leiki og sungið hástöfum. Krakkarnir gengu með hendur fyrir aftan bak að hætti fullorðinna en ósagt skal látið hvort tilgangurinn var sá að líkja eftir þeim eldri.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.