blaðið - 01.06.2006, Page 6
6IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2006 blaöið
Hunangs^
Simmepsscsúi...
... þeqúr virdbr fivín!
Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem
salatsósa og i kalt pastasalat hverskonar.
VOGABÆR
Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa.
_____________________________________________________________
Auglýsingar J I U ú i
blaðið
Chavez styrkir stöðu
sína í Suður-Ameríku
Venesúelamenn taka að sér að hreinsa hráolíu frá Ecuador.
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af þróun mála í Rómönsku-Ameríku.
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
hefur lokið við gerð nokkurra
samninga á sviði orkumála við
stjórnvöld í nágrannaríkinu Ecua-
dor. Þykir þetta líklegt til að auka
enn á áhyggjur ráðamanna í Banda-
ríkjunum vegna þróunar mála í
Rómönsku-Ameríku.
Samningarnir kveða m.a. á um
að Venesúela taki að sér að hreinsa
um íoo.ooo tunnur af hráolíu frá
Ecuador á degi hverjum. Stjórnvöld
í Ecuador segja að samningurinn
muni minnka útgjöld á þessu sviði
um 300 milljónir Bandaríkjadala á
ári.
Chavez er nú í opinberri heim-
sókn í Ecuador. Hafa stjórnvöld þar
Iagt áherslu á að heimsóknin sé ekki
pólitísk í eðli sínu. Alfredo Palacio,
forseti Ecuador, hefur sagt að stjórn-
völd hafi ekki hug á að ganga í banda-
lag það sem Chavez hefur leitast við
að mynda um orkusölu í álfunni
sem einnig miðar á því að draga
úr pólitískum og efnahagslegum
áhrifum Bandaríkjamanna þar.
Bandaríkjastjórn fylgist grannt
með framgöngu Chavez enda nýtir
hann hvert tækifæri til að gagnrýna
George W. Bush forseta og hefur
myndað bandalag með þeim Fídel
Castro Kúbuleiðtoga og Evo Mora-
les, forseta Bólivíu sem eru lengst til
vinstri í stjórnmálum álfunnar.
Heimsókn Chavez til Ecuador
kemur í kjölfar þeirrar ákvörðunar
stjórnvalda þar að þjóðnýta olíu-
lindir sem bandaríska fyrirtækið
Occidental Petrolium hafði á leigu
og rifta samningi um nýtingu
þeirra. Bandaríkjastjórn hefur farið
hörðum orðum um þessa ákvörðun
stjórnvalda í Quito. Ákvörðunin
hefur hins vegar mælst vel fyrir í
Ecuador, einkum á meðal hinna fá-
tæku og indíána.
Ecuador býr líkt og Venesúela yfir
umtalsverðum olíulindum. Samn-
ingurinn sem gerður var kveður á
um að Venesúela hreinsi hráolíu
við hagstæðu verði og aðstoði síðan
Ecuador við að reisa olíuhreinsun-
arstöð. Ecuador kaupir bæði tækja-
búnað og margvísleg efni sem tengj-
ast olíuvinnslu frá Bandaríkjunum.
Vilja að Bókin um bílinn
verði kennd í grunnskólum
Mótor-listinn á Þórshöfn í oddaaðstöðu eftir kosningarnar.
Mótor-listinn á Þórshöfn komst
í oddaaðstöðu um helgina þegar
þeir náðu manni inn í sveitarstjórn
sameinaðs sveitarfélags Þórshafnar-
hrepps og Skeggjastaðahrepps.
Þórir Jónsson, oddviti Mótor-list-
ans segir að meirihlutaviðræður
O-lista og Mótor-listans standi nú
Níutíu ára
en samt ný
Viðopnum 2. júní
yfir og skýrist það mjög bráðlega
hvort að samkomulag náist. O-listi
og K-listi náðu báðir inn þremur
mönnum í sveitarstjórn, en M-list-
inn einum.
„Mótor-listinn er þverpólitískur
listi með fólki sem hefur áhuga á
bæjarpólitík. Við tengjumst flest ein-
hverju mótortengdu, svo sem vinnu-
vélum og vörubílum, auk þess sem
margir frambjóðendur hafa áhuga á
jeppum, vélsleðum og slíku. Þannig
varð þetta nafn til,“ segir Þórir í sam-
tali við Blaðið, sem sjálfur er vinnu-
vélaverktaki á Þórshöfn.
Meðal stefnumála Mótor-listans
er að laga vegi innan sveitarfélags-
ins, malbika aðalgötu Þórshafnar og
bæta almenn búsetuskilyrði. „Við
viljum einnig koma upp sérstöku æf-
ingasvæði fyrir mótorista og þannig
auka öryggi þeirra sem stunda
slíkar íþróttir og koma í veg fyrir
Þórir Jónsson, oddviti Mótor-listans í sam-
einuðu sveitarfélagi Þórshafnarhrepps og
Skeggjastaðahrepps.
skemmdir á landi og gróðri. Einnig
viljum við að Bókin um bílinn verði
kennd í grunnskólum," segir Þórir.
SUMARFJARNÁM
Skráning á sumarönn fer fram
22.maí - 2.júni
á heimasíðunni www.fa.is/fjarnam